Todmobile í Hörpu

Risastór

Það var fjör í gærkvöldi í Hörpu er stórsveitin Todmobile lék listir sínar. Kvöldið, það er ástæða þess að ég var þarna, var tilkomið vegna þáttar um Todmobile (#0296) fyrir hlaðvarpið Bestu plötuna en þar komust þáttastjórnendur í svo gríðarlegt stuð að ákveðið var að fara á tónleika með Todmobile þar og þá. Þorvaldur Bjarni heyrði síðan þáttinn, hafði samband og bauð þrenningunni á tónleikana. Takk innilega kæri!!

Salurinn var vel fullur og er á leið var kominn hálfgildings sveitaballastemning uppi við sviðið, fólk dansandi og syngjandi. Opnað var á „Lommér að sjá“, geggjað, og svo tók hver slagarinn af fætur öðrum við. Söngsveitin Fílharmónía, Strokkvartettinn Siggi og Guðni Franzson voru þarna og mikið um dýrðir. Guðni hóf tónleikana með því að blása einn í jarðlúður eður jarðhorn (didgeridoo), ansi áhrifaríkt, og svo var hent í opnunina.

Já, slagararnir runnu þarna fram og ég var minntur rækilega á það af hverju við BP-bræður ákváðum að drífa okkur. „Eldlagið“, „Stelpurokk“, „Í tígullaga dal“, „Presley“ (með Grafík, frábært lag!) o.s.frv. Síðasta lag fyrir hlé var „Brúðkaupslagið“, algerlega ótrúlegt lag verð ég að segja. Þessi samsláttur popps, proggs og klassíkur er algerlega einstakur og Eldborgin öll söng eins og einn maður. Haukur, BP-félagi, sagði við mig eftir tónleika að þetta væri ábyggilega sérstök sjón fyrir útlending. Kór, maður næstum ber að ofan með selló, díva, jarðlúður, gotneskar vögguvísur, lag sem er í senn þjóðlagakennt og með minni frá Rage Against The Machine („Stopp“). Hlutir sem virðast gjörsamlega þversum á blaði en ganga fullkomlega upp í framkvæmd. Í nákvæmlega þessu liggja töfrar Todmobile!

Þannig er mál með vexti að sveitin hlaut heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrr á árinu og því var ákveðið að slá í þessa yfirlitstónleika. Andrea, Þorvaldur og Eyþór Arnalds – upprunalega tríóið – var þarna og með þeim langtímameðlimirnir Eiður Arnarsson, Ólafur Hólm og Kjartan Valdemarsson. Jónína Björt Gunnarsdóttir söngkona var þarna líka sem og platínubarkinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson eins og Þorvaldur kallaði hann.

Og auðvitað er unun að fylgjast með svona fagfólki spila þessa snilld í góðu og vel hljómandi húsi. Eftir hlé voru nokkrir hápunktar, „Ég heyri raddir“, hvar kórinn kom geypisterkur inn, „Voodooman“, helmagnað lag sem ég er farinn að fíla æ betur með árunum og eitt af mörgum kjördæmum um einstaka lagasmíðagáfu Þorvaldar. „Spiladósalagið“ var algert æði, stórkostlegt (hvað er ég búinn að segja þetta oft?) og lokað var með Pöddulaginu. „Stopp“ í uppklapp og allt vitlaust.

Takk fyrir mig Toddarar og við sjáumst að vörmu er það ekki?

EFNISSKRÁIN:

Lommér að sjá

Eldlagið

Stelpurokk

Í tígullaga dal

Presley (Grafík)

Sætari en sýra

Stúlkan

Eilíf ró

Brúðkaupslagið

(hlé)

Hafmey

Æðislegt

Úlfur

Ég heyri raddir

Requiem

Þeir sem guðirnir elska

Voodooman

Inn

Spiladósalagið

Pöddulagið

(uppklapp)

Stopp

PS. Hér er svo smá texti sem ég skrifaði fyrir hlaðvarpið á sínum tíma, ykkur til ánægju og gildisauka:

„Todmobile er með allra merkilegustu poppsveitum Íslandssögunnar, bræðingur sveitarinnar á straumum og stefnum sem á pappír áttu ekki að geta átt samleið gerðu það samt í meðförum þessa framsýna þríeykis. Þau Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Andrea Gylfadóttir og Eyþór Arnalds hittust í Tónlistarskólanum í Reykjavík á 9. áratugnum og lokaverkefni þar gat af sér hljómsveit, Todmobile, sem læddi út fyrsta lagi sínu rétt fyrir jól 1988, þá á hinni goðsagnakenndu safnplötu Frostlög. Lagið, „Sameiginlegt“, inniber smekklegan samslátt klassíkur og popps og setti tóninn fyrir fyrstu breiðskífuna sem út kom ári síðar.

Í framhaldinu gerðust þau undur og stórmerki að sveitin varð með allra vinsælustu sveitum landsins. Þrátt fyrir proggaða aðkomu að poppinu hvar beitt var gralli, súrrealisma og mjög svo óvæntum krókum, sveigjum og beygjum voru lagasmíðarnar alltaf grípandi og skemmtilegar og Todmobile var líkt og öxulveldi í upphafi 10. áratugarins, dældi út slögurum eins og enginn væri morgundagurinn samfara traustum og gildandi breiðskífum.“

Hvað: Todmobile

Hvar: Harpan

Hvenær: 13/11/26

Ljósmynd: Arnar Eggert

Arnar Eggert Thoroddsen Avatar

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *