Brek í Salnum, 25. september 2026

Ljósmynd/Arnar Eggert Thoroddsen.

Hljómsveitin Brek hélt sannkallaða ljúflingstónleika í Salnum, Kópavogi, í gær. Nýútkomin er plata, Ný spor í slóð, og var henni fagnað með pomp og prakt en fimm ár eru frá fæðingu frumburðarins sem er samnefndur sveitinni. Brek leikur einhvers konar þjóðlagatónlist, á köflum djassskotna, á köflum poppskotna og alþýðubragurinn þykkur og góður. Meðlimum er annars illa við að tjóðra stíl sinn við einn staur enda flögrar hún um velli víða hvað það varðar.

Ég og mamma sátum liggur við uppi á sviði sem skýrir þessar fínu myndir sem fylgja. Mikið fagfólk skipar sveitina og stemningin á sviðinu smitandi. Sigmar bassaleikari svona varla réð við sig í fótafimi og öðru, lifði sig rækilega inn í gáskafullu tónlistina sem hópurinn flutti. Félagar hans stóðu honum vel á sporði og svona á að gera þetta. Allir sem mættir voru fengu það á tilfinninguna að hér væri fólk sem tryði á það sem það væri að gera, nyti þess og væri elskt að því efni sem á borð var borið.

Fyrir hlé komu lög úr ýmsum áttum, m.a. ansi skemmtileg útgáfa á litlu flugunni hans Sigfúsar Halldórssonar. Lögin voru grallarakennd og stuðvæn en einnig melankólísk og falleg. Þjóðlagaþráðurinn var greinilegur, stundum minnti þetta mig á þær sveitir sem voru virkar í Skotlandi er ég bjó þar en þjóðlaga- og alþýðutónlistin þar er vel frammi við, ólíkt því sem gerist hérlendis, því miður. Brek eru á krossferð til að breyta þessu, bæði með spilamennsku og svo hátíðinni Reykjavik Folk Festival sem þau blésu lífi í fyrir ekki svo löngu.

Eftir hlé var platan nýja flutt í heild sinni. Þar er að finna samslátt ólíkra hluta eins og lýst er hér að ofan, sum lögin grípandi og “létt”, sum dumbungslegar fagurballöður, sum marineruð í óræðu þjóðlagakryddi. Þéttleiki bandsins heldur þessu svo öllu saman. Strengir og slagverk á sviði lyftu svo framfærslunni enn frekar.

Glæsilega gert og plötu sótti ég svo til Sigmars vinar míns í lokin. Virkilega vandaður gripur, í glæsiumslagi sem er opnanlegt og allt.

Platan sem slík, sem rúllar nú á fóninum, er auðheyranlega unnin af miklum metnaði. Hljómur framúrskarandi og framvinda góð, jafnvægis á milli ólíkra stíla er gætt og þessi andi sem stafaði af sviðinu í gær er þarna á milli hljóðrásanna líka.

Arnar Eggert Thoroddsen Avatar

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *