—Belgískar jaðarvöfflur—
Staður: Austurbæjarbíó.
Fram komu: dEUS, Ensími.
dEUS er skilgetið afkvæmi mikilla breytinga í popp- og rokktónlist, breytinga sem raungerðust á 10. áratugnum, breytinga sem báru með sér vissa byltingu. Á einni nóttu, eða svo gott sem, var búið að útsetja almenning fyrir skrítinni tónlist og markaþenjandi. Nirvana, Björk, Beck … og dEUS glumdu í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni eins og ekkert væri eðlilegra. Skringilegheitin komu þér á spilunarlista, ekki öfugt.
dEUS ruddist inn í þetta “ástand” sumarið 1994 með laginu “Suds & Soda” og plötur þeirra nutu hylli, upp og niður, í safni pælarans OG Jóa á bolnum. Þetta sá maður í gær í Austurbæjarbíói er sveitin spilaði fyrir Mörlandann, nóg var að skima létt yfir salinn til að sannreyna þessa lýðfræðilegu kenningu.
Ensími hitaði upp og vá, þvílíkt band. Nánast OF þétt sagði ég við konu mína, hvar við börðum hvert fullkomna næntís jaðarrokklagið af öðru augum sem eyrum. Ég viðurkenni að ég var svona la la aðdáandi þegar sveitin reið röftum á sínum tíma en aðdáun mín á bandinu hefur vaxið undanfarin ár og á ég það tónleikum þeirra að þakka. Svalleiki upp á 10 og ég þarf að kaupa mér buxur eins og Hrafn frændi sem er töffari allra tíma.
Belgísku jaðarhetjurnar lötruðu svo inn á svið undir miklu lófataki, stappi og köllum. Tom Barman, leiðari, sem ég var svo heppinn að eiga viðtal við, er náttúrulegur framlínumaður, sjarmerandi, innblásinn og með góða stjórn á allri framvindu. Hann er með blik í augum, glettni þess sem veit hvað hann er að gera og hvernig á að ná því fram. Samstilling í klæðalegum svalleika var hins vegar ekki jafn góð og hjá okkar allra bestu Ensími. Gítarleikarinn norski leit út eins og sautján ára temu-útgáfa af Anthony Kiedis en hann var hins vegar jafnaður út, sem betur fer, af hinum magnaða Klaas Janzoons, hljómborðs- og fiðleikara (og margt annað). En þetta er nú allt í saklausri kímni hjá mér, vindum okkur nú í sjálfa framfærsluna.
Settið var mjög gott og traust, það var byggt á fyrstu tveimur plötunum, Worst Case Scenario og In a Bar, Under the Sea. Á plötunum sýndi dEUS að hún væri langt í frá trukkandi jaðarrokksvél eingöngu, á þeim eru vel tilraunakenndar stemmur, heimsóknir frá anda Tom Waits, progg-popplegar skiptingar og angan af súrkálsrokki, svona m.a., hlutir sem sönnuðu að hér væri ekki tjaldað til einnar nætur. Framvinda var örugg og líka ástríðufull, þetta voru síðustu tónleikarnir í þessari umferð sveitarinnar og það var auka krydd út í gegn, ofsakæti og glens. Janzoons ekki eðlilega flottur, syngjandi trommarinn Stéphane Misseghers glæsilegur sömuleiðis og allir meðlimir fljúgandi. Mikið um samsöng yfir línuna og stemningin smitandi.
Það kom mér á óvart hversu langt dEUS fóru greinilega inn í kviku fólks á sínum tíma. Það var sungið með í flestum lögum af miklum fítonskrafti, eitthvað sem náði hámarki undir blálokin. Hljómsveit sem gestir voru í miklum samhljómi og sátt og sældarlegt samþykki mátti lesa úr fasi Barmans.
Ég heilsaði svo upp á vin minn Tom baksviðs og þar fyllti hann með hægð upp í allt það sem ég hef verið að lýsa. Sjarmerandi sem gefandi, rétt eins og uppi á sviði og í viðtalinu mínu (sjá arnareggert.is). Farsæld dEUS, fram á þennan dag, er engin tilviljun.




Skildu eftir svar