Keflvísk næring í hjarta Hafnarfjarðar

Stundum fer maður á tónleika án þess að búast við neinu, þannig lagað. Þessi eða hinn er að fara að spila og já, við förum og kíkjum á þetta. Ekki að það sé engin eftirvænting en maður er um leið ekki að búast við að kristnast inn í nýja trú. Maður er á milli. Nettur, léttur og komi það sem koma skal.

Það kom mér því nokkuð á óvart – en þægilega – að ég sveif út af 80 ára afmælistónleikum til heiðurs Rúnari Júlíussyni sem haldnir voru í Bæjarbíói, Hafnarfirði, í gær. Synir Rúnars, Baldur og Júlíus stýrðu þar sveit sem ásamt þeim hafði á að skipa nafna Gíslasyni, Guðna Finnssyni og Birki Rafni Gíslasyni.

Þessi mannskapur trukkaði í gegnum mörg af þeim þekktustu lögum sem Rúni Júll kom að í gegnum farsælan feril og líklega var það lát- og hispurleysið í öllu sem byggði undir þá töfra sem mynduðust. Engir gestir á sviðinu, bara fimm manna rokkband sem keyrði í gegnum lögin af sýnilegri ástríðu og gleði. Það var gaman! Á milli laga sagði Baldur, eldri bróðirinn, frá og sýndi fágæta hæfni við að uppistanda, það var vinaleg, næsta heimilisleg, ertni í sögunum og mikið var hlegið að upprifjunum á ýmsum uppákomum sem pabbi þeirra bræðra deildi með mörgum af helstu risum íslenskrar tónlistarsögu. Þetta var fyndið og skemmtilegt en hlýjan og kærleikurinn svo greinilegur á sama tíma.

Á tímabili vorum við stödd á hálfgerðu sveitaballi. Dansað í sætum, “Stolt siglir fleyið mitt” öskursungið, ég og konan fyrir framan mig að fíflast og glettast í hvort öðru. Stuð! Stuð, stuð, stuð!! Þetta var venjulegt, íslenskt, heiðarlegt, gefandi og gaman. Hvorki meira né minna. Og aftur, þar voru töfrarnir. Kannski var líka stuðningur í því að það var enginn ættlaus Reykvíkingur á sviðinu, tveir Keflvíkingar, einn Hafnfirðingur, einn Norðfirðingur og svo einn af Skagaströnd. Segi svona…

Á tjaldi, að baki bandinu, komu myndir af Rúnari, hljómsveitum o.s.frv. Margar mjög fallegar. Endað var á “Það þarf fólk eins og þig”, fyrir uppklapp þ.e., og þá var kominn kökkur í háls flestra. Rúnar dó 63 ára gamall árið 2008, alltof ungur, og nánast uppi á sviði. Baldur sögumaður er einu ári yngri. Verð líka að víkja að því að ég var svo heppinn að kynnast Rúnari í gegnum blaðamannastörfin, upp úr 2000, og ég hef aldrei, fyrr né síðar, kynnst manni með jafn mikinn sjarma og um leið jafn mikla hlýju, sem mætti jafnvel lýsa sem látlausri.

Allri þessari ást var miðlað frábærlega af bræðrunum og meðreiðarsveinum hans í gær og ég segi bara takk fyrir mig! Lifi Geimsteinn (sem fagnar 50 árum í ár) og Rúnar Júlíusson!

Arnar Eggert Thoroddsen Avatar

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *