Deep Jimi – Degeneration

Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 12. september.

Úrkynjun ljúf og góð

Nokkuð góður titillinn á nýjustu plötu Deep Jimi en Degeneration þýðir úrkynjun. Rokkið, er það kom fyrst fram, þótti einmitt bera með sér úrkynjun sem skrumskælingu á öllum þeim gildum sem voru samþykkt sem góð og gild, a.m.k. að mati þeirrar kynslóðar sem með uppeldisvöld fór. Elvis var hins vegar á öðru máli, sem og allir þeir sem hafa hyllt rokkguðina síðan. Þar snúast gildin þvert á móti um framúrkeyrslu, stjórnleysi, óhóf og rugl sem getur svo af sér snilld, gæsahúð og lífsfyllandi fegurð. Deep Jimi-félagar kunna þessa reglubók vel og hafa flett í henni af eftirtektarverðu hamsleysi í gegnum áratugina.

Ég á góða frændur í Keflavík sem eru jafnaldrar Deep Jimi og fylgdist því ágætlega með tilurð sveitarinnar. Hún þróaðist úr sveitinni Pandoru þar sem áttunda-áratugar-skotið rokk var dagskipunin og þannig hefur það verið meira og minna síðan. Fyrsta plata Deep Jimi, Funky ­Dinosaur (1992), kom út hjá bandaríska fyrirtækinu Atco/EastWest og svo hafa komið út þær Seybie Sunsicks Rock’n’Roll Circus (1995), Deep Jimi (2005), Better When We’re Dead (2010) og svo þessi nýja sem var tekin upp í RAK Studios í London. Sveitin er skipuð í dag þeim Sigurði E. Jóhannessyni söngvara, Magnúsi Þór Einarssyni bassaleikara, Júlíusi Frey Guðmundssyni trymbli og Þór Sigurðssyni gítarleikara.

Drífandi framvinda
Platan fer vel af stað, með rokkara sem er svona beint-af-augum-smíð, „Jail“. Drífandi framvinda, ­hvass gítar, þéttur bassi og trommur með og svo þessi einstaka söngrödd ­Sigurðar sem er há og bæði tilfinninga- og blæbrigðarík. Frábær rokksöngvari svo það sé sagt. Teningunum er kastað. „It’s Alright“ inniber sígilt riff sem vísar lóðbeint í áratuginn hvar Led Zeppelin og fleiri áhrifavaldar sveitarinnar fóru mikinn. Svona til að minna á mátt og megin sveitarinnar get ég ímyndað mér. Nokkurs konar hljóðræn standsetning. „Nothing Matters“ lendir í lygnari sjó, spenna ­mögnuð með því að halda aftur af sér fremur en hitt. „Rock’n’Roll (a constant return)“ er líkt og upphafslagið rokk eins og það kemur af kúnni og titillinn væntanlega vísun í þá staðreynd að Deep Jimi-liðar gætu ekki hætt að rokka þó að þeir reyndu það.

Og þannig snýst Degeneration-­kringlan en þess má geta að platan snýst bókstaflega en þetta er fyrsta afurð Deep Jimi sem kemur út á vínilforminu góða. Lögin sem fram undan eru búa svo yfir hinum og þessum rokkhliðum; það er farið hratt, hægt og allt þar á milli. Lokalagið, „Waiting For The World To Shine“, ber hins vegar með sér uppbrot, líður áfram á eins slags raftónlistarmottu þó að rokkið hangi fyrir. Öðruvísi og bara nokk hressandi.

Vel sannfærandi
Samantekið er þetta vel sannfærandi verk frá Deep Jimi og þannig lagað kallar þessi plata ekki á heilmikla greiningu. Þetta er rokk og ról alla leið, framreitt af mönnum sem hafa þjónað rokkinu í nærfellt fjörutíu ár. Ég segi oft í umsögnum um sveitir sem henda í plötur á tíu ára fresti: Hendið endilega í plötur oftar úr því að þetta liggur svona vel fyrir ykkur. Það verður aldrei til nóg af rokki í þessum heimi get ég sagt ykkur.

Arnar Eggert Thoroddsen Avatar

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *