Sjana Rut hefur verið starfandi um nokkra hríð, hefur gefið út slatta af breið- sem smáskífum og ritaði ég um eina slíka fyrir RÚV (Broken, 2021). Before I Fall In Love er bústin og áferðarfögur poppplata, rafskotin og stuðvæn en ballöðurnar eru þarna líka. Fyrri verk Sjönu hafa sum hver borið með sér erfið og djúp umfjöllunarefni, málefni sem hún hefur tæklað af hugrekki bæði og dirfsku en hér er meira ljós og léttleiki getum við sagt þó að dramað gægist fram endrum og eins. Stöndugasta verk verður að segjast og sannfærandi mjög. Ásmundur Jóhannsson snýr tökkum og rennir sleðum og hljómur allur er stórgóður.
Vínylútgáfan er flott. Opnanlegt umslag og ljósmyndin sem það prýðir, og hönnunin öll, eitthvað svo smekkleg og næm. Inni í umslaginu, þegar þú opnar upp á gátt þ.e., er málverk eftir Sjönu og inni, þar sem platan lúrir í “nærbuxunum”, eru tvær litlar ljósmyndir (mismunandi á milli eintaka) og fallegur lítill bæklingur með öllum upplýsingum. Svona á að gera þetta!




Skildu eftir svar