Allt sem hann spilar verður fallegt
“Allt sem hann spilar verður fallegt,” sagði Skúli Sverrisson um vin sinn og samstarfsfélaga Óskar Guðjónsson er kynnir kvöldsins og leiðari, Magnús Jóhann, spurði Skúla út í hann. Svo dæmigert svar frá þessum hógværa, hlédræga meistara sem var heiðraður í kvöld á sextugsafmælinu sínu og því breytt í opnunartónleika hinnar metnaðarfullu hátíðar State of the Art sem Magnús höndlar um ásamt fleirum, meðal annars Bergi Þórissyni sem var uppi á sviði með honum. Kona Skúla, Ólöf Arnalds, var þarna líka og einnig Davíð Þór Jónsson. Eintómir stórsnillingar sumsé (sjálft afmælið er 23. okt. en whatever…)
Staðurinn var Fantasía í Austurstræti og vel var mannað af mektarfólki úr tónlistarlífinu sem öðrum listageirum. Sýndi vel þá djúpu virðingu sem þessi ególausi maður nýtur og hann yrði vafalaust hvumsa ef einhver myndi útskýra fyrir honum þau miklu áhrif sem hann hefur haft á íslenskt tónlistarlíf á sínum magnaða ferli.
Þessi kvintett lék svo lög af ferli Skúla og það af ýmsum toga. Samhljómurinn var fullkominn, segi og skrifa það, og áhrifaríkt að sjá hvað “ungu” strákarnir komu vel inn í þetta allt saman. Unaður á að hlýða. Sum lögin fóru með okkur í annan heim og ég hugsaði um Sigur Rós, Jóhann Jóhannsson, Mark Hollis og þá aðila sem búa yfir slíku súbstansi að manni skortir oft orð til að lýsa áhrifamættinum til fulls. Ég tala stundum að þetta sé eitthvað annað en tónlist, tilgerðarlegt ég veit, en hvað á maður að segja? Í kvöld duttum við oftar en einu sinni í algera galdrastemningu, tíminn stoppaði og spilararnir á sviðinu runnu saman í eitt, týndir í tilfinningunni.
Takk fyrir mig fallegi maður. Allt sem ÞÚ spilar verður fallegt. Og til hamingju með afmælið og það innilega!




Skildu eftir svar