
Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 1. ágúst.
Kolsvart kaffi
Það er búinn að vera heilmikill afli í íslenskum svartmálmi síðustu misseri. Útgáfur af alls kyns toga og hér verður greint frá þeim helstu.
Forsmán, sem stofnuð var 2019 af kornungum þungarokkshnokkum, var að gefa út fyrstu breiðskífuna sína, Brenndar rústir & fuðrandi fjörur undir merki Vesperian sem er ný útgáfa, stofnuð af Philipp Schulte sem var áður hjá Century Media-risanum. Ég er búinn að fylgjast með Forsmán á kantinum nánast frá upphafi og þessi frumburður piltanna er glæstur, annað verður ekki sagt. Sungið á íslensku, og það nokkuð skýrt, þannig að orð sem merking dúndrast inn í börkinn í bland við ofsafenginn svartmálm (svartþungarokk, sorturokk). Sveitin nýtur mikillar virðingar í senunni, reynsluboltar eru hrifnir enda metnaðurinn tilfinnanlegur. Kraftur og ástríða í hverjum tón.
Tempraður ofsi
Sama dag og plata Forsmánar kom út, 26. júní, kom önnur plata Vafurloga út, Gneisti af eldi guðs. Það er hin franska Norma Evangelium Diaboli sem gefur út en um er að ræða hugarfóstur gítarleikarans Þóris Garðarssonar, sem hefur verið þátttakandi í íslensku svartmálmssenunni um langa hríð, í gegnum bönd eins og Svartadauða og Sinmara. Það er reisn yfir þessari plötu, þungt í henni pundið og riffin lykluð og glúrin. Ofsinn er þá tempraðri en t.d. hjá Forsmán og öðrum þeim sveitum sem ég mun nefna hér, áran er mikilúðleg, já, stórbrotin eiginlega. Norðurlandasvartmálmur frá tíunda áratugnum gerir vart við sig á köflum en um leið er ljóst að Þórir er að hefla út sinn eigin persónulega stíl.
Þá kom fyrsta breiðskífa Skurðgoðs, áður Vampíra, út í endaðan maí. Þrjár breiðskífur með þremur gildandi böndum á ca. mánuði, haldiði að það sé nú! Líkt og með Forsmán og Vafurloga er sungið á íslensku og maður heyrir textana, sem er síst gefið í öfgarokksfræðunum. Þegar ófrýnileg orð dynja á manni, svei mér þá, áhrifin eru meiri en ella. Skurðgoð rokka af krafti, það er lúmskt Motörhead í þessu, og þá má heyra – eins og í tilfelli Forsmánar – rík áhrif frá Misþyrmingu sem gaf út tímamótaplötuna Söngvar elds og óreiðu árið 2015, mikið og heilagt gral þegar kemur að íslenskum svartmálmi. Dagur úr þeirri sveit tók þessa plötu upp og einnig kom Albert sjálfur Finnbogason að málum. Almennilegur mannskapur það.
Brjálæðisgír
En hei, það er meira! Myrkviði er tiltölulega ný sveit og stuttskífa kom út í júní síðastliðnum. Myrkviði „svinga“, það er grúv þarna í bland við ofsakeyrsluna og þið takið eftir, öll þessi bönd, svona nánast, spóla áfram í brjálæðisgír, líkt og lappirnar séu fastar á bensíngjöfunum. Harmur heitir platan og lofandi er þetta. Tvö demó komu þá einnig út í ár, Acephalic Apocrypha með Lokabrennu og Svartrokk af Upsaströnd með Finngálkni, kræsilegar kassettur en og fáanlegar á Bandcamp.
Þá gaf Martröð út plötuna Draumsýnir eldsins í desember en síðasta verk, Transmutation of Wounds, kom út 2016. Martröð er samstarfsverkefni Alex Poole (Chaos Moon m.a.) og Hafsteins Viðars (Wormlust, Afsprengi Satans) og hér erum við komin í sýrðari polla, mikið brjálæði og „út-um-allt“-stemning, maður er eiginlega ekki í rónni þegar maður hlustar. Sem er vel! Nexion, sem spilar gróft, bikað dauðarokk („blackened death metal“), gaf út hina frábæru Sundrungu síðasta haust. Ljótukallarokk fyrir allan peninginn og sjálfur slátrarinn, Atli Jarl Martin, á „passanum“ þó hann hafi ekki komið að hljóðritun plötunnar. Í fyrra kom einnig út hin stórgóða Evil is the only way … með Náriðli og Eldur gaf út Proscribed Chronicles of Niðavellir: Rituals of Death and Necromancy.
Mikil virkni
Þegar maður lítur yfir þetta heildstætt er mikið um ofsa og hráleika nema hvort tveggja sé. „Ambient“-skotið, stemningsbundið síðsvartþungarokk að hætti Auðnar eða Sólstafa er í vari eins og er. En helsta fréttin er auðvitað virknin. Ég skal segja ykkur það! Og athugið, ég er eingöngu búinn að fjalla um svartmálm, alls kyns öfgarokksstefnur aðrar lifa sömuleiðis góðu lífi. Ég þakka að lokum Magnúsi Halldóri Pálssyni, Þóri Garðarssyni og Viktori Árna Veigarssyni góð ráð og upplýsingar vegna úttektar þessarar.



Skildu eftir svar