U2: 50 ÁR, 50 LÖG – 3 HLUTI

U2 í afbyggðum, póstmódernískum gír, árið 1993.

Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 19. september.

Fjögur hjörtu, eitt slag

Við höldum áfram að feta okkur niður listann yfir 50 bestu lög U2 og leikar farnir að æsast nokkuð því hér höfum við sæti 20 niður að 11. Tilefni þessa alls er 50 ára afmæli sveitarinnar og eftir viku lokum við upptalningunni, einum degi eftir „afmælisdag“ þeirra Bonos, Adams, Larrys og Edge. Hvaða lög toppa listann?

  1. Numb (af Zooropa, 1993)

Mögulega eitt sérkennilegasta lag U2 og eiga þeir þau þónokkur. The Edge talar á vélrænan hátt út lagið yfir skældum gíturum og raftöktum og framvindan er einkar naumhyggjuleg. Fóstbróðir hans, Bono, syngur svo einhvers konar bakrödd í vel hárri falsettu. Lagið gengur fullkomlega upp og maður var hreinlega stoltur af strákunum, að henda óhikað í hverja maurasýruna á eftir annarri á þessari merku skífu og komast svona glæsilega upp með það.

  1. One Tree Hill (af The Joshua Tree, 1987)

Þetta helmagnaða lag, svo fallegt og svo blítt, líkt og sálmur eiginlega, kom ekki til af góðu. Einn af starfsmönnum U2 og mikill vinur Bonos, Greg Carroll, var að sendast á vélhjóli er hann beið bana í umferðarslysi. Bono sýnir hér og sannar af hverju hann er kallaður einn fremsti rokksöngvari sem uppi hefur verið, sársaukinn sem blæðir í söngnum er sannur, ekta og alla leið. Rosalegt. Laginu lýkur á dramatísku eftirspili sem hnykkir enn frekar á áhrifunum.

  1. Elvis Presley and America (af The Unforgettable Fire, 1984)

Þeir sem þekkja þennan penna vita að tilraunir í tónlist höfða mjög svo mikið til hans. Þetta sex og hálfrar mínútu langa lag er einstakt nokk og nánast furða að það hafi fengið að standa svona. Um leið fellur það eins og flís við rass þeirrar plötu sem í raun réttri gekk út á tilraunir. Hér spinnur Bono texta á staðnum yfir ótrúlegum ættbálkatrommum frá Larry á meðan gítar og bassi magna göróttan seið. Röddin er fjarlæg í hljóðblönduninni og trommurnar minna helst á eitthvað frá Can eða NEU! Miðlæg eru þó mögnuð söngtilþrif frá Bono, eitthvað sem hann hafði hugsað sem prufu en Eno og Lanois námu galdurinn og létu þetta standa.

  1. Rejoice (af October, 1981)

Blátt áfram baráttusöngur af October og í því liggur styrkur lagsins. Þessi ungæðislega löngun sveitarinnar eftir einhverju betra og sannara á þessum tíma kjarnast í þessu ákallslagi. Stórkostlegur gítarleikur frá Edge gefur laginu kraft og liti og það er smekklega brotið upp eftir mínútu tvö, með hringlandi gíturum og trommuslögum áður en því er siglt heim glæsilega með lokaversinu. Mikið uppáhald á þessu heimili.

  1. Boy/Girl (af stuttskífunni Three, 1979)

Ég spila þetta lag gjarnan þegar fólk er eitthvað að efast um pönkinnistæðu okkar manna. Lagið er eingöngu að finna hér, á þessari þriggja laga stuttskífu, og hér er allt sett í fluggír, pönkað af miklum krafti og orku út í gegn. Kaflinn sem hefst á 2:20, hvar Bono ygglir sig og Edge tekur undir sig stökk, er alger gæsahúð og ég man þegar elsku bróðir minn, sem er ekki beint á U2-vagninum, hrökk við er umræddur kafli fór í gang, hrifinn af ofsanum sem þessi uppáhaldssveit stóra bróður hans bjó yfir.

  1. Two Hearts Beat as One (af War, 1983)

Mögulega bláeygðasta smíð drengjanna og aftur, einmitt það gerir smíðina svo heillandi. Boðskapurinn og einlægnin sem túlkuninni fylgir, þetta dansar á mörkum þess að vera næft („barnalegt“) en það er einmitt þetta afdráttarleysi sem kom heimsbyggðinni um borð á sínum tíma. „Is this love out of fashion?“ spyr Bono á einum stað, lína sem undirstrikar að á þessum tíma tóku þeir félagar einlægni og ástríðu fram yfir svalheita-„pósur“ og töffaraskap.

  1. I Still Haven’t Found What I’m Looking For (af The Joshua Tree, 1987)

Þetta lag var upptakturinn að miklum lífsbreytingum hjá mér. Ég hafði vitað af U2, þannig, og tónlist var enn bara einn af þeim hlutum sem ég hafði áhuga á. Um þetta leyti tók hún hins vegar allt yfir. Og það var eitthvað í þessum hringlandi gítarleik The Edge sem fór þráðbeint í hjartað á mér. Ég gat ekki hætt að hugsa um þennan gítarhljóm, gat ekki hætt að hlusta og var að falla djúpt og innilega fyrir þessari hljómsveit. Nokkuð sem átti bara eftir að ágerast.

  1. Promenade (af The Unforgettable Fire, 1984)

Afar djúpt skorið lag sem lokar hlið 1 á meistaraverki sveitarinnar og ég geri mér ekki grein fyrir því hversu vel fólk þekkir það yfirleitt. Enda birtist lagið nánast óforvarandis, læðist eiginlega inn eins og hálfgerður bakþanki. Stemningsríkt, Bono í hugflæði, talandi um kóka kóla, fótbolta og útvarp. Afstrakt og súrrealískt, allt sem snobbaður unglingurinn þurfti á þessum tíma. „I’d like to be around in a spiral staircase to the higher ground.“ Já takk!

  1. Lemon (af Zooropa, 1993)

Þegar maður hélt að sveitin gæti ekki toppað sig á þessari Zooropa-glæsireið er þessu lagi teflt fram. Algerlega frábært lag að öllu leyti, hvort heldur er í uppbyggingu, melódíu eða almennri framreiðslu. Falsettan hans Bonos, bakraddir The Edge og Brians Enos og textalínur eins og „A man makes a car and builds roads to run them on“. Snilld! „Þýskt geimaldardiskó“ sagði einhver og það er ekki sekúndu eytt í óþarfa á þeim tæpu sjö mínútum sem lagið varir.

  1. The Fly (af Achtung Baby, 1991)

Mikilvægasta endurkomulag sveitar síðan Rolling Stones gáfu út „Jumpin’ Jack Flash“ árið 1968. U2 komust í þrot eftir Rattle and Hum en sneru fjórefldir til baka með fyrstu smáskífunni af Achtung Baby, „The Fly“. Nútíminn, raftónlistin, hipphoppið, allt var þetta umfaðmað með eftirtektarverðum hætti í þessu fyrsta útspili endurræsingarinnar miklu. Margir vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið en hljómsveitina hafði sannarlega „dreymt allt upp á nýtt“ eins og Bono sagði svo eftirminnilega 30. desember 1989 á lokatónleikum Lovetown-hljómleikaferðalagsins.

Arnar Eggert Thoroddsen Avatar

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *