U2: 50 ÁR, 50 LÖG – 4 HLUTI

Einn fyrir alla, allir fyrir einn. U2 árið 2026. 

Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 26. september.

Frá dýpstu hjartarótum

Kæru lesendur. Á þessum degi fyrir fimmtíu árum og einum degi betur var írska rokksveitin U2 stofnuð í eldhúsinu hjá Larry Mullen Jr. trymbli. Bandið hét reyndar The Larry Mullen Band í um korter eða allt þar til Bono labbaði inn í eldhúsið. Við höfum verið að fara yfir 50 bestu lög sveitarinnar að mati höfundar í undanförnum sunnudagsblöðum og nú er komið að efstu lögunum tíu. Reytt hár og aðra tilfinningasemi er hægt að senda í netfangið hér að neðan.

  1. Sunday Bloody Sunday (af tónleikaplötunni Under a Blood Red Sky, 1983)

Vafalítið pólitískasta lag U2 og nú vara ég lesendur við, skrifin fram undan verða hlaðin efsta stigi og gífuryrðum enda erum við að nálgast toppinn hvað eina jafnbestu sveit sögunnar varðar. Yrkisefnið stendur Bono og félögum nærri, vísar í Blóðuga sunnudaginn 1972 er fjórtán manns voru myrtir af breska hernum. Þessi tónleikaútgáfa af laginu er rafmögnuð, Bono svo gott sem andsetinn af tilfinningum og sannfæringarþrótti.

  1. October (af October, 1981)

Píanóballaða, hvers fegurð er utan rökræðna. Sigur Rós eða Talk Talk gætu verið stoltar af þessari smíð. Haustlegt yfirbragð, angurvært og melankólískt, og ef við reiknum inn glundroðann sem fylgdi gerð þessarar miklu uppáhaldsplötu kemur það inn eins og líknandi bæn. Bono stendur sína plikt (hvað er ég búinn að segja þetta oft?) og textinn, sem kemur seint og um síðir, einkar hæfandi. „October, and the trees are stripped bare …“

  1. J. Swallo (B-hlið á „Fire“-smáskífunni, 1981)

Ég leik mér stundum að því þegar ég er að þeyta skífum úti í bæ að setja þetta lag á því að enginn tengir það við U2. Fólk heldur helst að þetta sé sjaldgæf b-hlið með Joy Division eða ámóta sveit. Þetta er súrasta lag sem U2 hefur gefið út formlega, takturinn skrítinn, allt mjög afstrakt og listaspírulegt og Bono er greinilega að spinna sönginn. Síðpönksræturnar eru enn við góða heilsu og ef litið er til tímans og leitandi náttúru sveitarinnar akkúrat þarna er þetta útspil í raun fremur eðlilegt. Tilraun, já, en gengur svona ljómandi vel upp líka.

  1. Deep in the Heart (B-hlið á „I Still Haven’t Found What I’m Looking For“-smáskífunni, 1987)

Maður varð hvumsa, hlustandi á b-hliðarnar sem fylgdu Joshua Tree á sínum tíma, gæðin voru svo mikil á þessum lögum öllum. Mér þykir alveg sérstaklega vænt um þetta lag en því fylgir hárréttur skammtur af jaðarkryddi og hráleika, eins og það sé ekki alveg klárt en í guðanna bænum ekki snerta við því eða gera og græja „betur“! Þessi prufuupptökublær („demo“) gefur því nefnilega kraftinn og Bono hittir á mikla töfra í innblásnum söngnum.

  1. New Year’s Day (af War, 1983)

Stórkostlegt lag, alla leið, og ég skrifaði 4.000 orða ritgerð um það í doktorsnáminu í Skotlandi hvar ég einbeitti mér að stunu sem Bono lætur út úr sér á 2:23. Um þetta leyti var nóg af pólitískum söngvum í nestismal sveitarinnar en þessi hittir sérstaklega vel í mark þar sem textinn fangar glæsilega sundrungu og áþján þeirra sem lenda í skotlínum styrjalda og um leið – og kannski sérstaklega – vonina: „Though torn in two / We can be one.“

  1. The Unforgettable Fire (af The Unforgettable Fire, 1984)

Myndbandið er einhvers konar „eitís“-hápunktur, greiðslan á Bono, dramatískur göngutúr um snævi þaktar breiður og kjarnorkusprenging meira að segja. Hér eru menn grafalvarlegir og málsmetandi og ég neyðist til að nota orðið epískt í milljónasta skipti. Glæsismíð, falleg en líka voldug, og bandið er orðið fullorðið. „Pride (In the Name of Love)“, fyrsta smáskífa plötunnar, er yfirburðalag, fangandi rokkari, en hér, á annarri smáskífunni, sóttu þessir ungu menn lokaprófsskírteinið. Þeim voru allir vegir færir núna. „… and if the mountains should crumble,“ eins og Bono kvað, kinnroðalaust.

  1. Gloria (af October, 1981)

„Oh lord, if I had anything / Anything at all / I’d give it to you“. Eins og ég varaði ykkur við, í þessum pistli er allt ótrúlegt, frábært, epískt og dramatískt. Efasemdir um trúna og reyndar hreinar og beinar trúarjátningar líka stýra för á October, þessari erfiðu plötu, og teningunum er hvergi kastað fastar en í upphafslaginu þar sem dugar ekkert minna en ritningarlestur á latínu. Lagið sjálft og flutningur þess er heldur ekkert slor, gæsahúðin sprettur auðveldlega fram eins og svo oft í tilfelli þessarar yndissveitar.

  1. Where the Streets Have No Name ( af The Joshua Tree, 1987)

Þetta er lagið sem gerði mig að því sem ég er. Að heyra það, og sjá meðfylgjandi myndband, olli því að hausinn á mér sprakk. Fram að þessu hafði tónlist bara verið þarna meira og minna, sumt fínt, annað ekki. Eftir þessi vatnaskil hugsaði ég ekki um neitt annað og í raun hefur lítið breyst síðan. Ef við förum í opnunarlagafræðin eru fá lög sem komast nálægt þessu. Stærðin, framvindan, epíkin og fyrsta lagið á einni rosalegustu rokkplötu allra tíma, maður þarf að vera úr steini eigi maður ekki að kippast við þegar þessi ógurlegheit skella á manni.

  1. Love Comes Tumbling (B-hlið á „The Unforgettable Fire“-smáskífunni, 1984)

Þetta lag er einstakt í útgáfusögu U2 og ekki líkt neinu öðru sem hún hefur gert. Bono svo rólegur og svalur eitthvað, syngur lægra en venjulega, og með hömlur á dramanu aldrei þessu vant. Værð yfir honum. Lagið er naumhyggjulegt, í sama takti og flæði út í gegn, losaralegur „ambient“-bragur og maður finnur vel fyrir Eno. Glitrandi gítar Edge er magnaður en bassaleikur Adams er kremið. Flæðir áfram, upp bæði og niður, algerlega yndislegur. Stígandin upp úr 3:30, leidd af Edge, er svakaleg. Lagið allt í dásamlegu flæði og allir í náttúrulegum samhljóm. Tónlist bara gerist ekki betri en þetta.

  1. Bad (af The Unforgettable Fire, 1984)

Ég vissi, þegar ég heyrði þetta lag fyrst ca. 14 ára, að hér væri eitthvað dýpra og meira en gengur og gerist í „venjulegu“ U2-lagi. Aldrei hefur lönguninni og þránni gagnvart því að ástvini farnist vel verið miðlað á jafn áhrifaríkan hátt og í þessum magnþrungna texta Bono: „If you twist and turn away / If you tear yourself in two again.“ Og: „If I could through myself / Set your spirit free, I’d lead your heart away.“ Ástin er alger. Tónlistin, með sinni uppbyggingu, strengjum og gítarleik Edge (og öllu hinu), fellur fullkomlega að hreinni, beinni og endalaust ástríðufullri túlkun okkar allra besta. Í dramatísku lokaákallinu gerist tvennt, það er yrðing á því hvernig farsælu lífi er best lifað en um leið kjarnar það hver Bono er og hvernig hann, maður með taugakerfið utan á sér, ber sig. „I’m wide awake / I’m not sleeping.“ Tárin hrundu á meðan ég skrifaði þessa stuttu málsgrein því að þetta er ekki tónlist. Þetta er eitthvað allt annað.

Arnar Eggert Thoroddsen Avatar

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *