dEUS

Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 19. september.

Hljómsveitir eiga að springa í loft upp

  • Belgíska hljómsveitin dEUS heldur tónleika í Austurbæjarbíóí föstudaginn 2. október
  • Tónleikarnir hluti af tónleikaferð sem ber heitið Worst Case Versus In A Bar
  • Ensími hitar upp

„Hvað heitirðu?“ segir Tom Barman, leiðtogi belgísku hljómsveitarinnar dEUS, stuttu eftir að viðtal þetta – sem fer í gegnum Google Meet – er farið í gang. „Arnar,“ segi ég og bíð eftir þessu venjulega „Artnar?“ eða „geturðu endurtekið þetta?“ en Tom svarar um hæl: „Arnar.“ Hann sér hversu hissa ég er og svarar glettinn: „Ég er hálfnorskur, sjáðu til.“

Ástæða spjallsins eru tónleikar dEUS á Íslandi 2. október kl. 20 í Austurbæjarbíó hvar fyrstu tvær plötur sveitarinnar, Worst Case Scenario (1994) og In a Bar, Under the Sea (1996), verða grunnur efnisskrárinnar. Hljómsveitin sló annars óforvarandis í gegn með laginu „Suds & Soda“ sumarið 1994, gríðarlega öflugt nýbylgjurokk sem kallaði fram sveitir eins og Breeders, Pixies, Pavement, jafnvel Sykurmolana. Sveitin hefur notið vinsælda sem virðingar síðan og meðlimir eru miklar hetjur í „litlu“ Belgíu, sem Tom ber saman við Ísland í þessu tuttugu mínútna yndisspjalli hvar hann fer á kostum; ástríðufullur, fyndinn, orkuríkur og með allt gjörsamlega á hreinu, með sígó í annarri og bjór í hinni. Gullkornin toppuðu Mugison á köflum og er þá langt til jafnað.

Snöfurmannleg vinnubrögð
Tom segir að dEUS hafi leikið síðast á Íslandi 2006 og felur andlitið í höndum sér þegar hann fattar að það var fyrir tuttugu árum. Hann hlær, er á iði og gengur reglulega um. Rokkari alla leið, helsvalur, og ég ligg á bæn um að ég verði eitthvað í námunda við hann í holningu er ég fer að reskjast almennilega.

Tom segir mér að þeir félagar séu að klára nýja plötu sem komi út á næsta ári en síðasta plata kom út 2023. Ég hrósa honum fyrir snöfurmannleg vinnubrögð, fjögur ár á milli platna telst gott í dag og hann samþykkir með semingi. Hristir svo hausinn. „Mér fannst það ekki góð hugmynd að láta líða tíu ár á milli platna (2012-2023) og ætla svo að gera það aftur!“ Tom er óðamála. „Þannig að við erum meira á tánum núna. Og næsta plata verður „skítug“, mjög skítug reyndar!“

Tom Barman er maður eigi einhamur, er alger fjöllistamaður, gerir kvikmyndir, tekur ljósmyndir, rekur dEUS, djasssveitina TaxiWars og raftónlistarverkefnið Magnus. Af hverju er hann uppi um alla listræna veggi? Hann verður hugsi og segist ekki hafa velt þessu almennilega fyrir sér. „Góð spurning. Ég er mjög áhugasamur maður og eirðarlaus. Allt sem ég geri blæðir líka hvað inn í annað. Við erum með marga hatta hér í Belgíu, ekki ósvipað og þið á Íslandi.“

„Við vorum ungir“
Aðspurður hvort sveitin hafi verið hissa á þessum skyndilegu vinsældum snarar Tom út glæsilegu svari: „Við vorum alltof hrokafullir til að vera hissa (brosir). Við vorum ungir og fannst þetta sjálfsagt mál. Við vorum í raun önnur bylgjan af evrópskum/skandinavískum böndum sem komst í gegn, Sykurmolarnir tilheyrðu þeirri fyrstu (og hér sýnir hann þónokkra poppfræðilega kænsku). En við vorum til í þetta, okkur langaði í þetta.“

Tom er kominn á flug og rifjar upp að Klaas Janzoons fiðluleikari hafi ekki vitað af tilvist Velvet Underground þegar þeir byrjuðu. „Eitt ráð sem ég gef ungum böndum, þegar ég kemst í þá aðstöðu að gefa einhver ráð, er að hafa alltaf a.m.k. einn í hljómsveitinni sem veit ekkert um tónlist.“

Ég tefli því fram að það hafi aldrei verið mikil hætta á að bandið myndi springa en Tom stoppar mig. „Hvað meinarðu? Það er í DNA hljómsveita að springa í loft upp. Ekki treysta hljómsveitum sem gera það ekki,“ segir Tom og hlær. Hann segist stoltur af plötunum sem þeir ætla að spila á Íslandi. „Ég var svo ungur en þær standa vel. Þetta er enn ferskt og hefur staðist tímans tönn.“

Og nýja platan var létt í vinnslu segir hann. „Við erum frjálsir til að skapa og það er ekkert betra en það. Ef þú ert í hljómsveit sem er ekki að selja tvö hundruð milljónir eintaka af plötum þá ertu í mjög góðum málum. Þá getur þú gert nákvæmlega það sem þér sýnist.“

Þess má að lokum geta að miðar fást á midix.is.

Arnar Eggert Thoroddsen Avatar

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *