Kyle Cassidy

Rak í rogastans þegar ég sá að John Carpenter myndi flytja tónlist sína í fyrsta sinn á Íslandi og það á ATP. Magnað. Þetta Íslandsdæmi allt er ekki einleikið. Ég var hættur að þola þetta rétt áður en ég fór til Skotlands en nú dýrka ég þetta…

Lízt annars þrusuvel á ATP og ég læt fylgja með ítarlega fréttatilkynningu um þetta stórmerka mál.

sjáumst á (bíó)tónleikum!

***

Tónlistarhátíðin ATP á Íslandi tilkynnir með stolti John Carpenter í fyrsta sinn á tónleikum á Ásbrú 2016.  Ótrúlegt en satt en þetta verður í fyrsta sinn í sögunni þar sem John Carpenter flytur tónlist sína opinberlega og í eigin persónu.

Bandaríska tónskáldið og leikstjórinn John Carpenter kemur til með að leika mörg af sínum þekktustu verkum ásamt lögum af nýju plötunni sinniLost Themes auk nýrra tónverka.

Þetta er í fyrsta sinn sem hinn goðsagnakenndi tónlistarmaður og leikstjóri John Carpenter kemur fram á tónleikum til að flytja tónlist sína. ATP er að springa úr stolti og gleði yfir því að þessi einstaki viðburður eigi sér stað á Ásbrú í byrjun júlí á næsta ári. Þetta kemur til með að verða söguleg stund sem vekja mun áhuga meðal tónlistar- og kvikmyndafólks um heim allan enda viðburður sem enginn má missa af.

Gefum stofnanda ATP Barry Hogan orðið: „We are incredibly honoured to present the first ever show by this legendary filmmaker and composer. Having had the opportunity to present the maestro Ennio Morricone twice in recent years, it has been a burning ambition of ours to also present John Carpenter, who is both a pioneer and a huge influence on us and so many great musicians and filmmakers that we work with. You’d be fucking crazy to miss this.

John Carpenter er brautryðjandi þegar kemur að tónlist og kvikmyndum. Hann hefur samið tónlist við eigin kvikmyndir en um leið gert nokkur eftirminnilegustu kvikmyndaskor sem samin hafa verið fyrir spennu- og hryllingsmyndir. Nefna má myndir eins og Dark Star (1974), Assault on Precinct 13 (1976), Halloween (1978), The Fog (1980), Escape from New York (1981), Christine (1983), Starman (1984), Big Trouble in Little China (1986), Prince of Darkness (1987) og They Live (1988) sem dæmi um það.

Kvikmyndatónlist Carpenters er þeim gæðum gædd að hún lifir góðu lífi fyrir utan bíósalinn. Það má auðveldlega fjarlægja hana úr kvikmyndunum sem hún fylgir og njóta áfram. Áhrif tónlistarinnar eru slík. Kaldur hljómur endurtekninga og rafmögnuð tónlistin hrífa hlustandann með sér í ferðalag um undraheima fulla af fegurð en líka ævintýra, tryllings og spennu. Það er nánast ómögulegt að hugsa sér kvikmyndaáhugafólk sem ekki þekkir hljóðheim John Caprenters því hann er í einu orði sagt einstakur. Nægir að nefna tónlistina úr Halloween því til sönnunar.

Í febrúar síðastliðnum sendi John Carpenter frá sér sína fyrstu plötu á löngum ferli sem saman stendur af nýjum tónsmíðum og lögum sem ekki eru saman sérstaklega fyrir bíómyndir. Platan Lost Themes, gefin út hjá Sacred Bones Records, hefur fengið einróma lof gagnrýnenda en hún hefur einnig komist inn á vinsældarlista bæði í Bretlandi og í Bandaríkjunum. Lost Themes hljóðritaði John Carpenter með syni sínum CodyCarpenter og Daniel Davies en þeir munu koma fram á tónleikunum á Íslandi ásamt tónskáldinu auk hljómsveitar og tilkomumikillar sviðssetningar.

JohnCarpenter „Vortex“ af plötunni Lost Themes (2015) – YouTube

John Carpenter „Night“ af plötunni Lost Themes (2015) – YouTube

The Essential John Carpenter Film Music Collection – YouTube

Tilkynnt verður um fleiri listamenn síðar en ATP á Íslandi er líkt og áður haldið á Ásbrú í Keflavík. Boðið er upp á tónlist á tveimur sviðum innandyra auk þess sem sýndar verða sérvaldar kvikmyndir, keppt í PopQuiz, dansað við dj-tóna í diskósal og margt fleira. Meðal listamanna sem komið hafa fram á ATP á Íslandi síðustu þrjú ár má nefna Nick Cave and the Bad Seeds, Portishead, Iggy Pop, Neil Young & Crazy Horse og Public Enemy.

Miðasala er á ATP 2016 : Hér og Hér

ATP á Íslandi 2016 frekari upplýsingar um ATP má finna hér en svo má fylgjast með hátíðinni á Facebook, Twitter og á Instagram.

„Expectations met, exceeded and transcended, it brings the curtain down on this writer’s festival experience, a likeminded mecca in which spectacular weight and sublime restraint went hand in hand.“
-The Line of Best Fit, July 2015

„This weekend was without a doubt the best music festival I’ve ever been to“,
-KEXP, 2014

 

Tagged with:
 

One Response to John Carpenter heldur tónleika í fyrsta sinn … og það á ATP á Íslandi!!!

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Set your Twitter account name in your settings to use the TwitterBar Section.
Follow

Get every new post on this blog delivered to your Inbox.

Join other followers: