Þríeind Þau Ása, Eir og Fönn skipa Ateriu. — Ljósmynd/Lilja Birgisdóttir

Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 16. október, 2021.

Horft fram í gráðið

Platan Andvari (and_vari) er fyrsta breiðskífa Ateriu, sveitar sem sigraði eftirminnilega í Músíktilraunum árið 2018.

Sigursveitin, Ateria, var þá framúrskarandi. Kornungir krakkar með tónlist sem hljómaði eins og Faith með Cure, síuð í gegnum þjóðlagastemmur Þursa. Kryddað smekklega með unglingasalti. Lögin voru drungaleg, einföld og hæg en héldu athygli allan tímann. Alveg séríslensk „Hættu að gráta Hringaná“-stemning yfir. Krakkarnir léku á ýmis hljóðfæri og sýndu metnað, dug og þor, voru skapandi og prófuðu sig óhikað áfram … Maður fann það að þessi sveit á aðeins eftir að vaxa. Efniviðurinn er þarna (persónulegar glósur frá 2018, með smá breytingum).“

Já, Ateria sýndi og sannaði vorið 2018 að þarna var kominn framtíðarmannskapur. Útgáfa hefur hins vegar látið bíða eftir sér og ég fagna því að geta loks sett eitthvað formlegt niður um hana. Sveitarfólk hefur reyndar stússast í kringum tónlistargyðjuna óslitið, Ása Önnu Ólafsdóttir hefur starfað sem Asalaus og yngra systkini hennar, Eir, er hluti af Dymbrá-flokknum. Þriðja liðskonan er svo frænkan Fönn Fannarsdóttir.

Hluti af verðlaununum fyrir Músíktilraunasigurinn voru tuttugu upptökutímar í Sundlauginni en bandið sá að það dugði ekki til og skiptust þau því á að „þrífa hljóðverið svo vikum skipti til þess að vinna sér inn nægan tíma til að hægt væri að taka upp heila plötu,“ eins og segir í frétt á albumm.is.

En hvernig er svo platan? Hún hefst á „Intró“, eðlilega, og heyra má í margvíslegum hljóðfærum eins og í fjarska. Strengir, ásláttur, söngur/org. Dulúðin stýrir málum en verkið er knýjandi um leið. „Afleiðingar“ hefst með gítarslætti áður en vel feitar bassalínur og trommur koma inn. Eir syngur og gerir upp tilfinningar gagnvart hræðilegum kennara sem hán umgekkst á Spáni eitt sinn. Lagið er sjö og hálf mínúta og einkennist af stígandi, það er spenna í því sem stigmagnast með hverri mínútu. Sargandi, öskrandi gítarar (eða eitthvað annað) endar lagið. Þetta er hálfgert síðrokk og andinn góður. Flott, glúrin hljóðvinnsla hér á ferð. „Ein“ viðheldur þessari stemningu. Líkt og á Músíktilraunum, það er gert út á gotneskan blæ, ýjað að þjóðlögum og öllu haldið sæmilega drungalegu og strípuðu. Einfaldur, drynjandi bassi enn og aftur í bland við gítarstrokur og varlegan áslátt. Söngurinn er angistarfullur og textinn eins og og upp úr myrkum húslestri á Hornströndum seint á sextándu öld. En sjá! Síðustu eina og hálfa mínútuna er skipt um gír, ljósgeislar streyma inn og fallegur samsöngur leiðir lagið út. Aftur, flott stílisering/útsetning. „Órói“ hefst á hálfgerðum spænskum gítarslætti finnst manni en undirtónninn er sem fyrr, bæði þjóðlegur og myrkur. Og alltaf þessi spenna, þessi knýjandi bragur. Þetta er gamalt lag og var flutt á Músíktilraunum. „Bródolía“ einkennist af fallegu gítarspili og inniheldur heimsósómakvæði sem fólk semur á unglingsárum. Selló styður við þessa lágstemmdu smíð sem gengur vel upp. „Landbrot“ er og lag úr sarpinum og hefur verið til allar götur síðan 2018. Sker sig eilítið frá öðrum lögum hér þar sem hlaðið er í klassískt rokk-riff að hætti Zeppelin. Ekki einu sinni, heldur tvisvar! Titillinn „Vituð ér enn, eða hvað“ gefur svo til kynna „nördismann“ sem Eir hefur gengist kinnroðalaust við. „Saga fyrrverandi verðandi fiðrildis“, endalagið, er lag sem mér þykir vænt um, var lokalag sveitarinnar á Músíktilraunum og hápunkturinn. Lagið fellur engu að síður nokkuð illa við heildarmyndina á plötunni en ég held ég skilji þá ákvörðun að leyfa því að fljóta með. Þegar heildarmyndin er skoðuð hanga fimm fyrstu lögin sterk saman tematískt, það er þráður þar og þetta eru sterk lög öll sem eitt. Óvenjuleg á margan hátt og gefa til kynna djörfung og dug. Hæfileikar þessa tríós mega enda vera öllum ljósir núna og megi því farnast vel á vegum tónlistarinnar í framtíðinni, hvernig svo sem það kýs að feta hann.

Tagged with:
 

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Set your Twitter account name in your settings to use the TwitterBar Section.
Follow

Get every new post on this blog delivered to your Inbox.

Join other followers: