Alltaf að Frosti Jónsson er Bistro Boy.

Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 28. mars.

Sveitapiltsins draumur

    Frosti nokkur Jónsson kallar sig Bistro Boy og gefur út raftónlist undir því heiti. Frosti höndlar og um Möller Records-útgáfuna, eina af mikilvirkari raftónlistarútgáfum landsins. Sem Bistro Boy hefur hann gefið út fjölda platna, sumar í samstarfi við aðra en flestar upp á eigin spýtur. Fyrsta eiginlega sólóplatan, og þá undir nafninu Bistro Boy, kom út 2012 og ber heitið Sólheimar en nýjasta platan, Rural, verður gerð að umtalsefni hér en hún kom út síðasta haust. Frosti, sem er píanóleikari að mennt, hefur iðkað tónlistina frá barnsaldri að heita og það hefur verið fróðlegt að fylgjast með vexti hans innan raftónlistargeirans undanfarna áratugi því að sú starfsemi var hafin löngu fyrir útgáfu Sólheima.

    Nostalgískt ferðalag
    Á Bandcamp-setri Bistro Boy er plötunni Rural lýst sem svo að hún búi yfir töktum sem og minningum frá lífi á landsbyggðinni. Hún fagni jafnframt þeim stöðum sem móti okkur sem manneskjur í gegnum tíðina. Auk þess segir að um nostalgískt ferðalag sé að ræða, platan sé tónbundin könnun á vináttu, ævintýrum og sjálfsuppgötvunum. Lagasmíðar eru allar eftir Frosta sem einnig upptökustýrir, hljóðblandar og hljómjafnar. Maša Tomc leikur síðan á selló í laginu „Lakes“. Ljóst er að platan stendur æði nálægt hjarta Frosta og hann ritar, á nefndu setri, að hún sé nokkurs konar ástarbréf. Hann nefnir Árna, Árna Grétar sem vann með honum í Möller, og lagið „You Are My Friend“ er tileinkað honum, þótt Frosti nefni það bara óbeint. Hann þakkar einnig þeim Jóhanni (Ástusyni) og Antoni (Kaldal), samstarfsmönnum í raftónlistinni til áratuga.

    Ýmsir vinklar
    Sem Bistro Boy hefur Frosti snert á ýmsum vinklum raftónlistarinnar á gifturíkum ferli, stundum verið vel „ambient“ á því og leyft eyrnanuddandi stemmum að ráða en hann hefur líka brugðið undir sig klúbbafætinum og keyrt dansvæna takta í rauðabotn. Á Rural fer hann dálítið bil beggja, er að hugsa um lagasmíðar sem og stemmur og málar mismunandi myndir út í gegn. Þessar ljúfu, umfaðmandi hljóðmottur sem hann nýtir í „ambient“-hlutann og eru strax greinanlegar sem hans, stíllinn er það persónulegur, eru þarna en meðfram þeim er tám dýft í teknó sem tripphopp. Sjá t.d. „Red River“, epískt að hætti Vangelis en um leið rúllandi um í tripphopp-fljóti sem kallar fram ýmsa meistara á því sviði, þegar sú stefna reið röftum um aldamótin ca. Hljómur út í gegn er bæði þekkilegur og sannfærandi og einkar heilsteyptur. Og já, hjartað tekur örlítinn kipp þegar „You Are My Friend“ rennur fallega úr hátölurunum, fallega eins og maðurinn sem það fjallar um, meistara Árna „Futuregrapher“ Grétar.

    Kíkt á klakann
    Frosti er búsettur erlendis en kíkir á klakann reglulega og spilaði meðal annars í Lucky Records fyrir stuttu. Af myndum frá viðburðinum mátti greina marga höfuðsnillinga úr íslensku raftónlistarsenunni, Skurken og fleiri, og glatt var á hjalla. Frosti heldur utan um Möller Records og er einn þeirra sem sjá til þess að þessi angi íslenskrar dægurtónlistar sé nærður, skárra væri það nú, en Möller-liðar sjá lengra og skilja mikilvægi þess að búa til vettvang og skjól fyrir þessa gerð tónlistarsköpunar.

    Tagged with:
     

    Leave a Reply

    Your email address will not be published. Required fields are marked *

    This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

    Set your Twitter account name in your settings to use the TwitterBar Section.
    Follow

    Get every new post on this blog delivered to your Inbox.

    Join other followers: