Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 16. maí.
Hver er þessi Bubbi Morthens?
Hann er æði athyglisverður, titillinn á nýju Bubbaplötunni. Ég er ekki sá sem þú heldur ég er sá sem ég er. Nóg af ég-um! Það eru líklega fáir núlifandi Íslendingar sem hafa ekki skoðun á Bubba, hann er dýrkaður, hataður og allt þar á milli. Það er lúmsk sjálfstæðisyfirlýsing þarna, fólk sér ákveðinn Bubba en eðlilega er hann með alls kyns þversagnarkenndar hliðar sem rísa og hníga í takt við sjávarföllin. Rétt eins og hjá okkur, hinum dauðlegu. Við erum þau sem við erum og það þarf ekki að vera nein stórkostleg dýpt á bak við þá greiningu.
Stóreflisbragur
Platan er unnin með Halldóri „Fjallabróður“ Gunnari og er nokk fjölskrúðug að innihaldi. Bubbi gerir þetta, stundum eru stíf konsept að baki plötunum hans en stundum er einfaldlega hrært í safn laga og hallar þessi plata vel í þá átt. Platan opnar með „Júlíkvöldi“, snotur smíð hvar Diljá syngur með honum. Einfalt og þekkilegt lag en hver kann þá list betur að semja einföld en um leið snilldarlega rík lög en einmitt Bubbi Morthens? Þrír hljómar en alltaf einn galdrahljómur til sem við sjáum hvorki né heyrum í. „Ég er tilbúinn“ er hins vegar stórt og strengjadrifið. Nuddast utan í sálartónlist og dálítið kvikmyndalegt. „Bláu ljósin“ er sömuleiðis með stóreflisbrag, voldugur eitís-svuntuþeysir og bumbandi trommuslög er á meðal þess sem fram er dregið.
Fjölskrúðug plata sagði ég og fjölskrúðug er hún. Frikki Dór kemur með poppnæmnina í laginu „Hún“ og í því lagi er þessi auðgreinanlegi Bubbastíll eins og í flestum lögunum hérna og breytir þá engu af hvaða toga þau eru. Einfalt á yfirborðinu en margslungið neðan þilja. Saman tekið er platan aðgengileg sem áhlýðileg, líka þegar rokkað er af krafti, eins og í „Sagt vildi ég hafa“, þar sem Jens Hansson lúðurþeytari þeytir sinn lúður af fítonskrafti. Eða þá í bylmingsrokkaranum „24 tímar“ þar sem hækkað er upp í ellefu. Bubbi hefur tekið rökkrið föstum tökum (sjá Ljós og skugga t.d.) og hann sendir reglulega frá sér átta mínútna þyngslaópusa en á þessari plötu skín dagsbirtan í gegn, jafnvel þótt tekið sé á erfiðum málum.
Ylur í hjarta
Ballöður fallegar eru hér einnig („Við föllum“) og oft er dýrt kveðið en fáir samtímalistamenn eru jafn duglegir að stinga á kýlum og Bubbi, tæplega sjötugur maðurinn. „Allar systur mínar“ er ort til kvenna og kúgunarinnar sem þær þurfa að sæta. Bubbi nefnir í laginu að hann eigi fjórar dætur og Kirkjukór Grafarvogs og Hinsegin kórinn taka undir. Magnað.
Að fá nýja Bubbaplötu í eyrun er eins og að fá gamlan og góðan vin í heimsókn. Þú ert glaður að sjá hann. Hann segir þér nýjar sögur og þú hlustar með eftirtekt. Hann segir þér sögur sem hann hefur margsagt áður en þér finnst gott að heyra þær líka. Hann kveður svo, þú ert með yl í hjarta og ert meira en til í að hann kíki aftur við.
Sungið, spilað og ort
Einstök lög á Bubbaplötum skipta minna máli en heildarmyndin í dag. Að heyra í honum syngja, spila og yrkja, miðla sinni list og spenna þá taug fyrir okkur skiptir öllu máli, hækkanir og brýr í einstökum lögum skipta engu í því samhengi. Tónlistarfólk sem plægir sinn akur af elju jafnt sem einurð í áratugi verður hægt og bítandi að einhverju heildstæðu í huga aðdáenda sem hlustenda, vaxa upp yfir það að vera bara einstaklingar sem setja saman lög, slá á strengi og þenja raddbönd. Þetta verða lifandi goðsagnir sem samanstanda af alls kyns þáttum sem einhverra hluta vegna heilla okkur. Þær eru m.ö.o. þær sem þær eru. Elvis, Springsteen, Joni o.s.frv. Bubbi sagði í nýlegu kynningarmyndbandi að hann væri bara venjulegur bolur. Ég er hræddur um að það sé ekki alveg svo einfalt.




Skildu eftir svar