Hreina satt Kórinn Hverafuglar opnaði hátíðina, „söng af hjartans lyst og fallegra verður það bara ekki“. — Ljósmynd/Rakel Ýr Stefánsdóttir.

Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, fimmtudaginn 2. júlí.

Fagurt galaði fuglinn sá …

Það var Blómaborg í Hveragerði sem var vettvangur formlegrar setningar tónlistarhátíðarinnar Hverafugls síðasta föstudag en hátíðin fór fram þá um helgina. Kórinn Hverafuglar reið þar glæsilega á vaðið með hetjulegum alþýðubrag, söng af hjartans lyst og fallegra verður það bara ekki. Þessi hreina sköpun, sem rennur upp úr áhugafólki, er bara eitthvað annað og undirritaður er mjög svag fyrir slíku. Tónninn var sannarlega settur fyrir komandi daga.

Um kvöldið voru svo tónleikar í Grunnskóla Hveragerðis hvar CAPUT flutti verkið Stokkseyri eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson, innfæddan Hvergerðing. Guðni Franzson stýrði og Svanlaug Jóhannsdóttir mezzosópran söng ljóð Ísaks Harðarsonar sem verkið byggist á. Einnig hljómuðu verk eftir nemendur Hróðmars, þ.m.t. verk eftir Snorra Hallgrímsson sem var frumflutt (fallegt, blítt, sefandi og sterkt verk). Stokkseyri var annars æði og Svanlaug frábær, mikið
„teater“ í henni og innlifun.

Fegurð um allt
Fyrstu tónleikar laugardagsins voru í Hveragerðiskirkju þar sem Jónas Sig, Pétur Nói og Halldór Smárason komu fram. Vermandi að sjá vin minn, Jónas Sig, í elementinu sínu uppi við altarið þar sem hann zenaði frá sér lögum eins og að drekka vatn. Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir söngkona og Björg Brjánsdóttir flautuleikari fóru síðan á kostum í ljóðagjörningi í Listasafni Árnesinga sem lagði út af ljóðum Elísabetar Jökulsdóttur. Flott framkoma og framsetning og andagiftin mikil í þeim báðum.

Þetta var reyndar alger ævintýradagur og þegar ég fann mig í Bananahúsinu, gróðurhúsi Garðyrkjuskólans á Reykjum, skildi ég í botn hversu glúrin vinna það er sem listrænt teymi hátíðarinnar, þau Lilja María Ásmundsdóttir, Halldór Smárason og Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir, hefur verið að inna af hendi. Þegar hljóðlistaverk/hljóðinnsetning eftir Ingibjörgu og Kristófer Rodríguez Svönuson glumdi þarna á milli bananaplantna og annars exótísks gróðurs voru fjölskrúðugheit hátíðarinnar stimpluð inn svo um munar!

Degi lauk svo með sérdeilis mögnuðum tónleikum í kirkjunni hvar Heiða Árnadóttir, ein af mínum allra uppáhalds söngkonum, léði verki Maríu Lilju Ásmundsóttir, áttir, töfra sína. Lilja bjó til hljóðheim sem dansar glæsilega á mörkum hins skuggalega og fagra, andrúmsloftið magnað og göldrum líkast. Eitthvað „x“ sem ekki er hægt að orða almennilega … meistaralega gert!

Gárandi snilld
Sundlaugin Laugaskarði, sem ég elska jafn mikið og Laugarásbíó, bauð upp á Strokkvartettinn Sigga og lék hann uppi á svölum, frammi við laugina. Flestir áheyrendur flatmöguðu í „liggju“-lauginni og nutu. Ný verk eftir Unu Sveinbjarnardóttur (Vatnasvíta) og Halldór Smárason (Flot) voru flutt, heiti þeirra í kórréttu samhengi við viðburðinn og einnig var verk eftir Brooklyn-skáldið Ellis Ludwig-Leone leikið.

Eftir þetta var haldið í Listasafn Árnesinga hvar KIMI Ensemble lék fyrir fullum sal. Verk eftir Pranav Ranjit og Sunnu Gunnlaugs voru leikin og einnig sönglög eftir Ingunni Bjarnadóttur. KIMI ferðast um ytri mörk hljómlistarinnar og það með glans, algerlega magnað að fylgjast með spilamennskunni og hversu fjölbreytt efnisskráin var (lýsandi fyrir hátíðina alla reyndar). Sönglögin voru alþýðleg, þjóðleg og ægifögur á meðan verk Ranjit bauð upp á höfrungahlaup í túlkun og KIMI klikkaði ekki, skilaði rennireið sem fékk mig á bríkina þó að sumir klóruðu sér í kolli.

Leitt til lykta
Lokatónn hátíðarinnar var svo sleginn í Leikhúsi Hvergerðinga af Melchior, hinni eðlu kammerpoppsveit. Hvergerðingurinn Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson er í bandinu og hringnum því lokað með þessum tónleikum. Melchior-liðar voru í miklu stuði, Karl Roth og Hilmar Oddsson grínuðu og grölluðu og spilamennskan hispurslaus og glaðvær, gamlir vinir að kallast á og vera saman í gegnum töfra tónlistarinnar. Kynngikraftur hennar, það sem öll hátíðin eðlilega snerist um, var rétt einu sinni undirstrikaður þarna í sneisafullu húsi leikfélagsins. Megi Hverafuglinn fljúga frjáls um ókomna tíð!

Tagged with:
 

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Set your Twitter account name in your settings to use the TwitterBar Section.
Follow

Get every new post on this blog delivered to your Inbox.

Join other followers: