Tónleikadómur: Helgi og Hljóðfæraleikararnir á Græna hattinum, 16.06.2026

Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 20. júní.
Barist við brúna …
Gobbedí gobbedí gobb,“ kyrjar slánalegur töffari á bak við hljóðnema á sviði Græna hattsins á Akureyri, kvöldið fyrir þjóðhátíðardag. Hann er eins og blanda af Jim Morrison, stórbónda frá 19. öld og hetju úr bók eftir Astrid Lindgren. Sjarminn sem af honum stafar er ofboðslegur og fyllir út í öll skot þessa frábæra tónlistarstaðar sem Haukur Tryggvason rekur af miklum myndarbrag. Reyndar kyrjar allur áhorfendaskarinn þessar laglínur og það er mikil stemning í salnum, algerlega rafmögnuð reyndar, fólk klárt í slaginn. Gleði- og eftirvæntingarsvipir út um allt. Og fyrsta lagið rétt hálfnað. Hljómsveitin magnaða Helgi og hljóðfæraleikararnir frá Kristnesi er snúin aftur eftir eins og hálfs árs útlegð, tími sem er eðlilega heil eilífð í huga harðsnúinna aðdáenda og af þeim er nóg.
Vel smurð sveit
Ég er einn af þeim og hef skrifað mærðargreinar í tonnatali um þá félaga, allar verðskuldaðar. Hljómsveitin er með öllu einstök, uppbyggð af bræðrum, frændum og vinum en hana skipa Helgi og Bergsveinn „Beggi“ Þórssynir, Hjálmar Stefán og Brynjólfur „Bobbi“ Brynjólfssynir og síðan æskuvinur þeirra Atli Már Rúnarsson. Fleiri hafa komið við sögu sveitarinnar í gegnum tíðina en svona standa mál í dag, þétt og vel smurð rokksveit og rennslið á sviðinu á fjarskynjunarnótum, slíkir voru galdrarnir. Költ-ára leikur í kringum H&H (skammstöfun sem görguð var í enda tónleika) og lengi vel var tónlist sveitarinnar illfáanleg, fyllandi geisladiska sem voru orðnir óþægilega vandfundnir. Vel hefur hins vegar verið gert í því upp á síðkastið að koma efni hennar öllu á streymisveitur, endurútgáfur hafa verið glæstar og utanumhald allt í dag til mikillar prýði.
Tónlistin sjálf er margslungin. Helgi söngvari bindur hana saman með sinni voldugu rödd og gægst er inn á þjóðlagarokkslendur, hugsum okkur Pogues t.d., pönk og nýbylgja liggur til grundvallar einnig og eitthvað sem væri hægt að kalla hefðbundna vísnatónlist er einnig á flögri. Textar eru kenjóttir, glúrnir og oft sprenghlægilegir og þessi görótta blanda öll hefur hneppt fólk í hljómræn álög í gegnum tíðina.
Hnitmiðaður hráleiki
Efnisskrá kvöldsins var frábær, mikið af slögurum og vel kunnum lögum og eins og fram hefur komið, spilamennska upp á tíu. Ekki samt að þetta sé orðið steingelt og fumlaust, þá væri þetta ekki „rétta“ sveitin, öllu heldur fær sá hráleiki sem alla tíð hefur verið eitt af einkennismerkjum H&H hnitmiðaða útrás, rúllar um í svo fallegum farvegi eitthvað. Getur hráleiki verið hnitmiðaður? Greinilega. Kærum lögum eins og „Haust“ („Hún var í bláum götóttum kjól!“) var vippað fram, tvisvar reyndar, og „Heróín fyrir ömmu“, af hinni stórkostlegu Meira helvíti (2004), var leikið með tilþrifum, líkt og „Vilhjálmur ógeð“, „Jonni frændi“ og „Haltu kjafti“. Frábært pönkrokk hvar heimilislega brjálsemin sem er þeirra og engra annarra ríður röftum. Fagursmíðar voru einnig ræstar út og þyngra efni eins og hið snilldarlega „Stóri sjór“ og persónulegt uppáhald mitt, „Barist við brúna“ („Í kvöld verður barist við brúna / Við brýnum hjörinn og höldum af stað“).
Úr að ofan
Undir rest var söngvari kominn úr að ofan sem og æstustu aðdáendur. Slammað var af list frammi við sviðið og einstakur samtengingarmáttur tónlistarinnar smaug inn um merg og bein allra viðstaddra, hvort sem þeir voru upp á sviði, úti í sal eða á bak við barborðið. Fyrir meðlimum er þetta lífsmáti, eins og Bobbi sagði sveitunga sínum Orra Páli Ormarssyni fyrir stuttu í viðtali fyrir blað þetta. Viðar Halldórsson félagsfræðingur talar hins vegar um félagstöfra, þar sem hið hversdagslega verður hið máttuga, hið heilaga. Slíkt var með sönnu hægt að upplifa á Græna hattinum síðasta þriðjudag …
Stikkorðaský
Abba ATP Benni Hemm Hemm Berlín Björk Bob Dylan Bubbi Bára Gísladóttir Bítlarnir Cyber David Bowie Eurovision Evróvisjón Færeyjar Grænland HAM Harpa Ian Anderson Iceland Airwaves Jethro Tull Jóhann Jóhannsson jólatónlist Kælan Mikla Misþyrming Morgunblaðið múm Músíktilraunir Neil Young Nick Cave Nordic Music Prize Norrænu tónlistarverðlaunin Nuuk Nuuk Nordic Culture Festival post-dreifing President Bongo Reptilicus sigur rós Skotland Skúli Sverrisson Söngvakeppnin Söngvakeppni Sjónvarpsins Thick As A Brick tónleikar tónlist ... er tónlist íslenskur plötudómurUmræðan
- EugeneWeK on Plötudómur: Bergþóra Kristbergsdóttir – Drýpur
- Universitas Islam Sultan Agung on Plötudómur: Ambátt – Flugufen
- Universitas Islam Sultan Agung on Tónleikadómur: HAM!!!
- Universitas Islam Sultan Agung on Rýnt í: JFDR anno 2020
- Universitas Islam Sultan Agung on Rýnt í: Norræna þungarokkssýningu í Berlín
- Universitas Islam Sultan Agung on Rýnt í: Íslensk kvikmyndatónskáld
- Universitas Islam Sultan Agung on Steve Mason: Fyrirbærið frá Fife
- Universitas Islam Sultan Agung on Fréttaskýring: Brian Wilson 1942 – 2025
- Universitas Islam Sultan Agung on Iceland Airwaves 2022: Back on the Horse!
- ANNISA on Plötudómur: ROHT – Iðnsamfélagið og framtíð þess
Safn
- July 2026
- June 2026
- May 2026
- March 2026
- February 2026
- January 2026
- December 2025
- November 2025
- October 2025
- September 2025
- August 2025
- July 2025
- June 2025
- May 2025
- April 2025
- March 2025
- February 2025
- January 2025
- December 2024
- November 2024
- October 2024
- September 2024
- August 2024
- July 2024
- June 2024
- May 2024
- April 2024
- March 2024
- February 2024
- January 2024
- December 2023
- November 2023
- October 2023
- September 2023
- August 2023
- July 2023
- June 2023
- May 2023
- April 2023
- March 2023
- February 2023
- January 2023
- December 2022
- November 2022
- October 2022
- September 2022
- August 2022
- July 2022
- June 2022
- May 2022
- April 2022
- March 2022
- February 2022
- January 2022
- December 2021
- November 2021
- October 2021
- September 2021
- August 2021
- July 2021
- June 2021
- May 2021
- April 2021
- March 2021
- February 2021
- January 2021
- December 2020
- November 2020
- October 2020
- September 2020
- August 2020
- July 2020
- June 2020
- May 2020
- April 2020
- March 2020
- February 2020
- January 2020
- December 2019
- November 2019
- October 2019
- September 2019
- August 2019
- July 2019
- June 2019
- May 2019
- April 2019
- March 2019
- February 2019
- January 2019
- December 2018
- November 2018
- October 2018
- September 2018
- August 2018
- July 2018
- June 2018
- May 2018
- April 2018
- March 2018
- February 2018
- January 2018
- December 2017
- November 2017
- October 2017
- September 2017
- August 2017
- July 2017
- June 2017
- May 2017
- April 2017
- March 2017
- January 2017
- December 2016
- November 2016
- October 2016
- September 2016
- August 2016
- July 2016
- June 2016
- May 2016
- April 2016
- March 2016
- February 2016
- January 2016
- December 2015
- November 2015
- October 2015
- September 2015
- August 2015
- July 2015
- June 2015
- May 2015
- April 2015
- March 2015
- February 2015
- January 2015
- December 2014
- November 2014
- October 2014
- September 2014
- August 2014
- July 2014
- June 2014
- May 2014
- April 2014
- March 2014
- February 2014
- January 2014
- December 2013
- November 2013
- October 2013
- September 2013
- August 2013
- July 2013
- June 2013
- May 2013
- April 2013
- March 2013
- February 2013
- January 2013
- December 2012
- November 2012
- October 2012
- September 2012
- August 2012
- July 2012
- June 2012
- May 2012

Follow


