Iceland Airwaves, líf og fjör

Ég er minntur árlega á það hversu ríkt gildi tónlistarhátíð eins og Iceland Airwaves hefur, ekki bara fyrir íslenska tónlist heldur líka fyrir mig persónulega.

Ég viðurkenni að það var einhver ólund í mér í dag og visst nennuleysi herjaði á mig, allt fram að því að ég náði í PRESS armbandið (sem gleymdist reyndar að skrá mig fyrir en hin frábæra Kim Wagenar leysti það snöfurmannlega á staðnum). Ég hafði nánast hjólað á aðaldúddann í Spacestation, tveimur mínútum áður, fyrsti gestur Airwaves sem ég „rakst á“, og auðvitað var þetta táknrænt: Hættu þessu ólundarbulli Arnar, þú varst næstum búinn að keyra söngvarann í heitustu sveit landsins niður! Airwaves kallar og bíður þín!!

En já, það sem ég ætlaði að víkja að. Tónlist út um allar koppagrundir og það er dásamlegt en persónulegu tengingarnar sem eru nærðar á þessum vettvangi eru ekki síður mikilvægar, jafn mikilvægar vil ég segja. Ólundin hvarf eins og dögg fyrir sólu því ég rakst linnulítið á góða samstarfsfélaga úr bransanum; vini, kunningja, tónlistarfólk o.s.frv. og fagnaðarfundirnir voru endalausir. Allt þetta fólk sem er samanbundið í gegnum þær fjölbreyttu rásir sem renna um íslenska tónlistarmenningu.

Arnar Eggert Thoroddsen Avatar

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *