Tommy í Kringlubíó

Sá Tommy í Kringlubíói áðan, í fyrsta skipti sem ég sé hana. Eftir að hafa lesið um hana í áratugi í Mojo og Record Collector, keypt snjátt vínyleintak (og hugsanlega hlustað) o.s.frv.. Þetta er eins og að búa við hliðina á vinsælli sjoppu en fara aldrei inn. Myndin/söngleikurinn/óperan/platan, þetta hefur fylgt mér án þess að ég hafi nokkru sinni veitt þessu einhverja athygli.

Kannski er ástæðan sú, meginástæðan líklega, að ég hef aldrei náð ‘Oo’ eða The Who. Ég skil allt hvað sveitina varðar, dáist jafnvel að henni, en fílun, það er allt annar handleggur. Mér finnst líka merkilegt hversu fá lög standa út sem almenningseign. „Pinball WIzard“ er það eina ásamt „Touch Me“ mótífinu…

Myndin er þokkalega sýrð. Hvítir mávar gerð af áttunda áratugs Bretum. Súrrealismi mikill en vissulega saga út í gegn. Ég vissi ekki að það væri aldrei neitt sagt, bara sungið. Eða þá að Oliver Reed væri þarna (með sína ryðrödd) og Jack Nicholson (með ágæta rödd og vel það). Ann-Margret geggjuð. Og sérstaklega Tina Turner sem sýrudrottningin … en myndin lifir ekki sérstaklega í dægurmenningarannálum, ólíkt Grease, Hairspray, Sound of Music etc.

Myndin er annars keyrð hratt, það virkar, og skjótt er skipt á milli atriða. Og á þessum árum var verið að búa til BÍÓMYNDIR. Ken Russell leikstýrir og einhver hefur fjármögnunin verið. Geggjuð sett, fullt af leikurum, flottar tökur og sem sjónarspil er þetta mjög skemmtilegt. Hugsa sér ef Jethro Tull, Yes og álíka hefðu getað klínt kvikmyndum á verk eins og Thick As A Brick eða Tales From Topographic Oceans.

Hef sosum ekki mikið um myndina að segja, rússibani, afurð síns tíma og ég er mildilega hissa á því hversu vel mér lynti. Stundum er nóg að hafa atriði með fljótandi súkkulaði og Heinz-baunum til að skemmta strák…

Arnar Eggert Thoroddsen Avatar

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *