Mikið sem ég elska Rammstein góða fólk, eins og flestir Íslendingar hygg ég. Upp úr 2000 brast á með miklu æði hérlendis, sveitin hélt hér tvenna tónleika árið 2001 og Mörlandinn hefur ekki verið samur síðan, eins og sannaðist í kvöld í troðfullum kvikmyndasal í Smárabíó hvar myndin Rammstein – Live in Mexico City var alheimsfrumsýnd.
„Við reyndum að syngja á ensku til að byrja með. En söngvarinn bjó til þýska texta og flutti þá yfir á ensku. Þá urðu þeir ekki fallegir lengur og þá vaknaði hjá okkur þessi hugmynd að syngja á þýsku, eitthvað sem var ekki vinsælt á þessum tíma. Þýski framburðurinn passar líka mjög vel við tónlistina.“
Þetta sagði Oliver Riedel bassaleikari Rammstein mér fyrir 26 árum síðan þar sem við sátum saman yfir morgunverði á Hótel Borg. Hann var hingaðkominn í fjölmiðlaferð vegna Mutter, þriðju plötu sveitarinnar, heimsókn sem leiddi síðan beint til nefndra tónleika. Seinna átti ég eftir að rekast á hann á matarmarkaði í Berlin og urðu fagnaðarfundir. Á þessu Rammsteinskeiði Íslands tók ég viðtal við Paul Landers gítarleikara á Hótel Örk, ræddi við Richard Kruspe, hinn gítarleikann, í síma og sömuleiðis Christoph „Doom“ Schneider trymbil. Till Lindeman söngvara spjallaði ég svo við í eftirápartíi í Gauknum og Flake hljómborðsleikara á Thomsen. Rammstein átti okkur og við áttum Rammstein.
Þið getið því ímyndað ykkur kætina við að sjá þessa vini okkar í frábærum bíósal, í frábærum hljóm, blastandi þessum ómótstæðilegu riffum yfir okkur samfara litaorgíu sem stafaði frá frábærlega klipptri myndinni sem brunaði yfir okkur eins og rússíbani. Þó ég sé að tjá mig er ég samt orðlaus. „Mein Hertz Brennt“ var þarna. Ég meina, getið þið ímyndað ykkur dramatrukkið sem heltók salinn!?
Ég gæti skrifað um þessa mynd – og Rammstein – í alla nótt. Þvílíkt band! Merkilegt hvernig sami mannskapurinn, þessir sex, eru búnir að keyra þetta batterí í 32 ár og slá hvergi af. Hér fengum við smelli frá fyrstu þremur plötunum, allt saman meistaraverk, lög af samnefndu plötunni (2019), „Radio“, „Auslander“ og „Deutschland“ og eitt og annað og alls konar. „Engel“ var sungið á litlu sviði í miðjum áhorfendaskaranum með tveimur píanóleikurum og kórsöng frá öllum meðlimum. Eldvörpur, barnavagnar og gervilimir létu á sér kræla einnig. Mikill leikur í þeim félögum og vinskapurinn á sviðinu, annað er ekki hægt að kalla þetta, var áþreifanlegur.
Framvindan var hröð, klippingar leiftruðu, hálfrar sekúndu skot á eftir hálfrar sekúndu skotum og geggjaðir rammar út í gegn. Sviðið var gjörsamlega stórkostlegt, hvílíkur íburður og vísað í myndir eins og Metropolis og samkundur stjórnmálaafls sem verður ekki nefnt á nafn hér. Rammstein ýta við, hneyksla, þenja mörk, fara út að hengifluginu og stundum fram af því. Mörg lög fékk maður EKKI að heyra, „Asche Zu Asche“, „Sehnsucht“ og „Seeman“ t.d., uppáhalds Rammsteinlagið mitt.
Vá, vá, vá! „Gott weiß, ich will kein Engel sein“. Takk fyrir mig Smárabíó!
PS. Myndin verður og sýnd á lau. og sun.
Hvar: Smárabíó
Hvenær: 04/11/26




Skildu eftir svar