Sigurvegarar „Vampíra sló ekki feilnótu og jafnvægið svo gott sem
fullkomið,“ segir um vinningssveitina. Ljósmynd/Brynjar Gunnarsson.

Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, þriðjudaginn 19. mars.

„Það er farið að gjósa“

Úrslit Músíktilrauna fóru fram á laugardaginn fyrir fullum Norðurljósasal í Hörpu. Tíu atriði kepptu til úrslita á þessari mikilvægu tónlistarhátíð hvar græðlingum íslensks tónlistarlíf er hleypt á hlemmiskeið. Að næra sköpunarþrótt, hvetja fólk áfram og sjá það rækta það sem býr innra með því, ekkert er jafn gefandi og kraftmikið og að vanda sat ég úti í sal, gamall og vís maðurinn, með gæsahúð yfir öllu saman.

Fyrst á svið var Chögma, austfirska proggrokksveitin sem hafði komið fólki í opna skjöldu á undanúrslitum með ævintýralegum tónbræðingi. Sveitin fór vel af stað, fyrsta lagið grúvandi góð soðgrýla með jákvæðum formerkjum og Elísabet Mörk, söngkona, örugg í framlínunni. Lag tvö var grautarlegra og ég tók ekki eftir því þegar skipt var í þriðja lagið en greindi þó harkalega skiptingu í undurfurðulega, melódíska nýbylgju á einum punkti. Hér er margt að vinna með, mér fannst sveitin ekki eins sannfærandi og í undanúrslitunum en ég var að mestu einangraður með þá skoðun mína. Við tóku Flórurnar sem heillað höfðu með gáska og grínaktugheitum fyrr í vikunni. Vel stóðu þær sig en um leið fékk maður á tilfinninguna að búið væri að klára brandarann. Þriðja lagið, um kynþokkafulla kúreka, náði ekki landi og ákveðin valdeflandi, prakkaraleg Slits-ára sem ég hafði greint fyrst er ég sá þær var víkjandi og þá á kostnað nokkurs konar uppistands sem þoldi greinilega illa endurtekningu. Frýs leikur hefðbundið popprokk og er eins og sakir standa hæfilega þétt og samæfð. Það er andi í bandinu, það mega meðlimir eiga skuldlaust, en sjálf tónlistin er of „hrein vanilla“ og sérkennalaus. Ennþá. Tommi G. á framtíðina fyrir sér og færði okkur eins og síðast móðins tölvupopp með vísun í hipp og kúl form að því leytinu til. Klæðnaður og framsetning með svalasta móti, líkt og við værum komin inn í næturklúbb í Berlín. Það er góð ára yfir Tomma, þetta er spennandi og flutningur einlægur og alvöru. Lögin eru ágæt eins og er en mega alveg við smá bólstrun. Hér er vissulega nægt rými til bætinga en efnilegt er þetta svo það sé sagt! Slysh, skemmtilegasta sveit Tilraunanna, fór hamförum eins og síðast. Mötley Crüe ryðjast upp á svið í menntaskólasöngleik? Já, eitthvað þannig svei mér þá. Það sem vantar helst upp á er þétting, meiri formun á lögum, en grallaraskapurinn er ekta og allt í allt hressandi. Cloud Cinema var tónlistarskólasveit Tilraunanna í ár en ein til tvær slíkar skila sér inn ár hvert. Hljóðfæraleikur til fyrirmyndar, nema hvað, og Rosalía söngkona efnileg. Djasspopp það sem á borð var borið, þ.e. lagasmíðarnar, var þó æði þunnt og ráð að herða sig í þeirri deildinni. Ég er mikill Þagnaraðdáandi. Þessar vestmannaeysku dömur voru stórskemmtilegar í undanúrslitunum og eins var með úrslitin. Vel gróft, eðjubundið rokk sem var „illa“ spilað og yndislegt og hrífandi stemning á sviðinu, þessu verður ekki lýst öðruvísi. Lokalagið, „Tómatsósufordómar“, var mikið leikrit og áhorfendur sem sveit skemmtu sér hið besta. Það er nefnilega svo merkilegt með tónlist að oft er það bara eitthvert „x“ sem skilur listafólk að, þó að það sé að gera afar svipaða hluti. Þannig er það með Þögn. Þær eru einfaldlega með eitthvað.

Social Suicide spila einfalt, þungarokksskotið pönk og gera það býsna vel. Guðmundur bassaleikari mjög skemmtilegur á sviði, lítur út eins og meðlimur í einhverri Seattle-sveitinni undir endaðan níunda áratuginn. Firnaflottir fýrar. Eló, Elísabet Guðnadóttir, stóð sig frábærlega. Hún var fín í undanúrslitum en hér var hún komin á næsta stig eins og sagt er. Eló leggur sig eftir hefðbundinni söngvaskáldatónlist, gítar og rödd, og lögin til þess að gera einföld en um leið melódísk og aðlaðandi. Eló flutti lög sín þrjú af eftirtektarverðu öryggi, allt á hreinu og sérstaklega er lagið „Upp til skýja“ gott, virkilega ljúfsár og vel heppnuð smíð. Eló getur farið með þetta hvert sem hún vill, hæfileikarnir eru þarna í búntavís. Um mitt sett hjá Eló var ég farinn að skynja spennu í salnum. Vampíra, svartþungarokkssveitin sem við kynntumst á kvöldi þrjú, skyldi loka kvöldi og vindar heljar voru þegar farnir að blása um salinn, lágvært þó. Þetta minnti mig óneitanlega á það er Mínus steig á svið í Tilraununum fyrir kvartöld. Það var eitthvað í loftinu. Vampíra sló ekki feilnótu og jafnvægið svo gott sem fullkomið. Gotneskt svartþungarokk hennar grúvar en þó ekki um of. Það er melódískt, leikur að þjóðlaganótum o.s.frv. en það er líka hroði. Þetta er þétt en líka gróft og hrátt. Þetta er unglingalegt upp að vissu marki, já, en þetta er líka nægilega langt komið. Meðlimir uppáklæddir eins og skósveinar Nazgûl-riddaranna og metnaður bæði og fyrirhöfn blasti svo bersýnilega við. Virkilega gott verð ég að segja og mikil efnissveit á ferðinni.

Það kom því fáum á óvart að það var Vampíra sem sigraði í Músík­tilraunum í ár. Í öðru sæti hafnaði Eló og Austfirðingarnir í Chögma lönduðu því þriðja. Hljómsveit fólksins var valin Frýs. Einstaklingsverðlaun voru þessi: Söngur: Gísli Freyr Sigurðursson í Slysh, Bassi: Árni Hrafn Hrólfsson í Spiritual Reflections, Hljómborð: Ríkharður Ingi Steinarsson í Áttavillt, Gítar: Þórsteinn Leó Gunnarsson í Vampíru, Trommur: Jónatan Emil Sigþórsson í Chögma og Rafheili: Emil Ingo Lupnaav Atlason í Emidex. Höfundaverðlaun FTT fóru til Elísabetar Guðnadóttur (Eló) og verðlaun fyrir íslenska texta féllu Urði Óliversdóttur í skaut.

Náttúruöfl Íslands ákváðu að taka sér sæti í dómnefndinni þetta kvöldið. Inni í dómnefndarherbergi, eftir allt atið, réðum við ráðum okkar að vanda og duttum loks niður á sigurvegara.

„Það er þá Vampíra,“ sagði eitthvert okkar og í sama mund, á sama sekúndubroti, heyrist í Óla Palla.

„Það er farið að gjósa.“

Tagged with:
 

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Set your Twitter account name in your settings to use the TwitterBar Section.
Follow

Get every new post on this blog delivered to your Inbox.

Join other followers: