Ljósmynd/Gabríel Patay

 

Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 2. september, 2018


Svaðilför í Bongo


Nýjasta tónlistarævintýri President Bongo kallast Les Adventures de President Bongo 2018 – 2025 og er í formi 24 platna sem út koma á næstu árum.

President Bongo lætur sér fátt fyrir brjósti brenna og hefur snarað út einkar tilraunakenndri tónlist á síðustu misserum. Síðast þegar ég stakk niður penna um þennan mektarmann var það vegna plötunnar Serengeti (2015), margþætt verk sem „gerist“ í samnefndum tansanískum þjóðgarði og nýtti forsetinn sér ýmsar brellur til að fanga stemninguna þar. Teknó, raf- og nútímatónlist; ásláttur, strengir og hrein hljóðlist rann óheft um vitin og þyrlaði upp myndum í huga manns, hugrakkt verk og metnaðarfullt og alls ekki gefið – frekar en listamaðurinn sjálfur.

Ég átti þó ekki alveg von á þessu nýjasta útspili hans, og á maður þó von á hverju sem er! Nýjasta verkefni hans er langtímaverkefni, mun taka til sjö ára nánar tiltekið, og ber það yfirskriftina Les Adventures de President Bongo, til heiðurs belgíska ævintýramanninum Tinna, auðvitað. Um er að ræða safn 24 breiðskífna sem koma munu út með reglulegu millibili næstu sjö árin eða svo á vegum Radio Bongo, sem er vefsetur/útgáfa forsetans. Skv. forsetanum (Stephan Stephensen) er „hver breiðskífa helguð tilteknu tónlistarfólki eða sveitum sem hann hefur vélað til samstarfs við sig, en hann mun jafnan gegna þar hlutverki listræns stjórnanda og framleiðanda“. Hver plata verður eingöngu framleidd í 300 eintökum.

Þrjár plötur eru þegar komnar út, í mars kom út plata þar sem Stephan snýr upp á tvö lög sveitarinnar Tilbury og í maí kom út sérstök útgáfa Shed Your Skin, plötu Högna Egilssonar, en President Bongo sá um að upptökustýra formlegu útgáfunni. Útgáfan hér hins vegar, sem heyrir undir LAPB verkefnið (eins og það er skammstafað) er nokkurs konar „directors cut“ af Shed Your Skin, segir forsetinn þeim sem ritar. Í þessari viku kom svo út þriðja platan, Quadrantes, sem hann vinnur í samstarfi við bassaleikarann og tónskáldið Óttar Sæmundsen (vínyleintak er væntanlegt síðar í haust). Stafræna útgáfan er í fjórum hlutum, fimmtán mínútur hver, og er þetta ansi hreint magnað, hljóðrænt ferðalag, hjá þeim félögum. „Ambient“-skotið og naumhyggjulegt á köflum, dettur í teknógír en er svo rifið óforvarandis og skyndilega út í afstrakt hljóðlistarpælingar.  Kontrabassaleikur Óttars, öflugur og áhrifaríkur sem hann er, miðjar verkið og er þetta stefnumót þeirra vel heppnað að öllu leyti. Væntu hins óvænta.

Fullt af fólki kemur að verkinu auk þeirra Óttars og Stephans en um það má lesa á slóðinni www.radiobongo.net/quadrantes.

Þess má geta að Mary Ann Hobbs hjá BBC6 (sem er pælingaútvarp með stóru P-i!) spilaði hluta af Quadrantes nr. 1 í þætti sínum síðasta nóvember. Hús- og teknólistamaðurinn Yotam Avni endurhljóðblandaði þá Quadrantes nr.3 fyrir stuttu og lék það í hlaðvarpi sínu fyrir Groove Magazine. Og mun Hobbs spila þá útgáfu á BBC6 þætti sínum næsta miðvikudag.

Ævintýri, svo sannarlega, og vert að fylgjast með frá byrjun. Listamaðurinn hefur meðal annars stuðst við Karolina Fund upp á fjármögnun og hægt er að fræðast meira um útfærslurnar á því hér: www.karolinafund.com/project/view/2187.

 

Tagged with:
 

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Set your Twitter account name in your settings to use the TwitterBar Section.
Follow

Get every new post on this blog delivered to your Inbox.

Join other followers: