Ótrúlegur Páll Ivan frá Eiðum.

Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 29. janúar, 2022.

Undur og stórmerki

Fjöllistamaðurinn Páll Ivan frá Eiðum sendir frá sér list af alls kyns tagi, þar á meðal tónlist sem er merkileg fyrir margra hluta sakir.

Páll Ivan hefur verið virkur í neðanjarðartónlistarlífi Íslendinga um nokkurt skeið. Hann er með tónsmíðapróf frá LHÍ, tónverk eftir hann hafa verið flutt víða um lönd og hann hefur tekið ríkan þátt í spunastarfsemi, þá í Mengi og í gegnum S.L.Á.T.U.R. t.d. Hann hefur þá spilað með fjöldanum öllum af hljómsveitum og tónlistarmönnum eins og Benna Hemm Hemm, Kríu Brekkan, Borko, múm, Andrew D‘ Angelo og svo má telja. Hann leggur þá líka stund á annars konar list, málar og heggur út myndir og hefur einnig vakið athygli fyrir einstaklega fyndna samfélagsmiðlanærveru. Hann skrifar t.d. inn á gamansíðuna Fréttirnar hvar hann snýr út úr alvöru fréttum á snilldarlegan og drepfyndinn hátt.

Öðru hverju hendir hann svo fullbúinni (og ekki svo fullbúinni) tónlist inn á efnisveitur eins og Bandcamp og Spotify. Árið 2020 læddi hann t.d. út nokkuð mörgum verkum, stökum lögum í bland við lengri „verk“. „The Last Music in the World“ er t.a.m. þrettán mínútna hávaðaspuni á meðan „Meditation for Metalheads“ hlýtir þeim titli sæmilega nákvæmlega; nokkurs konar ískrandi drunusveim, rúmar tíu mínútur. „The fruit of Humans“ er hins vegar tæpar tuttugu mínútur af temmilega illa samhangandi óhljóðum og ískrum. Og er það vel.

Á síðasta ári komu svo út tvær plötur sem skiptast upp í hluta eður lög. How to live a good life er átta laga plata með þekkilegum gítarstrokum og bera lagatitlarnir nöfn sem vísa í titil plötunnar. „Aim high but not too high“ og „Listen to popular music and watch movies“ sem dæmi. Hin platan kallast The Conspiracy of Beasts , er sex laga, og lögin heita nöfnum eins og „The Horse of Eternal Winter and Fire“ og „The Sheep of Despair, Strangulation and Broken Dreams“. Fyrstu þrjú lögin eru „hestalög“ en síðustu þrjú „kindalög“.

Mig langar til að staldra sérstaklega við þessa plötu og lýsa innihaldinu sem mun samt gjörsamlega misheppnast. Því að í henni er einhver óskýranlegur galdur sem ekki er hægt að lýsa. Með allra eftirminnilegustu plötum síðasta árs og enginn nema Páll Ivan hefði komist upp með þetta. Ég er stúmm, þar sem ég skrifa þetta. Lögin eru þannig, að undir rólegum áslætti, sem er ekkert sérstaklega í takt, hummar Páll. Hann syngur ekki orð heldur syngur bara – eins og utan við sig og algerlega í andartakinu – línur eins og „la la la la la la la la la la“. Sama tiltækið og þegar maður sönglar eitthvað svona „la la la“ á leið út í búð. En ramminn hérna, þessi hægi ásláttur og hvernig Páll dregur stundum seiminn eða þá hraðar sönglinu, eins og það sé einhver forskrift að þessu, gefur þessu fáránlegan óraunveruleikablæ. Ég gleymi aldrei svipnum á Kraumsverðlaunadómnefndinni þegar ég spilaði þetta fyrir þau. Fólk setti upp undrunarsvipi, varð hýrt á brá en orðlaust líka.

Það er eitthvað við þetta sem maður getur ekki útskýrt almennilega. Eitthvað svona frum-humm sem við þekkjum öll og þetta setur undarlega hluti af stað í hausnum. Þetta er eins og eitthvert atriði úr Twin Peaks hvar gengið er fram á seiðkarl farandi með einhverjar möntrur. Seiðkarlatónlist Tryggva Hansen? Gavin Bryars og hið magnaða Jesus Blood…, hvar falskur róni er látinn syngja í endalausri lykkju. Hápunktur næst með „The Sheep of Despair…“. Hummið hljómar eins og sært dýr sé í andaslitrunum en samt er þarna melódía yfir og jafnvel ró? Nei, það er tilgangslaust að reyna að lýsa þessari snilld, best er að þú, lesandi góður, tékkir bara á þessu. Leyfðu þér að hlæja, undrast og jafnvel hneykslast. Mikill er máttur tónlistarinnar. Það er ekkert sem ekki er hægt að gera með henni!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Set your Twitter account name in your settings to use the TwitterBar Section.
Follow

Get every new post on this blog delivered to your Inbox.

Join other followers: