Black Sabbath: Himnaríki eða helvíti?
[Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 8. júní, 2013]
Og þá urðu þeir þrír
• Black Sabbath gefur út nýja hljóðversplötu og kallast hún 13
• Heil 35 ár síðan Ozzy Osbourne var með á slíkri skífu
Saga Black Sabbath – sem er líklega mikilvægasta þungarokkssveit sögunnar – hefur verið vörðuð veseni og vitleysu um langa hríð. Fyrstu fjórar plötur sveitarinnar; Black Sabbath (1970), Paranoid (1970), Master of Reality (1971) og Vol. 4 (1972) lögðu grunn að nýrri rokkstefnu, þungarokkinu, sem hefur reynst ein skrautlegasta, frjóasta og virkasta undirstefna formsins. Þyngri angar þungarokksins ef ég má orða það svo, stefnur eins og svartþungarokk, „grind-core“, dauðarokk o.s.frv. rekja þá sitt DNA þráðbeint til þessara fjögurra verka. Eftir því sem leið á áratuginn fór að hrikta í stoðum sveitarinnar, einkanlega vegna svalls og var Ozzy Osbourne söngvari þar í broddi fylkingar. Fór svo að hann var rekinn úr sveitinni (eftir hina armæðulegu Never Say Die!, 1978) og skömmu síðar gangsetti hann farsælan sólóferil. Black Sabbath hélt hins vegar áfram með hinum og þessum liðsmönnum þó gítarleikarinn Tony Iommi væri ávallt í stafni.
Töfralækningar
Aðdáendur hafa hins vegar látið sig dreyma – allt síðan Osbourne tók brennivínsleginn staf sinn og mal fyrir 35 árum – um að upprunalega liðsskipanin myndi hræra í plötu. Sú vinna hófst reyndar fyrir tólf árum, árið 2001, þegar þeir Iommi, Osbourne, bassaleikarinn og textasmiðurinn Geezer Butler og trymbilinn Bill Ward komu saman í hljóðveri í þeirri ætlun að setja saman plötu.
Upptökustjóri þá var töfralæknirinn Rick Rubin, sá hinn sami og landaði þessari nýju plötu, en þessar frumupptökur runnu hins vegar út í sandinn, m.a. vegna skuldbindinga sem Osbourne hafði stofnað til vegna sólóplötu. Þráðurinn var svo tekinn upp á nýjan leik í hitteðfyrra þegar bandið kom saman til að halda hljómleika. En fátt er svo með öllu gott að ei boði illt, svo ég leyfi mér nettan útúrsnúning! Bill Ward sagði sig snemma frá upptökum og spiliríi vegna ósættis við gerða samninga, eða ógerða samninga öllu heldur, og Iommi var greindur með krabbamein snemma í ferlinu. Trommari Rage Against The Machine, Brad Wilk, var lóðsaður inn í stað Ward og Rubin keyrði mál áfram óhikað.
Drulla
Platan er átta laga og löng, mörg laganna í kringum 7 eða 8 mínútur.
Þegar gullaldarlið kemur saman aftur (sem var svo ekki reyndin því miður vegna Ward) er krafan um að gömlu góðu dagarnir verði endurskapaðir skýlaus. Og af viðtölum að dæma er það og yfirlýstur tilgangur verksins. Rubin, sem er sérfræðingur í að dýrka upp kjarna listamanna og hljómsveita (eins og í tilfelli Johnny Cash og Metallica) lét meðlimi spila saman og „djamma“ og bað þá um að ímynda sér að þeir væru komnir aftur til ársins 1970. Ekki voru þeir á eitt sáttir með þessa tilburði Rubin, Iommi sagði að lengi vel hefði verið gjá á milli bands og upptökustjóra, en Osbourne hrósaði hinum síðskeggjaða í bak og fyrir. „Aldrei verið betri!“ segja einhverjir dómarar, en aðrir eru tortryggnari. Ég ætla ekki að fella neina dóma um verkið í þessari kynningargrein. Lagið „God is Dead?“ flögrar nú um netheima, ný lög má nema í gegnum tónleikaupptökur einnig og platan streymir nú um iTunes-síðuna. En vesenið og vitleysan eru á fullri fart sem fyrr, eitthvað sem skyggir stundum (oftast?) á sjálfa tónlistina hjá þessum blessuðu mönnum. Nú síðast drullaði (það er ekkert annað orð yfir það) Ozzy yfir sinn gamla vin Bill Ward í Mojo og ég á erfitt með að sjá að Ward fyrirgefi svo auðveldlega. Trúðslætin eru semsagt á sínum stað en hvort tónlistin er gildandi, tja, það kemur í ljós um helgina væntanlega…
Stikkorðaský
Abba ATP Björk Bob Dylan Bryan Ferry Bubbi Bára Gísladóttir Bítlarnir Cyber David Bowie Eurovision Evróvisjón Færeyjar Grænland Harpa Hildur Guðnadóttir Ian Anderson Iceland Airwaves Jethro Tull Jóhann Jóhannsson jólatónlist Kraftwerk Kælan Mikla Misþyrming Morgunblaðið múm Músíktilraunir Nick Cave Nordic Music Prize Norrænu tónlistarverðlaunin Nuuk Nuuk Nordic Culture Festival post-dreifing President Bongo Reptilicus sigur rós Skotland Skrapt Skúli Sverrisson Söngvakeppnin Söngvakeppni Sjónvarpsins Thick As A Brick tónleikar tónlist ... er tónlist íslenskur plötudómurUmræðan
- PtaXa on Plötudómur: Ingibjörg Turchi – Stropha
- Ilmu Komunikasi on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Manajemen on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Ilmu Forensik on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Biomedis on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Informatika on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- SO on Plötudómur: Bubbi – Ljós og skuggar
- Irgi Zanuar on Viðtal: Egill Ólafsson
- Sains Data on Uppgjör: Nuuk Nordic Culture Festival 2019
- RPLA on Rýnt í: Kynjahalla í dægurtónlist
Safn
- November 2024
- October 2024
- September 2024
- August 2024
- July 2024
- June 2024
- May 2024
- April 2024
- March 2024
- February 2024
- January 2024
- December 2023
- November 2023
- October 2023
- September 2023
- August 2023
- July 2023
- June 2023
- May 2023
- April 2023
- March 2023
- February 2023
- January 2023
- December 2022
- November 2022
- October 2022
- September 2022
- August 2022
- July 2022
- June 2022
- May 2022
- April 2022
- March 2022
- February 2022
- January 2022
- December 2021
- November 2021
- October 2021
- September 2021
- August 2021
- July 2021
- June 2021
- May 2021
- April 2021
- March 2021
- February 2021
- January 2021
- December 2020
- November 2020
- October 2020
- September 2020
- August 2020
- July 2020
- June 2020
- May 2020
- April 2020
- March 2020
- February 2020
- January 2020
- December 2019
- November 2019
- October 2019
- September 2019
- August 2019
- July 2019
- June 2019
- May 2019
- April 2019
- March 2019
- February 2019
- January 2019
- December 2018
- November 2018
- October 2018
- September 2018
- August 2018
- July 2018
- June 2018
- May 2018
- April 2018
- March 2018
- February 2018
- January 2018
- December 2017
- November 2017
- October 2017
- September 2017
- August 2017
- July 2017
- June 2017
- May 2017
- April 2017
- March 2017
- January 2017
- December 2016
- November 2016
- October 2016
- September 2016
- August 2016
- July 2016
- June 2016
- May 2016
- April 2016
- March 2016
- February 2016
- January 2016
- December 2015
- November 2015
- October 2015
- September 2015
- August 2015
- July 2015
- June 2015
- May 2015
- April 2015
- March 2015
- February 2015
- January 2015
- December 2014
- November 2014
- October 2014
- September 2014
- August 2014
- July 2014
- June 2014
- May 2014
- April 2014
- March 2014
- February 2014
- January 2014
- December 2013
- November 2013
- October 2013
- September 2013
- August 2013
- July 2013
- June 2013
- May 2013
- April 2013
- March 2013
- February 2013
- January 2013
- December 2012
- November 2012
- October 2012
- September 2012
- August 2012
- July 2012
- June 2012
- May 2012