3-small

 

Það er svo sannarlega vert að impra aðeins á þessu frábæra máli, nýju plötunni frá amiinu sem kemur út 7. júní næstkomandi. Hér er svo gott sem tæmandi fréttatilkynning!:

THE LIGHTHOUSE PROJECT / VITAVERKEFNIÐ

amiina

 

The lighthouse stands alone off the beaten path, transmitting a message out across the ocean.

Sometimes, musicians seem to play a similar role: a message is being projected out into the environment,

without any guarantee that it will reach its destination.

It is impossible to say who will receive it, or to which uses it will be put.

Still, the only option is to keep on transmitting the message.

Þann 7. júní sendir hljómsveitin amiina frá sér nýja plötu sem ber nafnið The Lighthouse Project. Diskurinn kemur í fallegu bókarbroti sem er ríkulega myndskreytt en platan verður einnig fáanleg á vínyl. Tónlistin og myndirnar markast af ferðalagi sem amiina fór 2009 og spilaði hljómsveitin m.a. í vitum víðsvegar um landið en hinn langþráði draumur að gefa út þetta efni er nú loksins orðinn að veruleika.

amiina var upphaflega strengjakvartett sem stofnaður var af fjórum stelpum sem saman sóttu Tónlistarskólann í Reykjavík í lok síðustu aldar. amiina strengjakvartett varð seinna vel þekktur fyrir samvinnu sína með Sigur Rós, bæði á tónleikum sem og á plötum sveitarinnar.

Fyrsta breiðskífa amiinu, Kurr, kom út árið 2007 en áður hafði komið út EP platan AnimaminA. Hljóðheimur sveitarinnar tók stakkaskiptum þegar til liðs við amiinu gengu trommuleikarinn Magnús Trygvason Eliassen og raftónlistarmaðurinn Kippi Kaninus en þeir hafa nú verið í amiinu síðan síðla árs 2009. Önnur plata amiinu,Puzzle, kom út árið 2010 við góðar undirtektir.

Það var fyrir rúmum fjórum árum sem hin fjögurra manna amiina lagði í ferðalag um Ísland til þess að leika tónlist sína í vitum og á öðrum óvenjulegum stöðum. Nýjar útsetningar höfðu verið gerðar og ný lög samin með það sérstaklega í huga að passa smærri rýmum og ná meiri nánd við áhorfendur. Sú lífsreynsla og einstaka upplifun sem fylgdi fyrstu tónleikum amiinu í vita varð þess valdandi að í þessa ferð var farið, að verkefnið varð að veruleika. Maður sem á hlýddi lýsti þeim áhrifum sem tónleikarnir í þessu umhverfi höfðu á hann: Hann sagðist hafa upplifað tónlist sem nýja reynslu þar sem hann stóð efst í vitanum, þar fann hann hvernig tónlistin ferðaðist upp til hans og í gegnum vitann og svo á endanum út á haf, eins og vitinn væri þessa stundina að varpa músík í stað ljóss út á hafið.

amiina lagði því land undir fót í sendiferðabíl sem var troðfullur af hljóðfærum, með einn ljósmyndara auk aðstoðarmanns. Ferðin var mikið ævintýri og leit stundum út fyrir að verið væri að aka út í algjörar óbyggðir og einskismannslönd til að halda tónleika á hjara veraldar.

Tónlistin sem leikin var í ferðinni var sambland af eldra efni og nýju sem átti það sameiginlegt að vera fallegt og einfalt í uppbyggingu, hljómar fyrir drauma og nýja upplifun.  Á meðal laga sem flutt voru var ábreiða af lagi Lee Hazlewood „Leather and Lace“. amiina hafði átt í samvinnu við Lee aðeins nokkrum vikum fyrir fráfall hans, en þau unnu saman að lagi sem að endingu varð hans síðasta hljóðritun. Á b-hlið útgáfunnar sem Lee og amiina gerðu saman og kom út árið 2007 var að finna útsetningu og flutning amiinu á lagi Lee „Leather and Lace“. Þessi einfalda og áhrifamikla útgáfa af þessu fallega lagi er dæmi um lag sem passaði einstaklega vel við anda og efnisskrá Vitaverkefnisins.

Það var seint á síðasta ári sem amiina ákvað að heimsækja Vitaverkefnið á nýjan leik og hljóðrita lögin í þeim töfrandi útsetningum sem fengu að hljóma á vitatúrnum. amiinu fannst mikilvægt að nálgast upptökurnar líkt og á vitatónleikunum, að fylgja þeirri hugsun og því vinnuferli til enda sem hafði einkennt verkefnið frá upphafi, að finna nálægðina við tónlistina og hlustanda. Til að aðstoða sig við upptökur fékk sveitin til liðs við sig Ben Frost en Birgir Jón Birgisson sá svo um hljóðblöndun og tónjöfnun.

Það er Smekkleysa sem dreifir The Lighthouse Project á Íslandi en Sounds of a Handshake/morr music dreifir í Evrópu og Bandaríkjunum.

Lagalisti:

1. Perth

2. Hilli (Lighthouse version)

3. Bíólagið

4. Leather and Lace

5. Kola (Lighthouse version)

6. N65°16,21 W13°34,49

Lög 1,2,3 og 5 eftir amiinu, leikin af amiinu

Lag 4 eftir Lee Hazlewood, útsetning og flutningur amiina

Lög 1,2,3 og 5 hljóðrituð af Ben Frost og Paul Evans í Gróðurhúsinu. Lag 4 hljóðritað af Birgi Jóni Birgissyni og Kjartani Sveinssyni í Sundlauginni. Lag 6 hljóðritað í Dalatangavita.

Hljóðblöndun og tónjöfnun Birgir Jón Birgisson.

Hönnun og umbrot var í höndum Sigríðar Ásu, ljósmyndir teknar af Sólrúnu Sumarliðadóttur og Kjartani Sveinssyni.

Links for videos from the Lighthouse tour – done 2009 that inspired the EP.

1. https://vimeo.com/62069663

2. https://vimeo.com/62069665

3. https://vimeo.com/62697830

– + – + – + – + – + –

Útgáfupartý amiinu á KEX – Fimmtudaginn 6. júní

Af þessu tilefni er boðið í útgáfuhófi sem haldið er á KEX Hostel fimmtudaginn 6. júní frá klukkan 17:00 – 19:00.

amiina mun leika tvö lög og léttar veitingar verða í boði. Hægt verður að kaupa plötuna í forsölu á sérstökum partýprís og einnig verða til sölu sex gerðir af póstkortum í tengslum við útgáfuna.

 

Útgáfudagur – Evrópa 7. júní / 11. júní Bandaríkin og restin af heiminum

 

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Set your Twitter account name in your settings to use the TwitterBar Section.
Follow

Get every new post on this blog delivered to your Inbox.

Join other followers: