Dómurinn var skrifaður fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 13. júní, 2015
Hörundsár
Of Monsters and Men – Beneath the Skin
★★★★☆
Tónlist og textar eftir Of Monsters and Men. Sveitin stýrði upptökum ásamt Rich Costey. Record Records/Republic Records gefa út, 2015.
Það þurfti að segja mér það þrisvar sinnum, ef ekki oftar, að Of Monsters and Men hefðu farið beint í sjötta sæti bandaríska breiðskífulistans, Billboard, með fyrstu plötu sína fyrir réttum þremur árum. Ég veifaði þessu frá mér, þetta væri líkast til einhver hliðar- eða niðurhalslisti en nei, um var að ræða aðallistann! Þegar það var loksins búið að koma mér niður á plánetuna jörð hríslaðist um mig sælustraumur enda árangurinn stórglæsilegur og sá besti sem íslensk sveit hefur náð fyrr og síðar á umræddum lista. En þetta þurfti líka ekkert að koma á óvart. Allt síðan sveitin sigraði í Músíktilraunum árið 2010 var ljóst að hér færi eðalsveit, til alls líkleg, og það hefur heldur en ekki komið í ljós.Hljómsveitin nýtur nú heimsfrægðar, hefur verið á linnulitlu tónleikaferðalagi allan þennan tíma og platan góða hefur selst í rúmlega milljón eintökum.
Það er alltaf dálítið snúið að fylgja farsælli plötu eftir. Á meðan fyrstu verk koma „kröfulaus“ inn í heiminn er alltaf pressa á næstu skref og listamennirnir standa frammi fyrir ákvörðunum. Á að halda sig við vinningsformúluna eða hlýða á hjartað og taka áhættu? Meðlimir Of Monsters and Men eru glúrnir því að hér má nefnilega heyra sitt lítið af hvoru. Hljómurinn er þróaður áfram en grunnstoðirnar sem stuðluðu að farsældinni eru þarna ennþá. Á fyrstu plötunni, My Head Is an Animal, mátti heyra glaðvær og upplyftandi lög, melódísk mjög og maður hummaði með án þess að verða var við það. Það var því alls ekkert skrítið að þau hófu að dúkka reglulega upp í auglýsingum, kvikmyndum og kaffihúsum enda nánast eins og sérsniðin undir slíkt.
En ef fyrsta platan hoppaði og skoppaði eins og lítill hraðbátur á öldum gleðinnar skríður þessi volduglega áfram eins og stæðilegt flugmóðurskip. Glaðværðinni hefur verið skipt út fyrir íbyggna sálarleit, undiraldan er þung, heildarhljómurinn epískur og gerðarlegur mjög. Lagatitlar eins og „Slow Life“, „Black Water“ og „Empire“ segja sitt. Upptökustjórnandanum, Rich Costey, er greinilega í lófa lagið að framkalla stórar og stæðilegar hljóðmyndir, en hann hefur unnið með Muse t.a.m. og Sigur Rós ásamt því að hann hljóðblandaði Kveik (þessi áherslubreyting OMAM eins og hún er gjarnan skammstöfuð minnir dálítið á Mumford & Sons, sveit sem henni er gjarnan líkt við, en hún færði sig einnig úr þjóðlagaskotnu stuði yfir í stóreflis leikvangarokk á nýjustu plötu sinni).
Það sem sló mig fyrst er hversu tilkomumikil platan er. Rennslið er einhvern veginn fumlaust og það er ekki snöggur blettur á lagasmíðunum. Öll vinnsla er pottþétt og lögin eru einkar leikvangavæn ef svo má segja. Tónninn er settur strax í fyrsta lagi, „Crystals“, og önnur lög fylgja því sniði meira og minna. Seigfljótandi, harmrænar smíðar sem draga hlustandann inn á seiðmagnaðan hátt. „Crystals“ er frábært lag að þessu leytinu til og aðrar álíka gæðasmíðar eru t.d. „Human“ og „Wolves Without Teeth“. Platan er eins og áður segir afar heilsteypt og jöfn en það sverð er þó tvíeggjað. Þegar líður á plötuna er einsleitni í lagauppbyggingu og allri áferð einfaldlega orðin fullmikil og sum lög, ég nefni t.d. „Black Water“ og „Slow Life“, fara næstum framhjá manni, svo kirfilega falla þau í þann ramma sem smíðaður hefur verið. Í einstaka tilfellum er þó ruðst út fyrir formið og er það vel. Ég vil sérstaklega nefna „Organs“, sem er svona „kveikjarar á loft“ ballaða, mjög fallega sungin af Nönnu. Hún á stórleik á plötunni en Ragnar kemur einnig sterkur inn og samsöngur þeirra er til mikillar prýði. „Thousand Eyes“ er þá nokkurs konar inngangsstef að „I of the Storm“, lagið rís og rís með tilheyrandi braki og brestum og minnir helst á flugeldasýningar þær sem Sigur Rós hristi fram á áðurnefndri Kveikur.
Það er líka merkilegt að heyra að platan er til muna „íslenskari“ en fyrri platan, en margir aðdáendur voru ekki endilega að kveikja á því að sveitin væri frá landi elds og ísa. Ég átta mig þó ekki á því hvort þetta er meðvitað útspil eða ekki. Og þrátt fyrir tuð um lagasmíðalega einsleitni trompar alltumlykjandi öryggið sem hér að finna allt slíkt. Heilt yfir er þetta afar vel heppnað verk hjá okkar fólki og ég hygg að platan muni renna enn styrkari stoðum undir glæsifengið veraldarvafstur hennar.
Það er ákveðið minni í popptónlistinni að önnur plata sveitar sem hefur slegið óforvarandis í gegn er iðulega þyngri, dýpri, dekkri, „listrænni“ en sú sem á undan kom. OMAM fetar svo sannarlega þá slóð en á meðan aðrir klaufast í slíku á tilgerðarlegan máta leysir sveitin verkefnið á einkar sannferðugan máta. Ég endaði dóm minn um My Head Is an Animal, sem var birtur í Morgunblaðinu í september 2011, með þessum orðum: „Skilyrði til frekari vaxtar: góð.“ Svo hefur raunin og orðið.
Arnar Eggert Thoroddsen
One Response to Plötudómur: Of Monsters and Men – Beneath the Skin
Leave a Reply Cancel reply
This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.
Stikkorðaský
Abba ATP Björk Bob Dylan Bryan Ferry Bubbi Bára Gísladóttir Bítlarnir Cyber David Bowie Eurovision Evróvisjón Færeyjar Grænland Gyða Valtýsdóttir Harpa Hildur Guðnadóttir Ian Anderson Iceland Airwaves Jethro Tull Jóhann Jóhannsson jólatónlist Kælan Mikla Misþyrming Morgunblaðið múm Músíktilraunir Nick Cave Nordic Music Prize Norrænu tónlistarverðlaunin Nuuk Nuuk Nordic Culture Festival One Direction post-dreifing President Bongo Reptilicus sigur rós Skotland Skúli Sverrisson Söngvakeppnin Söngvakeppni Sjónvarpsins Thick As A Brick tónleikar tónlist ... er tónlist íslenskur plötudómurUmræðan
- Hjörtur Geirsson on Plötudómur: Bubbi – Dansaðu
- PtaXa on Plötudómur: Ingibjörg Turchi – Stropha
- Ilmu Komunikasi on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Manajemen on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Ilmu Forensik on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Biomedis on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Informatika on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- SO on Plötudómur: Bubbi – Ljós og skuggar
- Irgi Zanuar on Viðtal: Egill Ólafsson
- Sains Data on Uppgjör: Nuuk Nordic Culture Festival 2019
Safn
- December 2024
- November 2024
- October 2024
- September 2024
- August 2024
- July 2024
- June 2024
- May 2024
- April 2024
- March 2024
- February 2024
- January 2024
- December 2023
- November 2023
- October 2023
- September 2023
- August 2023
- July 2023
- June 2023
- May 2023
- April 2023
- March 2023
- February 2023
- January 2023
- December 2022
- November 2022
- October 2022
- September 2022
- August 2022
- July 2022
- June 2022
- May 2022
- April 2022
- March 2022
- February 2022
- January 2022
- December 2021
- November 2021
- October 2021
- September 2021
- August 2021
- July 2021
- June 2021
- May 2021
- April 2021
- March 2021
- February 2021
- January 2021
- December 2020
- November 2020
- October 2020
- September 2020
- August 2020
- July 2020
- June 2020
- May 2020
- April 2020
- March 2020
- February 2020
- January 2020
- December 2019
- November 2019
- October 2019
- September 2019
- August 2019
- July 2019
- June 2019
- May 2019
- April 2019
- March 2019
- February 2019
- January 2019
- December 2018
- November 2018
- October 2018
- September 2018
- August 2018
- July 2018
- June 2018
- May 2018
- April 2018
- March 2018
- February 2018
- January 2018
- December 2017
- November 2017
- October 2017
- September 2017
- August 2017
- July 2017
- June 2017
- May 2017
- April 2017
- March 2017
- January 2017
- December 2016
- November 2016
- October 2016
- September 2016
- August 2016
- July 2016
- June 2016
- May 2016
- April 2016
- March 2016
- February 2016
- January 2016
- December 2015
- November 2015
- October 2015
- September 2015
- August 2015
- July 2015
- June 2015
- May 2015
- April 2015
- March 2015
- February 2015
- January 2015
- December 2014
- November 2014
- October 2014
- September 2014
- August 2014
- July 2014
- June 2014
- May 2014
- April 2014
- March 2014
- February 2014
- January 2014
- December 2013
- November 2013
- October 2013
- September 2013
- August 2013
- July 2013
- June 2013
- May 2013
- April 2013
- March 2013
- February 2013
- January 2013
- December 2012
- November 2012
- October 2012
- September 2012
- August 2012
- July 2012
- June 2012
- May 2012
flottur dómur um fína plötu.