Endurfæddur Aron Can slær ekki slöku við á nýju plötunni. — Ljósmynd/Anna Maggý

Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 3. júlí, 2021.

„Elskar að opna sig“

Aron Can snýr aftur með plötunni Andi, líf, hjarta, sál. Ansi gerðarlegt verk sem gæti blásið nýju lífi í íslensku rappsenuna.

Síðast heyrðum við í Aron Can, sem leiddi um hríð aðra bylgju íslensks rapps, fyrir um þremur árum, en þá kom platan Trúpíter út (2018). Keyrslan hafði verið mikil á okkar manni og það var að merkja á plötunni fannst mér. Þessi „hvíld“ var nauðsynleg í raun. Því nú er hann kominn aftur, og það af krafti, sem lýsir sér m.a. í voldugum titli fjórðu breiðskífunnar: Andi, líf, hjarta, sál (og allt stíliserað með hástöfum). Árabilið frá 18 ára að 21 er sem heil eilífð, það vita þeir sem það hafa lifað, og þess má vel finna stað á plötunni. En áður en við krukkum í hana skulum við standsetja listamanninn með tilliti til fyrri verka.

Þekkir stráginn (2016) var sem ferskur andvari í senuna á sínum tíma, Aron skipti töffarastælum út fyrir einlægni og uppskar ríkulega. Textar af Drake-skólanum, hellt úr hjartanu og örlögin grátin. Veruleiki unglingsins ljóslifandi. Tónlistin strípuð og skuggaleg, einföld og naumhyggjuleg. Trapp-áferð og rappið/söngurinn drafandi á köflum. Næsta plata, ÍNÓTT (2017), var lengri, stærri, hlaðnari, flóknari og litapallettan stækkuð. Þetta var Aron Can plata ennþá en sakleysið – sem landaði frumburðinum – var horfið. Dekkra verk í raun og eftir á að hyggja fulldökkt á köflum. Á Trúpíter var síðan eins og Aron leyfði sér aðeins að sprikla. Kæruleysisbragur næstum því sem vann í senn með plötunni og á móti. Fjölbreyttari en fyrri verk, fleiri stílar og tilraunir með tónlistina en textaleg glappaskot á köflum, þeir stundum rýrir og óspennandi. Samantekið hefur Aron haldið sjó nokkuð vel í gegnum þessar þrjár plötur, þó að nýjabrum þeirrar fyrstu verði seint toppað.

Á nýju plötunni fær Aron lagasmiðina Þormóð Eiríksson, Arnar Inga, Magnús Jóhann og Jón Bjarna til liðs við sig og gestir eru GDRN, Birnir og hinn norski Unge Ferrari. Tilfinningin sem maður fær, eftir að hafa rúllað plötunni nokkrum sinnum, er góð. Það er ferskleiki yfir, öryggi, metnaður og kraftur sem allir öðlast þegar búið er að endurræsa kerfið. Horft er til smáatriða og öllu tjaldað til, sjá t.d. epíska umslagsmyndina. Lögin þrettán rúlla líka fumlaust; hljómur er botngóður, traustur og umlykjandi og ferðalagið fjölbreytilegt. Minnir að því leytinu til á Trúpíter en allt hérna er bara … tja … meira fullorðins. Aron lætur okkur í té ballöður og „bangera“ og röddin hans er miðlæg út í gegn. Rappið er öruggt, Aron er „á staðnum“, vakandi, meðvitaður og klár í slaginn. Textalega er hann upp og ofan. Aðeins of mikið um endurtekningar og ódýrar hendingar en um leið er enginn betri en hann í einlægum játningum og hreinskiptni. Þegar hann gerir vel þar er hann ósnertanlegur.

Lögin sjálf hafa yfir sér höggþéttan blæ og Aron hefur aldrei verið betri í þeirri deildinni. Sjá slagarann „Flýg upp“, pottþétt lag, og mikilúðlegu ballöðuna „Glasið“, sem hann gerir með GDRN. Aron er líka með gott poppnef, „Hvað með það“ er gott dæmi um lag sem er á mörkum hreins popps, „r og b“ og rapps og allt gengur upp í dásamlegri sambræðslu. „Varlega“ með Unge Ferrari er auk þess glæsilegt, þar sem rómanskir taktar fá að flæða í miðju lagi. „Sofna“ er þá einnig frábært, hvar austurlenskum strengjum er rennt inn undir blálokin til að undirstrika rætur Arons.

Á dögunum velti ég ástandi íslenskrar rappmenningar fyrir mér. Að í dag væru eingöngu uppistandandi meginstraumsvænir popprapparar og gallsúrir neðanjarðarrapparar, allt millistig væri farið. Þetta sterka verk er möguleg sönnun á því að enn sé rúm fyrir brú þarna á milli. Grípandi og aðlaðandi tónlist sem býr yfir nægilegri dýpt á sama tíma.

 

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Set your Twitter account name in your settings to use the TwitterBar Section.
Follow

Get every new post on this blog delivered to your Inbox.

Join other followers: