Það er með sérstakri ánægju sem síðuhöfundur imprar á þessum góðu tónleikum. Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá Kongómönnum:

Sumarsólstöðutónleikar Ólafar Arnalds ásamt Skúla Sverrissyni í Grasagarðinum

Ólöf Arnalds heldur tvenna tónleika á Café Flóru í Grasagarðinum þann 21. og 22. júní nk. Tilefnið er sumarsólstöður og fylgir Ólöf þar með eftir sumar- og vetrarsólstöðutónleikum sínum á síðasta ári. Ólöfu til halds og trausts verður samverkamaður hennar til margra ára, Skúli Sverrisson bassaleikari og tónskáld.
Ólöf leggur um þessar mundir lokahönd á þriðju breiðskífu sína, Sudden Elavation, sem fylgir fyrri verkum hennar, breiðskífunum Við og við og Innundir skinni, sem og stuttskífunni Ólöf Sings, eftir. Mun Ólöf nota tækifærið og flytja lög af væntanlegri plötu í bland við eldri lög og lög eftir aðra. Sudden Elevation er væntanleg með haustinu og er það áður nefndur Skúli Sverrisson sem stýrir upptökum á henni. Fyrri breiðskífur Ólafar hafa fengið mikið lof. Hér heima var Við og við á Íslensku tónlistarverðlaununum 2008 valin besta óháða plata ársins og erlendis setti hið virta tónlistartímarit Paste hana í 38. sæti yfir bestu plötur ársins 2009 á meðan eMusic valdi hana eina af 100 bestu plötum síðasta áratugar. Innundir skinni fékk ekki síður lof en Við og við. Hún var m.a. tilnefnd til norrænu tónlistarverðlaunanna og tónlistarvefurinn Pitchfork Media gaf henni afbraðgsumsögn og sagði ómögulegt væri annað en að hrífast henni. Nýju breiðskífu hennar er því augljóslega beðið með umtalsverðri eftirvæntingu.
Skúla Sverrisson þarf vart að kynna fyrir áhugamönnum um tónlist enda fer þar á ferð einn þekktasti tónlistarmaður Íslands í dag. Skúli hefur um langt árabil búið og starfað í New York og unnið með ýmsum þekktum tónlistarmönnum ásamt því að sinna eigin tónlist. Hans þekktustu verk hér heima eru eflaust Sería I og Sería II sem hafa þegar unnið sér sess á meðal bestu samtímaverka íslenskrar tónlistar. Það er því ljóst að tónlistaráhugamanna bíður ógleymanlegt stund á sama tíma og sólin neitar að hníga til viðar.
Bent er á að takmarkað upplag er af miðum enda um að ræða tónleika þar sem mikil nánd er á milli tónlistarmanna og áheyrenda. Það er því um að gera að verða sér út um miða sem fyrst.
Miðasala fer frá á http://midi.is/tonleikar/1/7051
Nánari upplýsingar veitir Matthías Árni í síma 8676121

Ljósmynd/Matthías Árni Ingimarsson 
Tagged with:
 

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Set your Twitter account name in your settings to use the TwitterBar Section.
Follow

Get every new post on this blog delivered to your Inbox.

Join other followers: