Hið mjög svo öfluga útgáfufyrirtæki Record Records hefur nú séð til þess að forláta vínylútgáfa af plötu Agent Fresco, A Long Time Listening, er lent á meðal vor (sjá mynd). Fagna því allir viti bornir menn enda mikill unaður að fara höndum um formið fagra.

Platan er tvöföld og það eitt og sér nægir til að hleypa upp gæsahúðinni. Umslagið er einfalt en þykkt. Ég man þegar ég sá slíka „lausn“ fyrst en það var þegar ég snart á plötu Prince, Sign o’ The Times, hér í eldgamla daga. Áferð er mött og á framhlið er límmiði með áletruninni „Includes free digital download“. Hér komum við að hlut sem virðist stundum ekki vera á tæru hjá söfnurum. Það er mikilvægt að öll upprunaleg viðhengi svona útgáfna, veri það límmiðar, veggspjöld eða annað haldi sér upp á seinni tíma sagnfræði og verðgildi. Gripurinn þarf að vera eins nálægt upprunalegu standi og hægt er. Ég á t.a.m. plötu Sepultura, Beneath the Remains, á vínyl og þar er einmitt límmiði framan á og plakat inni í. Þessir hlutir eru að sjálfsögðu óhreyfðir, plakatið góða snyrtilega samanbrotið inni í umslaginu!

En áfram með Fresco. Vínyllinn sjálfur er í hefðbundinni þykkt og á plötumiðunum fjórum er mynd tekin af sjálfu umslaginu. Þeir eru svo merktir A, B, C og D. „Nærbuxurnar“ prýða hins vegar mismunandi myndir og þar er að finna alla textana. Hljómur plötunnar er þykkur, mjúkur og skýr þar sem hún rúllar nú um á fóninum. Það er eins og hann sé opnari og stærri líka, ég er að heyra hljóð sem maður greindi ekki svo gjörla áður. Dásamlegt…

Lagaröðin á vínylnum skiptist svo:

A

Anemoi

He Is Listening

Eyes Of A Cloud Catcher

Silhouette Palette

Of Keen Gaze

B

Translations

A Long Time Listening

In The Dirtiest Deep Of Hope

Yellow Nights

C

Paused

Implosions

Almost At A Whisper

Pianissimo

D

One Winter Sailing

Tiger Veil

Above These City Lights

Tempo

Um tónlistina sem slíka þarf ekki að fjölyrða, hér er á ferðinni ein tilkomumesta rokkplata sem út hefur komið hérlendis hin síðustu ár. Hér er dómur sem ég reit fyrir málgagnið á sínum tíma:

24. nóvember 2010 | Tónlist | 252 orð | 2 myndir

TÓNLIST – Geisladiskur

Stórkostleg rokkplata

Agent Fresco – A Long Time Listening ****½

Það hefur verið unun að fylgjast með Agent Fresco vaxa og dafna síðan hún vann Músíktilraunir með glans fyrir tveimur og hálfu ári.
Það hefur verið unun að fylgjast með Agent Fresco vaxa og dafna síðan hún vann Músíktilraunir með glans fyrir tveimur og hálfu ári. Tilraunir leitandi tónlistarskólastráka eru í dag orðnar að fullburða, framsæknu rokki og prýðir það þennan frábæra frumburð hennar í breiðskífuformi (EP-platan Lightbulb Universe kom út fyrir jólin 2008).
Sú staðreynd að þeir piltar upptökustýrðu fyrstu plötu sinni sjálfir gerir hana merkilegri en ella, ekki bara hversu vel hún stendur hljóm- og hljóðfæralega heldur sýnir þetta glöggt hversu einbeittir liðsmenn eru í listinni. Allt er gert af lífi og sál og ferill sveitarinnar hefur verið lóðbeint upp á við einmitt vegna þessarar elju og ástríðu. Hér er verið að uppskera eins og sáð hefur verið til.

Tónlist Agent Fresco er melódískt, framsækið rokk og helst mætti líkja henni við Mars Volta í upphafi ferils hennar. Platan er sautján laga; stór og mikilúðleg og bundin saman í eina heild. Ástríkur söngur og djúpspakir, tilfinningaþrungnir textar Arnórs Dan Arnarsonar leiða lögin sem eru keyrð áfram af einkar hugmyndaríkum gítarleik Þórarins Guðnasonar. Hrynparið Hrafnkell Örn Guðjónsson og Vignir Rafn Hilmarsson sér síðan um að óvæntar og óhefðbundnar skiptingar líði áfram eins og flauel. Lög eins og „Eyes of a Cloud Catcher“, „Above these City Lights“ og hið undursamlega „Silhouette Palette“ eru fullkomnar blöndur hryssings- og hráleika og haganlega saminna, ægifallegra (að maður tali ekki um ægigrípandi) kafla. Frábær plata frá bestu rokksveit landsins nú um stundir. Megi meðlimir halda vel á rokkspöðunum næstu misseri. Því að þeirra er framtíðin. Amen.

Arnar Eggert Thoroddsen

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Set your Twitter account name in your settings to use the TwitterBar Section.
Follow

Get every new post on this blog delivered to your Inbox.

Join other followers: