Grallarar Backstreet Boys þramma með blásaklaust grenitré.

Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 17. desember, 2022.

„Ég vild’ að alla daga væru jól …“

Venju samkvæmt mun ég nú ræða um nokkrar nýútkomnar jólaplötur, erlendar sem innlendar. Heimtur voru hins vegar tiltölulega dræmar í ár verður að viðurkennast.

Já, þegar stærsta fréttin í þessum efnum er jólaplata með Backstreet Boys, strákasveitinni amerísku, sem var risastór en er það ekki lengur, þá er ljóst að fátt er um fína drætti. En bíðum samt aðeins. Líkt og Take That þá hafa Backstreet Boys notið farsællar endurkomu, eru eðlilega ekki eins miklir risar og fyrir tuttugu árum, en eru engu að síður að keyra sæmilegan feril í dag, njóta vinsælda, jafnvel virðingar. Platan er eins og við mátti búast, sírópslegið ofurpopp og væmnin og ósmekklegheitin botnuð sem aldrei fyrr. Hey, þetta er Ameríka! Draumaverksmiðjan og allt það. Skjannahvítt nútíma doo-wop og allur pakkinn.

Best að færa sig á aðeins skaplegri mið. Alicia Keys, sá mikli meistari, er með jólaplötu sem kallast Santa Baby. Smekklegt r og b og sálartónlist, minnir mig dálítið á ágæta plötu John Legend frá 2019 sem heitir að sjálfsögðu A Legendary Christmas (má líka til með að minnast á endurútgáfu jólaplötunnar The Spirit of Christmas sem Ray Charles gaf út 1985 en hún hefur verið ófáanleg um langa hríð). Fleiri söngkonur eiga plötu í skónum þetta árið. Joss Stone, breska sálarsöngkonukraftaverkið, er með plötu og ekki hljómaði hún vel í fyrsta rennsli. Undarlegur rembingur og fals. Einnig eru plötur í ár frá eitís-popparanum Debbie Gibson og Andreu Corr, sem syngur með Corrs-systkinunum írsku. Þær bíða rannsóknar. Athugið nefnilega, að sumt sem hljómar alveg ágætlega á pappír spilast síðan ekkert sérstaklega vel. Ég minnist þess t.d. að jólaplötur Gwen Stefani (2017) og Kylie Minogue (2015) eru bara allt í lagi, ekki mikið meira, á meðan plötur Noruh Jones (2021) og Kacey Musgraves (2016) eru snilld!

Reyndar hlýtur sá stærsti þetta árið að teljast Cliff Richard, ein skærasta poppstjarna sem skinið hefur í Bretlandi. Hann er sem sagt með nýja jólaplötu, nýjar hljóðritanir, en Cliff er kominn á níræðisaldur, 82 ára. Um er að ræða þriðju jólaplötu okkar manns en áður hafa komið Together with Cliff Richard (1991) og Cliff at Christmas (2003). Svei mér þá, ef þessi nýja, Christmas with Cliff, er ekki bara best. Hinar búa yfir vissri poppslikju, Cliff enn að reyna að halda sér í bransanum en nú þarf hann ekki að sanna neitt lengur eða reyna. Ákveðinn heilagleiki yfir, röddin svona meira og minna farin, en það bara eykur á krúttlegheitin. Chris Isaak á þá jólaplötu, Everybody Knows It‘s Christmas, sem er hans önnur. Árið 2004 kom út hin ágæta Christmas og höggvið er í svipaðan knérunn hér, ballöðukennt, brilljantínsmurt rokk og ról að hætti sjötta áratugarins og þessi einstaka dulúð sem fylgir Isaak, þessu undri sem er hvað þekktast fyrir þennan eina smell sinn, „Wicked Game“.

Tvær plötur vöktu sérstaka athygli mína. Gloria Estefan stendur að plötunni Estefan Family Christmas ásamt dóttur sinni, Emily, og barnabarni, Sasha Estefan-Coppola. Það er mjög skemmtilegur andi yfir plötunni, smá rómanskir/„latin“ straumar og plötuumslagið nikkar til svipaðra platna frá sjöunda og áttunda áratugnum er Jacksons, Osmonds og Sinatra-fjölskyldan hlóðu í svipaða gripi. Þá er hin stórkostlega Macy Gray, sem sló í gegn 1999 með plötunni On How Life Is, með plötu sem hún kallar Christmas with You. Einstök rödd Gray, sem lýsir sér helst í innblásnum rámleika, er sett undir fönkaða, hipphopp-legna tónlist og óeðlilegheitin skila sigri („Blue Christmas“ í bossa nova-útgáfu!?). Æ, það er hressandi að hrista upp í þessu öllu saman endrum og eins.

Nefni líka, áður en ég kveð, þrjár íslenskar plötur sem komu út í ár. Lón gaf út Fimm mínútur í jól, Rakel Páls Með jólin í hjarta mér og Baggalútur Jólasjór. Og þessu fagna ég, við Frónbúar höfum verið að fá ca. 2-4 nýjar íslenskar jólaplötur á ári og um að gera að bæta á þennan lager.

Hafið það gleðilegt og gott, kæru lesendur, í aðdraganda jóla og ekki gleyma að hlusta á tónlist. Hún er best.

 

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Set your Twitter account name in your settings to use the TwitterBar Section.
Follow

Get every new post on this blog delivered to your Inbox.

Join other followers: