Daði og Gagnamagnið Höfundur spáði rétt!

Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 29. febrúar, 2020.

Stiginn hinsti dans…

Í kvöld verður spurt að leikslokum í Söngvakeppninni. Förum aðeins yfir stöðuna af því tilefni, endurmetum lögin og spáum aðeins í spilin.

Pistilritari hefur reynst, tja, missannspár í úttektum sínum á undankeppnunum sem hafa birst í tveimur laugardagsblöðum (þann 8. og 15. febrúar, nánar tiltekið). Svo ekki sé nú meira sagt. Stundum hef ég hitt á rétt, stundum alls ekki, eins og ég mun reifa frekar hér á eftir. Ég hef hlaupið sigurhring og teygað bikar niðurlægingarinnar í botn. Nú ætla ég að taka aðeins til í mínum ranni, pæla þetta áfram og upp á nýtt og spá svo um það, hver fari út til Hollands fyrir okkar hönd í vor. Það er ekkert víst að sú spá klikki.

Ég var hissa, á fyrra undankvöldinu, að Kid Isak skyldi ekki hafa farið áfram. Fannst lagið bæði móðins og ferskt. Sagði það líklegt til árangurs en sú spá gekk ekki eftir. Ég hefði viljað sjá Elísabetu Ormslev í úrslitum sannarlega, frábær söngkona, en lagið var bara ekki gott, því miður. Sjáum til að ári. Einnig vil ég hvetja Brynju Mary til að halda áfram, þó að hún hafi þurft að lúta í gras í einu stykki söngvakeppni. Það er enginn heimsendir. Ísold og Helga og svo Dimma fóru áfram eftir fyrsta kvöldið, og það kom mér ekki á óvart. Dimma er þungarokkssveit íslenskrar alþýðu og í raun formsatriði að hún myndi komast áfram. Birgir Steinn, Ragnar Már og pabbi Birgis, Stefán Hilmarsson, gerðu þá vel í að setja niður „sígilt“ Evróvisjónlag í formi „Klukkan tifar“. Lagið er haganlega samið, „tikkar“ í öll box og saman með útgeislun þeirra stalla var ekki að spyrja að leikslokum.

Hvað seinna kvöldið varðar var ég með reffilega spádóma og enginn þeirra gekk upp. Ef þeim er snúið á rönguna, þá ganga þeir allir upp hins vegar! Ég gerðist meira að segja svo gírugur að ég réðst á meistara Daða og lýsti lagi hans sem soðgrýlu fyrri afreka. Örlaganornirnar komu óðar með refsivöndinn og okkar maður flaug inn í úrslit. Ég stend við þá skoðun mína að besta lag keppninnar sé „Fellibylur“ en hann hlaut ekki náð fyrir eyrum Íslendinga, þó hann hafi bulið hátt. Nú, mitt ótrúlega innsæi í hlutina, eftir hartnær tuttugu ára reynslu við poppskrif, leiddi mig að þeirri niðurstöðu að „Oculis Videre“ væri holt lag, glæsilegar umbúðir utan um ekki neitt. Aftur fékk ég að finna fyrir því og Íva Marín landaði sæti í úrslitum með glans. Og, þegar ég sá hana syngja og nam atriðið allt, skildi ég þetta betur. Eins með Daða, sem býr yfir þeim einstæða hæfileika að geta stillt sjarmann á ellefu og það með vinstri. Ég stend þó við það, að mér fannst „Ekkó“ engan veginn burðugt en Nína stóð sig hins vegar með sóma og sann og það dró hana yfir línuna. Og leiðinlegt að reynsluboltinn Matti hafi ekki farið áfram, mér finnst lagið gott, og Birgir Steinn og Ragnar Már hafa sannað sig sem nokkurs konar völunda þegar kemur að dægurlagagerð.

OK! Hverjir fara áfram? Ég skal segja ykkur það. Daði mun taka þetta, og það örugglega. Ef það verður einvígi verður það á milli hans og Ívu. Og, hún gæti reyndar tekið þetta, það kæmi mér ekki á óvart, en ef þið spyrjið mig (munið, 20 ára reynsla!) segi ég… Daði! Góða skemmtun í kvöld, góðir hálsar. Munið eftir bugðunum, sódavatninu og múnderingunni…

Tagged with:
 

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Set your Twitter account name in your settings to use the TwitterBar Section.
Follow

Get every new post on this blog delivered to your Inbox.

Join other followers: