Bruce Springsteen: Hreinsað upp úr skúffunum
[Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 11. janúar, 2014]
Stjórinn tekur til
• Bruce Springsteen á fyrstu „stóru“ plötu ársins
• High hopes er engu að síður nokkurs konar samantekt
Það segir okkur ýmislegt um þá vigt sem Bruce Springsteen hefur að uppsópsplata, sem ber með sér endurhljóðritanir og afganga, er ein helsta útgáfufréttin í upphafi þessa árs. Það kemur hins vegar ekki á óvart, Springsteen hefur á síðustu árum hægt og bítandi nálgast svið sem menn eins og Dylan og Cash sitja á, þar sem eftirspurn og eftirvænting eftir hverju sem er frá þessum listamönnum er yfirgengileg.
Almennilegt heimili
Þegar poppfræðin hófu innreið sína í akademíuna á níunda áratugnum voru Madonna og Springsteen vinsæl umfjöllunarefni og ekkert lát virðist vera á pælingum um Stjórann frá öllum mögulegum sjónarhornum. Auk hefðbundinna ævisagna, ritaðra af lærðum sem leikum, er list hans og ævi skoðuð út frá trúmálum, stéttarvitund, pólitík og hugmyndinni um „ameríska drauminn“ svo eitthvað sé nefnt. Merkilega margir fræðimenn (karlmenn, í öllum tilvikum) á vissum aldri (ca. 40-65) eru algjörlega hugfangnir af Springsteen og geta skrifað og rætt um hann út í eitt.
Goðsögnin Springsteen styrkist því með hverju árinu og þúsundir sem taka þessari „nýju“ plötu höndum tveim. Platan er kynnt sem átjánda hljóðversskífa Springsteens en sú síðasta, Wrecking Ball, kom út 2012. Um er að ræða að mestu lög sem hafa legið í salti undanfarinn áratug, lög sem rötuðu ekki inn á plötur einhverra hluta vegna, og lýsir Springsteen því að hann hafi viljað búa þessum lögum almennilegt heimili. Þetta er reyndar ekki í fyrsta skipti sem Springsteen hefur lagst í svona æfingar. Sem tónlistarmaður er hann afar upptekinn af heildarmynd þegar gefa skal út plötur og hefur margsinnis fórnað frábærum smíðum á kostnað heildarinnar. Þetta átti sérstaklega við í kringum upptökur á meistaraverki hans, Darkness on the Edge of town (1978), en lög frá því tímabili litu loks dagsins ljós árið 2010 á tvöföldu plötunni The Promise. Einnig kom út, árið 1998, fjórfaldur kassi undir heitinu Tracks sem inniheldur viðlíka efni og svo skipta sjóræningjaútgáfur tugum.
Enn eru afgangar
Á plötunni nýtur Springsteen fulltingis sveitar sinnar, E Street band, og heyra má í tveimur föllnum félögum, þeim Clarence Clemons og Danny Federici. Einnig kemur Tom Morello, gítarleikari Rage Against The Machine, við sögu. Vinna hófst í desember 2012 og var plötunni klastrað saman í hléum frá hinu umfangsmikla Wrecking Ball-hljómleikaferðalagi.
Titillag plötunnar er nærfellt tuttugu ára gamalt og kom upprunalega út á stuttskífunni Blood Brothers árið 1995. Lagið „American Skin (41 Shots)“ fær loksins vísan stað en hljóðversútgáfa af því hefur hingað til aðeins verið til á sjaldgæfri kynningarplötu sem kom út 2001. Fjölmörg lög eru þá frá tímabilinu 2002-2008, ætluð á plötur en pössuðu svo ekki inn í hina helgu heildarmynd Stjórans. Tvö tökulög prýða gripinn; „Just Like Fire Would“, lag sem ástralska pönksveitin The Saints gaf út árið 1986, og „Dream Baby Dream“ eftir Suicide, sem Springsteen hefur flutt margsinnis á tónleikum undanfarin ár. Fleiri lög voru tekin upp sem náðu ekki inn á plötuna. Við sjáum því fram á afgangaplötu byggða á afgangaplötu. Ef einhver kemst upp með slíkt í dag þá er það Bruce Springsteen.
Stikkorðaský
Abba ATP Björk Bob Dylan Bryan Ferry Bubbi Bára Gísladóttir Bítlarnir Cyber David Bowie Eurovision Evróvisjón Færeyjar Grænland Gyða Valtýsdóttir Harpa Hildur Guðnadóttir Ian Anderson Iceland Airwaves Jethro Tull Jóhann Jóhannsson jólatónlist Kælan Mikla Misþyrming Morgunblaðið múm Músíktilraunir Nick Cave Nordic Music Prize Norrænu tónlistarverðlaunin Nuuk Nuuk Nordic Culture Festival One Direction post-dreifing President Bongo Reptilicus sigur rós Skotland Skúli Sverrisson Söngvakeppnin Söngvakeppni Sjónvarpsins Thick As A Brick tónleikar tónlist ... er tónlist íslenskur plötudómurUmræðan
- Hjörtur Geirsson on Plötudómur: Bubbi – Dansaðu
- PtaXa on Plötudómur: Ingibjörg Turchi – Stropha
- Ilmu Komunikasi on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Manajemen on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Ilmu Forensik on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Biomedis on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Informatika on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- SO on Plötudómur: Bubbi – Ljós og skuggar
- Irgi Zanuar on Viðtal: Egill Ólafsson
- Sains Data on Uppgjör: Nuuk Nordic Culture Festival 2019
Safn
- December 2024
- November 2024
- October 2024
- September 2024
- August 2024
- July 2024
- June 2024
- May 2024
- April 2024
- March 2024
- February 2024
- January 2024
- December 2023
- November 2023
- October 2023
- September 2023
- August 2023
- July 2023
- June 2023
- May 2023
- April 2023
- March 2023
- February 2023
- January 2023
- December 2022
- November 2022
- October 2022
- September 2022
- August 2022
- July 2022
- June 2022
- May 2022
- April 2022
- March 2022
- February 2022
- January 2022
- December 2021
- November 2021
- October 2021
- September 2021
- August 2021
- July 2021
- June 2021
- May 2021
- April 2021
- March 2021
- February 2021
- January 2021
- December 2020
- November 2020
- October 2020
- September 2020
- August 2020
- July 2020
- June 2020
- May 2020
- April 2020
- March 2020
- February 2020
- January 2020
- December 2019
- November 2019
- October 2019
- September 2019
- August 2019
- July 2019
- June 2019
- May 2019
- April 2019
- March 2019
- February 2019
- January 2019
- December 2018
- November 2018
- October 2018
- September 2018
- August 2018
- July 2018
- June 2018
- May 2018
- April 2018
- March 2018
- February 2018
- January 2018
- December 2017
- November 2017
- October 2017
- September 2017
- August 2017
- July 2017
- June 2017
- May 2017
- April 2017
- March 2017
- January 2017
- December 2016
- November 2016
- October 2016
- September 2016
- August 2016
- July 2016
- June 2016
- May 2016
- April 2016
- March 2016
- February 2016
- January 2016
- December 2015
- November 2015
- October 2015
- September 2015
- August 2015
- July 2015
- June 2015
- May 2015
- April 2015
- March 2015
- February 2015
- January 2015
- December 2014
- November 2014
- October 2014
- September 2014
- August 2014
- July 2014
- June 2014
- May 2014
- April 2014
- March 2014
- February 2014
- January 2014
- December 2013
- November 2013
- October 2013
- September 2013
- August 2013
- July 2013
- June 2013
- May 2013
- April 2013
- March 2013
- February 2013
- January 2013
- December 2012
- November 2012
- October 2012
- September 2012
- August 2012
- July 2012
- June 2012
- May 2012