beck

[Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 4. janúar, 2014]

Hvað segir tónlistarvölvan?

• Hvað mun bera hæst á nýhöfnu tónlistarári?
• Ýmsir titlar staðfestir en aðrir eru á vangaveltustigi

Maður er svona nýbyrjaður að kanna allar þessar plötur sem fóru framhjá manni á síðasta ári og þá er þegar farið að birta langar og ítarlegar greinar um það sem í vændum er á þessu ári! Kannski hyggilegast að lesa þær rækilega svo maður sé ekki hlaupandi um eins og hauslaus hæna alltaf hreint í desember. Ég ætla að tæpa á þeim „stærstu“ í þessum pistli og hendi líka inn „minni“ plötum en þeim mun forvitnilegri.

Fregnir herma að…

Það hefur verið mikið suðað um plötu sem kemur út núna í næstu viku, nýja plötu Bruce Springsteen, High Hopes. Platan er reyndar nokkurs konar afgangasafn en einhvers staðar sagði að það sem Stjórinn setti til hliðar á disknum sínum væri betra en gómsætur aðalréttur flestra. Jamm… Stjóradýrkunin getur verið mikil og ég er sekur sem syndin í þeim efnum. En höldum okkur við stórlaxana, Beck kemur með nýtt verk í febrúar og ný U2 plata hefur verið sett á í apríl. Athugið að allar dagsetningar ber þó að nálgast með fyrirvara og sumar platnanna hafa enn engar slíkar. U2 snúa aftur eftir allnokkurt hlé og það gerir Slipknot einnig í ár. Ný Metallica-plata er þá óstaðfest og ný Guns’n’ Roses einnig. Reyndar má fastlega gera ráð fyrir því að sú síðarnefnda komi ekki út, sé litið til sögu þeirrar sveitar. Foo Fighters snúa þá einnig aftur og von er á nýrri plötu frá Fleet Foxes líka en fréttir eru því miður fremur óljósar. Síðasta plata, Helplessness Blues (2011), olli mér vonbrigðum og ég er því nokk spenntur fyrir þessari.
Lana Del Rey ætlar að gefa út plötuna Ultraviolence og eru margir á iði vegna þessa en spáð er ímyndaryfirhalningu að hætti David Bowie. Merkilegt hvað margir af vinsælustu listamönnum heims eru um leið hin mestu ólíkindatól og þannig á plata Azaeliu Banks víst að vera vel súr, en vonandi kemur hún út í ár en hún virðist ætla að hafa endalausan aðdraganda og hefur henni verið frestað trekk í trekk. Aðrir ugluspeglar eins og Frank Ocean og Kanye West verða með plötur og Lily Allen ætlar að snúa aftur með bravúr á þessu ári og er þegar er farin að undirbúa slíkt með yfirlýsingaglöðum viðtölum. Það er þá gleðilegt að framúrskarandi listamenn á borð við St. Vincent og Bat for Lashes munu leggja í púkkið, sem og poppjöfrarnir Grimes og Robyn. Mesta fiðringinn vekur þó frétt þess efnis að von sé á nýrri plötu frá hinni ótrúlegu Joönnu Newsom en síðasta plata, Have One on Me, kom út 2010. Þá er líklegt – en kannski ekki – að Adele gefi út nýja plötu í ár og ku hún bera titilinn 26, í takt við síðustu plötuheiti. Síðasta plata, 21, sló nærfellt öll met sem hægt var að slá og pressan því talsverð. Alexis Petridis hjá Guardian spáir því að platan muni koma út að hætti Beyonce og er það glúrið mat hjá Petridis, þar sem sú aðferðafræði skilaði gríðarlegum árangri og ætti að virka vel fyrir viðlíka ofurstjörnu. Eða hvað?

Forvitnilegt

Belle and Sebastian mun gefa út nýtt efni í ár og er það vel, svo og hin ógurlega Swans. Öflugar indísveitir eins og Spoon og The New Pornographers verða með plötur og „Ameríkana“ risarnir The Hold Steady og Drive-By Truckers einnig. Styrkjandi líka að sjá nafn Wilco og ég hlakka til að heyra nýtt efni frá Lindu Perhacs, einum helsta áhrifavaldi Juliu Holter sem átti eina af betri plötum síðasta árs. Neneh Cherry átti rosalega plötu árið 2012 með framsækna djasstríóinu The Thing og það verður athyglivert að heyra meira frá henni í ár. Og að lokum, Mark Kozelek: Sings Christmas Carols kemur út í nóvember á þessu ári. Það verður eitthvað!

2014 tonlist i arsbyrjun mbl

 

Tagged with:
 

2 Responses to 2014: Hvað er framundan?

  1. Guðmundur Erlingsson says:

    Xiu Xiu og John Cale gætu líka verið spennandi. Og talandi um gamla rokkara þá eiga víst að koma nýjar plötur með AC/DC, Anthrax og Cult.

  2. Ingimar Neinei Bjarnason says:

    Þú slepptir nýrri plötu frá "hljómsveit" Mark Kozelek en Benji kemur út í febrúar. Einnig Stephen Malkmus and The Jicks sem kemur út núna á þriðjudaginn.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Set your Twitter account name in your settings to use the TwitterBar Section.
Follow

Get every new post on this blog delivered to your Inbox.

Join other followers: