[Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 14. júlí]

14. júlí 2012 | Innlendar fréttir | 510 orð | 2 myndir

Eplið og eikin

• Fiona Apple gaf út fjórðu breiðskífu sína fyrir stuttu
• Einstök listakona sem starfar eftir eigin lögmálum

Fiona Apple er í einhverri metabókinni fyrir lengsta plötutitilinn. Enda kallast önnur plata hennar When the Pawn Hits the Conflicts He Thinks Like a King What He Knows Throws the Blows When He Goes to the Fight and He’ll Win the Whole Thing ‘Fore He Enters the Ring There’s No Body to Batter When Your Mind Is Your Might So When You Go Solo, You Hold Your Own Hand and Remember That Depth Is the Greatest of Heights and If You Know Where You Stand, Then You Know Where to Land and If You Fall It Won’t Matter, Cuz You’ll Know That You’re Right. Náðuð þið þessu? Fjórða plata hennar, sem er nýútkomin ber því stuttan og laggóðan titil: The Idler Wheel Is Wiser Than the Driver of the Screw and Whipping Cords Will Serve You More Than Ropes Will Ever Do. Kíkjum á þetta mál…

Fyrsta plata Apple, Tidal, kom út 1996 en þá var hún aðeins átján ára gömul. Klárt var að hér var mikið efni á ferðinni, innihaldið einlæg, á stundum píanódrifin söngvaskáldatónlist. Dimmt yfir og dramatískt og Kate Bush og Tori Amos poppa óneitanlega upp í hugann, jafnvel risar eins og Joni Mitchell og Carole King.En eins og segir, dimmt yfir á köflum og síðar átti eftir að koma í ljós að ýmsir djöflar keyrðu tónsköpun Apple áfram, okkur til heilla og höfundi til talsverðra heilla líka þar sem Apple var mjög svo greinilega að nýta hæfileika sína til að viðhalda andlegu jafnvægi og græða gömul – og í raun óbætanleg – sár. Tidal gekk vel í Ameríkunni enda tímasetningin fullkomin. Fimm árum fyrr hafði Nirvana greitt leið óhefðbundins rokk í meginstrauminn og listamenn eins og Beck og Eels fengu að dansa óáreittir um á öldum ljósvakans þrátt fyrir að búa yfir miklum listrænum tiktúrum. Á þessu græddi Apple.

Leynd

Næsta plata á eftir, áðurnefnd When The Pawn… var til muna tilraunakenndara verk og algerlega án málamiðlana. Virðing Apple jókst í kjölfarið og fólk tók um leið andköf yfir magnaðri sögu stúlkunnar. Henni var nauðgað tólf ára gamalli, stríddi við þunglyndi, átröskun o.s.frv. When The Pawn… kom út 1999 en næsta plata ekki fyrr en sex árum síðar. Extraordinary Machine lenti í kröggum jakkafatanna ef svo mætti segja, yfirmenn hjá Epic þráuðust við að gefa plötuna út og svo fór að lokum að henni var lekið á netið. Platan vakti síðan mikla lukku hjá tónlistaraðdáendum og Apple ekki búin að taka tónlistarlegt feilspor hingað til þrátt fyrir að hafa fetað örðuga ævistigu að öðru leyti.
The Idler Wheel… kom út í síðasta mánuði og fór beint í þriðja sæti Billboard-listans. Auk þess hafa gagnrýnendur keppst við að ausa hana lofi. Líkt og Eels og Beck sem ég nefndi hér áður nær Apple að samþætta tvo hluti, vinsældir og listræna vigt, eitthvað sem er síst öllum gefið. Apple tók heldur enga áhættu gagnvart útgáfufyrirtækinu núna en fulltrúar Epic vissu ekki af því að hún væri búin með plötu fyrr en hún afhenti þeim hana. Og í þetta sinnið biðu menn ekki boðanna með að gefa út…

Tagged with:
 

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Set your Twitter account name in your settings to use the TwitterBar Section.
Follow

Get every new post on this blog delivered to your Inbox.

Join other followers: