Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 15. janúar, 2022

Snúið, skælt og skrítið

Countess Malaise og Lord Pusswhip gáfu út plötur í fyrra en bæði hafa verið áberandi í íslensku neðanjarðarrappi.

Íslenskt hipphopp þrífst alla jafna vel í dag og meginstraumsrapparar starfa árið um kring. Tónlistin er alls ekki jafn viðkvæm fyrir duttlungum tískunnar og áður en þegar fyrstu íslensku rappbylgjunni lauk ca. 2003 tók við sæmilegasta þurrkatíð árin á eftir. Nöfn og nöfn en engin heildstæð sena. Hipphoppið er hins vegar orðið það stórt á heimsvísu að ekki er hægt að tala lengur um senu sem er hverfulleika undirorpin. Líkt og erlendis er hipphoppheimurinn óhagganlegur þó að vissulega sé hægt að greina nokkrar og ólíkar senur innan hans.

Og þegar maður horfir yfir íslenska sviðið sjáum við popprappara, gáfnarappara, „Soundcloud“-rappara og svo framvegis. Tveir af helstu neðanjarðarröppurunum okkar gáfu þannig út nýtt efni fyrir stuttu og ég ætla að gera það að sérstöku umtalsefni hér.

Fyrst ber að nefna nýja plötu frá Countess Malaise, Maldita . Eftir að hafa komið frá sér stökum lögum lengi vel í gegnum Soundcloud og álíka efnisveitur gaf hún út breiðskífu í fullri lengd haustið 2019. Stemningin á þeirri plötu er myrk, erfið, grimm og útgangspunkturinn í senn hetjulegur og afdráttarlaus. Textar um geðveilu, kynjausla, ofbeldi og femínisma. Valdeflandi verk á marga vegu og það vel heppnað að platan var tilnefnd til Norrænu tónlistarverðlaunanna árið eftir (by:Larm).

Nýja platan, Maldita , kom út síðasta haust og þar er höggvið í svipaðan knérunn. Hart og hrátt yfirbragð, kraftur og ástríða en líka mýkt og fegurð, sjá hið dáyndislega „Anticipation pt. 2“ og líka „All by myself“ þar sem Countess gengur ansi nærri sér og setur hlutina skammlaust upp á borðið. Víst að greifynjan lætur ekki setja sig í einfalt box og fjölbreytt flæðið er styrkur.

Upptökustjórnandi Maldita er Lord Pusswhip en hann læddi og út frá sér nýju efni á dögunum. Pusswhip hefur lengi verið virkur í neðanjarðarsenunni og gefur reglubundið út efni. Þessi plata, Lord Pusswhip Is Rich , kom út síðasta nóvember en hefur verið í vinnslu síðan árið 2015. Platan er lokahluti af þríleik sem byrjaði með fyrstu plötu hans, Lord Pusswhip is Wack , árið 2015 og var fylgt eftir með safnplötunni Lord Pusswhip is Dead árið 2017. Platan var samin á ferðalögum Pusswhips í gegnum Evrópu og Bandaríkin á seinustu árum – nánar tiltekið í Reykjavík, Berlín, Lundúnum, Amsterdam, Los Angeles og New York. Ekki amalegt að hafa haft færi á að dýfa sér í svona sköpunarglöð svæði enda bera útgáfurnar og samstarfsmenn því vitni, alþjóðlegt samstarf rennur í gegnum verkin þar sem góð nettenging nægir oft til að búa til einhverja snilld í sameiningu. Meðal gesta á plötunni eru Íslandsvinurinn Left Brain sem gerði garðinn frægan með hljómsveitinni Odd Future, rapparinn Trippjones frá New York, söngkonan Avice Caro frá Lundúnum og tónlistarmaðurinn Dviance frá Frakklandi.

Platan fer líka efnislega yfir víðan völl – allt frá rappi og danstónlist yfir í hávaða og sveimtónlist. Þægilegar, ósungnar stemmur þar sem vírað andrúmsloftið gefur eiginlega aldrei neitt öryggi til kynna, maður veit aldrei hvert farið verður með mann næst hljóðrænt séð. Er það vel.

Platan er fyrsta útgáfan í nýrri plötuútgáfu Lord Pusswhip sem ber heitið Heavy Knife Records og „mun leggja áherslu á framúrskarandi íslenska tónlist“, eins og segir í tilkynningu.

 

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Set your Twitter account name in your settings to use the TwitterBar Section.
Follow

Get every new post on this blog delivered to your Inbox.

Join other followers: