Kynngimagnað Bára Gísladóttir ásamt hluta meðleikara sinna í Hallgrímskirkju. — Ljósmynd/Juliette Rowland

Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 3. desember, 2022.

Ver sterk mín sál

Víddir, verk Báru Gísladóttur sem tilnefnt var til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs, er komið út. Orðið „magnþrungið“ nær engan veginn utan um þá dýrð sem okkur er hér veitt.

Dálæti mitt á Báru Gísladóttur þekkir engin takmörk enda er hún takmarkalaus í tónlistinni. Með ólíkindum framsækin og næm listakona, hvers vöxtur hefur verið með miklum ólíkindum undanfarin misseri. Hér ætla ég að gera verkið Víddir að umtalsefni en það kom út á vegum hinnar dönsku Dacapo Records fyrir stuttu sem niðurhal og streymi. Upptakan var gerð í Hallgrímskirkju í mars á þessu ári, þegar verkið var flutt á Myrkum músíkdögum. Verkið var hins vegar frumflutt í Grundtvigskirkjunni í Kaupmannahöfn í febrúar 2020 og var það hugsað sérstaklega út frá arkitektúr og hljóðvist kirkjunnar, hún verandi „fimmtándi“ flytjandinn samkvæmt Báru (og rými Hallgrímskirkju er áþekkt Grundtvigs). Verkið er útskriftarverkefni Báru frá Konunglegu dönsku tónlistarakademíunni í Kaupmannahöfn.

Aðrir flytjendur eru Björg Brjánsdóttir, Berglind María Tómasdóttir, Dagný Marinósdóttir, Þuríður Jónsdóttir og Pamela De Sensi (bassa­flautur), Steinunn Vala Pálsdóttir og Áshildur Haraldsdóttir (altflautur), Kristín Ýr Jónsdóttir (flauta), Sólveig Magnúsdóttir (pikkólóflauta), Frank Aarnink, Kjartan Guðnason og Matthias Engler (slagverk), Skúli Sverrisson (rafbassi) og Bára Gísladóttir (kontrabassi).

Ég hlýddi á verkið meðan ég skrifaði, eðlilega, og varð uppnuminn eins og gengur. Hamraði inn þennan texta og sendi á kollega á messenger-­forritinu í flýti. Afsakið slettur og óheflað málfar: „Þetta er svo fokk kreisí verk. Svo þungt … en svo fallegt … og carnal geðveiki … eitthvað algert innsta kjarna dæmi sem er í gangi líka. Ég eiginlega læsist alltaf þegar ég hlusta á Báru. Hún er algerlega einstök.“

Þegar maður hittir Báru er hún líkt og í andstöðu við þau ósköp og ógurlegheit sem hún á til að knýja fram sem tónskáld. Blíð, kurteis og ljúf og áran falleg. En já, það er það. Áran. Því að í gegnum tónlist Báru hef ég upplifað slíkar drunur, hávaða og brjálæði að ég er ekki bara kominn á bríkina, ég er búinn að éta af mér allar neglurnar líka! En um leið – og hér er þessi óskapagaldur – finn ég svo djúpa og gegnheila fegurð að ég klökkna. Fegurðin er svo umlykjandi, svo sönn og svo stingandi að ég grét á meðan ég og meðdóm­ari minn kynntum Norðurlandaráðsdómnefndinni verkið.

Víddir hefst rólega, en það er spenna frá fyrstu sekúndu. Bassaflautuleikararnir rymja og hvæsa í hljóðfæri sín og einu sinni öskra þeir í þau af öllum lífs- og sálarkröftum. Svona byrjar maður verk! Við tekur rólegri fasi, kontrabassi og rafbassi varpa upp lævi blöndnu andrúmi, fallegt og leiðslukennt en tilfinnanleg hætta lúrandi á bak við einhvers staðar líka. Eyrun eru sperrt, allar þær 60 mínútur eða svo sem verkið stendur yfir. Á 40. mínútu eða svo koma slagverksleikararnir inn í kafla sem ekki er hægt að lýsa öðruvísi en guðdómlegum. Það er eitthvað í þessum örfáu mínútum sem nær að opna hliðið að himnaríki svei mér þá. Ótrúlegt. Organdi flautuleikararnir koma inn aftur og setja þennan erfiða „líkamsblæ“ á framvinduna, það sem ég kalla „carnal geðveiki“ í skilaboðunum. Það eru átök í verkinu, sveiflur, sem gefa því mjög flottan blæ. Og svo, og þetta er það mikilvægasta finnst mér: allt sem Bára gerir hér er fullkomlega stælalaust. Öll furðulegheit, hávaði, uppbrot o.s.frv., allt þjónar þetta tónlistinni að fullu. Ekkert rugl, bara snilld.

Ég hef það fyrir satt að þeir sem upplifðu þennan flutning í Hallgrímskirkju gengu út í Reykjavíkurnóttina í hálfgerðri leiðslu. Það hlýtur bara að vera, enda er ég sjálfur kominn í leiðslu við að rita þessi orð.

 

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Set your Twitter account name in your settings to use the TwitterBar Section.
Follow

Get every new post on this blog delivered to your Inbox.

Join other followers: