Bítlarnir: Enn og aftur í BBC
[Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 16. nóvember, 2013]
Bítl í viðtækjunum
• Tvöföld plata með upptökum sem Bítlarnir gerðu fyrir BBC komin út
• Um er að ræða skammt tvö, en sá fyrri kom út fyrir nítján árum síðan
Það var árið 1994 sem Live at the BBC kom út en plata sú inniheldur lög sem Bítlarnir tóku upp fyrir ýmsa útvarpsþætti breska ríkisútvarpsins árin 1963-1965. Forfallnir Bítlaaðdáendur (sem eru skuggalega margir, sá er ritar einn þeirra) tóku þessu fagnandi og skemmtileg viðbót við plötuna voru gáskafull viðtalsbrot þar sem Bítlarnir fóru á kostum eins og alltaf á þessum sokkabandsárum.
Jólasokkar
Platan sem er til umfjöllunar hér, On Air – Live at the BBC Volume 2, er beint framhald af þeirri plötu, 39 lög með 24 viðtalsbrotum. Þó að nú liggi fyrir alls fjórir stútfullir geisladiskar af þessu efni eru hirslur BBC langt í frá tæmdar. Lögin sem er að finna á plötunum eru þessi þekktustu tökulög Bítlanna í bland við frumsamin lög þannig að þeir sem vilja heyra nýjar smíðar eða óþekkjanlegar útgáfur af þekktum lögum grípa í tómt. En slíkt er aðdráttarafl Bítlanna að allt útlit er fyrir að platan rati í ófáa jólasokkana, ef marka ber umfang fjölmiðlaumfjöllunar og stöðu plötunnar nú á sölulistum helstu vefverslana. Stephen Thomas Erlewine, ritstjóri allmusic.com, lýsti því yfir á fésbókarsetri sínu að hann „tæki fegins hendi við öllu því sem að honum væri rétt“ hvað þessu viðkemur og mælir hann þar fyrir munn margra. Téður Erlewine er búinn að rita dóm um gripinn og nefnir að frumsamin lög séu fleiri en síðast, á kostnað tökulaganna. Harmar hann það, segir að skemmtilegra sé að heyra hversu frábærir túlkendur Bítlarnir voru á þessum árum fremur en að upplifa tiltölulega hrein rennsli í gegnum sjálf Bítlalögin. Mig grunar að einhverjir kunni að vera ósammála þessu; þó að snerilhljómurinn í „I Feel Fine“ sé með aðeins öðruvísi blæ en á opinberu útgáfunni gefur það engu að síður tilefni til langra og ítarlegra umræðna fram á rauðanótt – trúið mér, ég tek reglulega þátt í svona rökræðum og fæ aldrei nóg!
Geðheilsa
Á hvorum disk fyrir sig eru svo lengri viðtöl við hvern og einn Bítil, tekin árin ’65 og ’66. Gagnrýnendur hafa bent á hversu mikill munur er á þessum viðtölum og þeim sem voru tekin aðeins tveimur árum fyrr. Galgopahátturinn endalausi hefur vikið fyrir djúpþenkjandi ungum mönnum, þeir voru í raun réttri orðnir hoknir af reynslu á undraskjótum tíma og menn eru enn að melta það hvernig meðlimir sluppu tiltölulega óskaddaðir á geði frá þessu ótrúlega tímabili („tiltölulega“ er lykilorðið hér).
Útgáfurisinn Universal á nú Bítlalögin, sem höfðu áður verið í eigu EMI. Apple hefur þó enn lokaorðið í öllu sem viðkemur Bítli sem útskýrir natnina í allri útgáfunni og líka af hverju það er ekki hreinlega meira af henni. Einhverjir myndu nýta sér þessi gullegg og gefa út alls kyns safnplötur og dótarí þar sem – sorglegt en satt – allt yrði þetta keypt í tonnatali. Apple heldur því venjulega að sér höndum en engu að síður er því spáð að þriðja skammti af viðlíka efni verði snarað út, fyrr eða síðar. Ekki bíða samt í tuttugu ár. Ég er að verða jafngamall – og jafngeðveikur – og þessir gömlu Bítlakallar sem ég hló að þegar ég var ungur og vitlaus(ari).
Stikkorðaský
Abba ATP Björk Bob Dylan Bryan Ferry Bubbi Bára Gísladóttir Bítlarnir Cyber David Bowie Eurovision Evróvisjón Færeyjar Grænland Gyða Valtýsdóttir Harpa Hildur Guðnadóttir Ian Anderson Iceland Airwaves Jethro Tull Jóhann Jóhannsson jólatónlist Kælan Mikla Misþyrming Morgunblaðið múm Músíktilraunir Nick Cave Nordic Music Prize Norrænu tónlistarverðlaunin Nuuk Nuuk Nordic Culture Festival One Direction post-dreifing President Bongo Reptilicus sigur rós Skotland Skúli Sverrisson Söngvakeppnin Söngvakeppni Sjónvarpsins Thick As A Brick tónleikar tónlist ... er tónlist íslenskur plötudómurUmræðan
- Hjörtur Geirsson on Plötudómur: Bubbi – Dansaðu
- PtaXa on Plötudómur: Ingibjörg Turchi – Stropha
- Ilmu Komunikasi on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Manajemen on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Ilmu Forensik on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Biomedis on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Informatika on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- SO on Plötudómur: Bubbi – Ljós og skuggar
- Irgi Zanuar on Viðtal: Egill Ólafsson
- Sains Data on Uppgjör: Nuuk Nordic Culture Festival 2019
Safn
- December 2024
- November 2024
- October 2024
- September 2024
- August 2024
- July 2024
- June 2024
- May 2024
- April 2024
- March 2024
- February 2024
- January 2024
- December 2023
- November 2023
- October 2023
- September 2023
- August 2023
- July 2023
- June 2023
- May 2023
- April 2023
- March 2023
- February 2023
- January 2023
- December 2022
- November 2022
- October 2022
- September 2022
- August 2022
- July 2022
- June 2022
- May 2022
- April 2022
- March 2022
- February 2022
- January 2022
- December 2021
- November 2021
- October 2021
- September 2021
- August 2021
- July 2021
- June 2021
- May 2021
- April 2021
- March 2021
- February 2021
- January 2021
- December 2020
- November 2020
- October 2020
- September 2020
- August 2020
- July 2020
- June 2020
- May 2020
- April 2020
- March 2020
- February 2020
- January 2020
- December 2019
- November 2019
- October 2019
- September 2019
- August 2019
- July 2019
- June 2019
- May 2019
- April 2019
- March 2019
- February 2019
- January 2019
- December 2018
- November 2018
- October 2018
- September 2018
- August 2018
- July 2018
- June 2018
- May 2018
- April 2018
- March 2018
- February 2018
- January 2018
- December 2017
- November 2017
- October 2017
- September 2017
- August 2017
- July 2017
- June 2017
- May 2017
- April 2017
- March 2017
- January 2017
- December 2016
- November 2016
- October 2016
- September 2016
- August 2016
- July 2016
- June 2016
- May 2016
- April 2016
- March 2016
- February 2016
- January 2016
- December 2015
- November 2015
- October 2015
- September 2015
- August 2015
- July 2015
- June 2015
- May 2015
- April 2015
- March 2015
- February 2015
- January 2015
- December 2014
- November 2014
- October 2014
- September 2014
- August 2014
- July 2014
- June 2014
- May 2014
- April 2014
- March 2014
- February 2014
- January 2014
- December 2013
- November 2013
- October 2013
- September 2013
- August 2013
- July 2013
- June 2013
- May 2013
- April 2013
- March 2013
- February 2013
- January 2013
- December 2012
- November 2012
- October 2012
- September 2012
- August 2012
- July 2012
- June 2012
- May 2012