Fréttaskýring: Lorde

Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, fimmtudaginn 3. júlí.
Tignust allra …
Ný plata Lorde, Virgin, kom út 27. júní síðastliðinn. Þetta er fjórða breiðskífa nýsjálensku söngkonunnar sem vakti fyrst athygli með hinni mögnuðu Pure Heroine árið 2013.
Á einhvern hátt er það að duga eða drepast fyrir Lorde, sem foreldrarnir þekkja sem Ellu Mariju Lani Yelich-O’Connor. Lorde rekur ættir sínar til Króatíu og Írlands og það var árið 2013 sem frumburður hennar, Pure Heroine, sló óforvarandis í gegn. Þá var hún aðeins sextán ára gömul. Gotneskur blærinn, dulúðin og brosleysið knúði fram samanburð við hina bandarísku Lönu Del Rey sem plægði ekki ósvipaðan fagurfræðiakur. En á meðan Del Rey vann með glys, gömlu Hollywood og brostnar ástir var Lorde einhvern veginn evrópskari, dekkri. Nær Siouxsie Sioux en Gretu Garbo.
Pure Heroine var gríðarlega vel tekið, naumhyggjuleg nálgunin við nútímapopp þótti framsækin og ljóst varð að Billie Eilish var a.m.k. að glósa hjá sér. Á meðan Lana Del Rey passaði upp á leyndardómsfulla fjarlægð – sérstaklega í blábyrjun ferilsins – var Lorde að tæta upp úr dagbókunum, hellandi úr hjartanu. Án þess þó að missa niður þessa feimnu, smá hættulegu, gotastelpuímynd.
En á meðan Del Rey dældi út plötum fyrst um sinn var Lorde ekki jafn snögg upp á lagið. Þegar önnur plata Lorde, Melodrama, kom út árið 2017 var Del Rey á sinni fimmtu. Og þó að Melodrama hafi náð að viðhalda listrænu skriði Lorde – margir gagnrýnendur sögðu hana toppa fyrstu breiðskífuna og Jack Antonoff, samverkamaður Del Rey til margra ára, sá um upptökustjórn – skaut hún henni ekki á ofurstjörnuhimininn. Sala var undir væntingum og eins var með leikvangatúr í kjölfarið.
Það reynist oft heilladrjúgt þegar staðan er þessi að taka u-beygju, hrista upp í hlutunum, gera eitthvað nýtt. Það gerði Lorde svo sannarlega með Solar Power (2021) sem var léttari og poppaðri en allt það sem hún hafði áður gert (umslagið undirstrikar þetta hressilega). Hins vegar var enginn til í þetta. Platan floppaði og fólk greinilega svo upptekið af innhverfa herbergisljóðskáldinu að það bara höndlaði ekki að sjá Lorde í góðum gír niðri á strönd. Gagnrýnendur voru í mesta lagi volgir, talað var um að platan væri ekki nema hálfbökuð o.s.frv. Góð ráð urðu æ dýrari.
Ég hef alltaf verið hrifinn af Lorde og fannst þessi fyrsta plata eitthvað svo rosaleg. En svo sá maður á eftir listakonunni – eins og svo mörgum – inn í ömurlega mulningsvél poppheima. En. Lorde er enn hér. Heldur sinni stöðu, já, ótrúlegt, og það hefur verið spenna fyrir nýju plötunni. Og nú er allt undir. Frábær fyrsta plata, haldið í horfinu á þeirri seinni og svo pomp á þriðju. Hvernig ætlar hún þá að spila þetta á fjórðu plötunni?
Margir upptökustjórar koma að Virgin og þau lög sem þegar hafa komið út eru stáli slegin, nokk kuldaleg og renna um svalan nútímapoppstokk. Femínismi, sjálfsmynd, gegnsæi, hráleiki og heilindi eru á meðal þeirra þema sem rannsökuð eru í textum. Sólin er því farin, myrkrið hefur steypst yfir á nýjan leik og umslagið minnir helst á plötu með „industrial“-risunum í Nine Inch Nails!
Það á því greinilega að sækja gömlu Lorde-hundana með þessu verki. Endurreisn en líka afturhvarf. Platan hefur verið á meðal oss í nokkra daga þegar þetta er birt og vonandi að hagur strympu hækki.
Stikkorðaský
Abba ATP Björk Bob Dylan Bubbi Bára Gísladóttir Bítlarnir Cyber David Bowie Eurovision Evróvisjón Færeyjar GDRN Grænland HAM Harpa Hildur Guðnadóttir Ian Anderson Iceland Airwaves Jethro Tull Jóhann Jóhannsson jólatónlist Kælan Mikla Misþyrming Morgunblaðið múm Músíktilraunir Neil Young Nick Cave Nordic Music Prize Norrænu tónlistarverðlaunin Nuuk Nuuk Nordic Culture Festival post-dreifing President Bongo Reptilicus sigur rós Skotland Skúli Sverrisson Söngvakeppnin Söngvakeppni Sjónvarpsins Thick As A Brick tónleikar tónlist ... er tónlist íslenskur plötudómurUmræðan
- Alfun adam on Skýrzla: Íslensk óhljóðalist anno 2025
- kistianto Abdullah on Plötudómur: Nýdönsk – Í raunheimum
- kistianto Abdullah on Plötudómur: Björg Brjánsdóttir & Bára Gísladóttir – GROWL POWER
- kistianto Abdullah on Plötudómur: Davíðsson – Lifelines
- kistianto Abdullah on Fréttaskýring: Staða tónleikahalds í Reykjavík
- kistianto Abdullah on Plötudómur: Magnús Jóhann / Óskar Guðjónsson – Fermented Friendship
- antok on Fréttaskýring: Kendrick, Trump, Ofurskálin o.fl.
- antok on Fréttaskýring: Liam Payne og fallvaltleikinn
- Hjörtur Geirsson on Plötudómur: Bubbi – Dansaðu
- PtaXa on Plötudómur: Ingibjörg Turchi – Stropha
Safn
- July 2025
- June 2025
- May 2025
- April 2025
- March 2025
- February 2025
- January 2025
- December 2024
- November 2024
- October 2024
- September 2024
- August 2024
- July 2024
- June 2024
- May 2024
- April 2024
- March 2024
- February 2024
- January 2024
- December 2023
- November 2023
- October 2023
- September 2023
- August 2023
- July 2023
- June 2023
- May 2023
- April 2023
- March 2023
- February 2023
- January 2023
- December 2022
- November 2022
- October 2022
- September 2022
- August 2022
- July 2022
- June 2022
- May 2022
- April 2022
- March 2022
- February 2022
- January 2022
- December 2021
- November 2021
- October 2021
- September 2021
- August 2021
- July 2021
- June 2021
- May 2021
- April 2021
- March 2021
- February 2021
- January 2021
- December 2020
- November 2020
- October 2020
- September 2020
- August 2020
- July 2020
- June 2020
- May 2020
- April 2020
- March 2020
- February 2020
- January 2020
- December 2019
- November 2019
- October 2019
- September 2019
- August 2019
- July 2019
- June 2019
- May 2019
- April 2019
- March 2019
- February 2019
- January 2019
- December 2018
- November 2018
- October 2018
- September 2018
- August 2018
- July 2018
- June 2018
- May 2018
- April 2018
- March 2018
- February 2018
- January 2018
- December 2017
- November 2017
- October 2017
- September 2017
- August 2017
- July 2017
- June 2017
- May 2017
- April 2017
- March 2017
- January 2017
- December 2016
- November 2016
- October 2016
- September 2016
- August 2016
- July 2016
- June 2016
- May 2016
- April 2016
- March 2016
- February 2016
- January 2016
- December 2015
- November 2015
- October 2015
- September 2015
- August 2015
- July 2015
- June 2015
- May 2015
- April 2015
- March 2015
- February 2015
- January 2015
- December 2014
- November 2014
- October 2014
- September 2014
- August 2014
- July 2014
- June 2014
- May 2014
- April 2014
- March 2014
- February 2014
- January 2014
- December 2013
- November 2013
- October 2013
- September 2013
- August 2013
- July 2013
- June 2013
- May 2013
- April 2013
- March 2013
- February 2013
- January 2013
- December 2012
- November 2012
- October 2012
- September 2012
- August 2012
- July 2012
- June 2012
- May 2012