Rýnt í: Íslensk tónspor c.a. 2024-5

Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 5. júlí.
Íslensku tónsporin
Hérlend tónspor fyrir kvikmyndir sem sjónvarpsþætti hafa verið að hlaðast upp síðastliðin misseri. Hér fer yfirlitsgrein, engan veginn tæmandi.
Það er um auðugan garð að gresja þegar litið er til efnisframleiðslu hvað varðar íslenska kvikmynda- og sjónvarpsþáttatónlist. Mér rann blóðið til skyldunnar að safna þessu aðeins saman og er ég að líta til u.þ.b. síðasta árs og fyrri hluta þessa. Tónspor er frábær þýðing á „original soundtrack“ eða „OST“ eins og þetta er kallað á ensku. Það vill svo til að við Íslendingar eigum heimsfræg tónskáld á þessu sviði; Hildi Guðnadóttur, Ólaf Arnalds, HÖH (Hilmar Örn Hilmarsson), Atla Örvarsson og Jóhann Jóhannsson til dæmis. Herdís Stefánsdóttir og Birgir Hilmarsson, Biggi Hilmars, hafa þá tónsett stór verkefni að undanförnu. Fólk sem hefur hingað til verið þekkt fyrir „eigin“ tónlist, ef ég má orða það svo, hefur líka látið til sín taka undanfarið, nefni m.a. Gyðu Valtýsdóttur, Sin Fang og Högna Egilsson.
Hefst þá lestur: Út er t.d. komin á streymisveitum tónlistin við þættina Vigdísi en hana sömdu þær Salka Valsdóttir og nefnd Herdís Stefánsdóttir. Skúli Sverrisson samdi tónlist við nýja mynd Yrsu Roca Fannberg, Jörðin undir fótum okkar (2025), en ég hef ekki frétt af útgáfu á tónlistinni sérstaklega. Þessi grein átti upphaflega ekki að vera upptalningargrein en hjá því verður ekki komist. Ég ætla því að ryðja út úr mér nöfnum sem hafa verið iðin við kolann að undanförnu en beina svo sérstaklega sjónum (eyrum) að tveimur tónskáldum í restina.
Högni Egilsson á tónlistina í Snertingu Baltasars Kormáks og var að ljúka við tónlist fyrir aðra stórmynd úr smiðju Baltasars. Magnús Jóhann á tónlistina í Ljósvíkingum, Margrét Rán sá réttilega um heimildarmyndina The Day Iceland Stood Still, Davíð Berndsen samdi tónlist við heimildarmyndina Strengur, Jósep Gíslason gerði tónlistina við vampírumyndina Blood & Rust (í eftirframleiðslu), Una Stef gerði tónlist við TOPP 10 MÖST, Agnar Már Magnússon samdi tónlistina við Draumar, konur & brauð, Kristján Sturla Bjarnason á tónlistina í Fjallið það öskrar, Úlfur Eldjárn á tónlistina í hlaðvarpinu Where is Jón?, Kjartan Sveinsson semur fyrir O (stuttmynd eftir Rúnar Rúnarsson), Úlfur Hansson er með heimildarmyndatvennu (A Simple Soldier og The Dancer) og hljómsveitin Mono Town á tónlistina í draumaverksmiðjumyndinni Old Guy. Allt þetta er frá þessu ári eða því síðasta, nokkuð fínlega reiknað. Ragnar Ólafsson (Árstíðir) á þá tónlistina í sjónvarpsþáttaröðinni Little Disasters og Dustin O’Halloran samdi fyrir stórmyndina Bridget Jones 4 en hann býr hérlendis og er maður áðurnefndrar Herdísar Stefánsdóttur.
Ég vil þá nefna sérstaklega að Julius Pollux, sem búsettur er hérlendis (og leikur m.a. í neðanjarðardúettinum/sveitinni BSÍ), á tónlistina við No Other Land, heimildarmyndina palestínsku sem vann Óskarsverðlaun. Tónlist hans við heimildarmyndaröðina World White Hate er þá væntanleg (frumsýnd á Arte 8. júlí).
Að lokum er það svo Snorri Hallgrímsson sem á glæsitónlist við myndina Innocence (2022) en tónlistin kom ekki út fyrr en í maí 2024. Myndin tónar við No Other Land en fylgst er með ísraelsku ungviði sem alið er upp í landi sem er gegnsósa af hernaðarhyggju. Hann á þá tónlistina í Words of War sem er nýkomin út, mynd sem fjallar um rússneska aðgerðasinnann Önnu Politkovskayu sem þurfti að gjalda fyrir þá baráttu með lífi sínu.
Ég ítreka að þessi pistlingur er ekki nándar nærri tæmandi og alveg ábyggilega eitt og annað sem fór fram hjá pistilritara.
Stikkorðaský
Abba ATP Björk Bob Dylan Bubbi Bára Gísladóttir Bítlarnir Cyber David Bowie Eurovision Evróvisjón Færeyjar GDRN Grænland HAM Harpa Hekla Hildur Guðnadóttir Ian Anderson Iceland Airwaves Jethro Tull Jóhann Jóhannsson jólatónlist Kælan Mikla Misþyrming Morgunblaðið múm Músíktilraunir Neil Young Nick Cave Nordic Music Prize Norrænu tónlistarverðlaunin Nuuk Nuuk Nordic Culture Festival post-dreifing President Bongo Reptilicus sigur rós Skotland Söngvakeppnin Söngvakeppni Sjónvarpsins Thick As A Brick tónleikar tónlist ... er tónlist íslenskur plötudómurUmræðan
- Alfun adam on Skýrzla: Íslensk óhljóðalist anno 2025
- kistianto Abdullah on Plötudómur: Nýdönsk – Í raunheimum
- kistianto Abdullah on Plötudómur: Björg Brjánsdóttir & Bára Gísladóttir – GROWL POWER
- kistianto Abdullah on Plötudómur: Davíðsson – Lifelines
- kistianto Abdullah on Fréttaskýring: Staða tónleikahalds í Reykjavík
- kistianto Abdullah on Plötudómur: Magnús Jóhann / Óskar Guðjónsson – Fermented Friendship
- antok on Fréttaskýring: Kendrick, Trump, Ofurskálin o.fl.
- antok on Fréttaskýring: Liam Payne og fallvaltleikinn
- Hjörtur Geirsson on Plötudómur: Bubbi – Dansaðu
- PtaXa on Plötudómur: Ingibjörg Turchi – Stropha
Safn
- July 2025
- June 2025
- May 2025
- April 2025
- March 2025
- February 2025
- January 2025
- December 2024
- November 2024
- October 2024
- September 2024
- August 2024
- July 2024
- June 2024
- May 2024
- April 2024
- March 2024
- February 2024
- January 2024
- December 2023
- November 2023
- October 2023
- September 2023
- August 2023
- July 2023
- June 2023
- May 2023
- April 2023
- March 2023
- February 2023
- January 2023
- December 2022
- November 2022
- October 2022
- September 2022
- August 2022
- July 2022
- June 2022
- May 2022
- April 2022
- March 2022
- February 2022
- January 2022
- December 2021
- November 2021
- October 2021
- September 2021
- August 2021
- July 2021
- June 2021
- May 2021
- April 2021
- March 2021
- February 2021
- January 2021
- December 2020
- November 2020
- October 2020
- September 2020
- August 2020
- July 2020
- June 2020
- May 2020
- April 2020
- March 2020
- February 2020
- January 2020
- December 2019
- November 2019
- October 2019
- September 2019
- August 2019
- July 2019
- June 2019
- May 2019
- April 2019
- March 2019
- February 2019
- January 2019
- December 2018
- November 2018
- October 2018
- September 2018
- August 2018
- July 2018
- June 2018
- May 2018
- April 2018
- March 2018
- February 2018
- January 2018
- December 2017
- November 2017
- October 2017
- September 2017
- August 2017
- July 2017
- June 2017
- May 2017
- April 2017
- March 2017
- January 2017
- December 2016
- November 2016
- October 2016
- September 2016
- August 2016
- July 2016
- June 2016
- May 2016
- April 2016
- March 2016
- February 2016
- January 2016
- December 2015
- November 2015
- October 2015
- September 2015
- August 2015
- July 2015
- June 2015
- May 2015
- April 2015
- March 2015
- February 2015
- January 2015
- December 2014
- November 2014
- October 2014
- September 2014
- August 2014
- July 2014
- June 2014
- May 2014
- April 2014
- March 2014
- February 2014
- January 2014
- December 2013
- November 2013
- October 2013
- September 2013
- August 2013
- July 2013
- June 2013
- May 2013
- April 2013
- March 2013
- February 2013
- January 2013
- December 2012
- November 2012
- October 2012
- September 2012
- August 2012
- July 2012
- June 2012
- May 2012