Rýnt í: Wardruna

Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 31. maí.
Gott er með ásum
Norska sveitin Wardruna leikur í Eldborg í Hörpu eftir slétta viku. Norræn minni eru í heiðri höfð þegar tónaseiður hennar er bruggaður og búast má við miklu sjónarspili.
Aðáendur Skálmaldar, Eivarar, Árstíða og hvers lags úrvinnslu á norrænum menningararfi munu fá sitthvað fyrir sinn snúð í Eldborg. Wardruna var stofnsett árið 2009 og beið ekki boðanna við að undirstrika um hvað málið snerist þar sem fyrstu tónleikarnir voru á Víkingaskipasafninu í Ósló.
Wardruna hefur vaxið ásmegin síðan, úlfurinn er langt í frá bundinn, útsýni gott frá Bilskirni og loftun góð um dyrnar 540 sem þar eru. Kæri lesandi, settu inn goðafræðihendingar eftir smekk. En að léttu spaugi slepptu hefur Wardruna tekist að byggja upp feril hvar téðum menningararfi er vel sinnt. Hugsjón leiðtogans, Einars Selvik, er skýr og ljóst að hann brennur fyrir málstaðnum ef svo mætti segja. Sú ástríða fyllir síðan upp í þá sali þar sem sveitin leikur og áhugasamir geta treyst á það að forsendur eru alvöru. Jákvætt samspil framleiðanda og neytenda mætti segja.
Almennur áhugi á norðlægum minnum, goðafræði og þeirri dulúð sem einatt er sett á norðrið situr hálfpartinn í meginstraumnum í dag, sjá t.d. þáttaröðina Vikings sem inniheldur einmitt tónlist eftir Selvik (hann tónsetti líka tölvuleikinn Assassin’s Creed – Valhalla). Selvik er þannig mikilhæfur maður og á bólakafi í þessum efnum, er stofnandi By Norse, sem er vettvangur hvar unnið er að varðveislu og útbreiðslu norrænar listar, tónlistar, bókmennta o.s.frv. Í ár er búið að raða upp 80 Wardruna-tónleikum og uppselt er á marga þeirra. Áhugi fyrir því skapalóni sem Wardruna vinnur með er því tölfræðilega sannanlegur og þessi markvissa vinna með sögulega tónlist víkingaaldar virkar. Leikið er á forn hljóðfæri, yrkisefnið sótt í bókmenntaarf á borð við Eddukvæði og á tónleikum er myndmálið auk þess öflugt, séð til þess að fólk „heyri fornar raddir, hvísla fornan seið“ svo ég vitni í Þursaflokkinn, sem vann einnig með ýmislegan brag úr norrænum tónlistar- og menningararfi.
En hvað með tónlistina sem slíka? Fyrstu þrjár plötur Wardruna byggjast á rúnum og eru aldagamlar norrænar hefðir, trúarbrögð og fleira þar undir. Geitahorn, kyndlar og skinntrommur eru nýtt og tónlistin er þjóðlagakennd að einhverju leyti, drungaleg og með nokkurs konar ættbálkasniði – trommusláttur og hrópandi kór á meðal einkenna. Nýjasta verk Wardruna er svo Birna, mikilúðleg smíð sem kom út í ársbyrjun og fyllir það stofuna akkúrat núna þar sem ég sit við skriftir. Mér finnst eins og ég sé staddur á blóti árið 990 og dulúðugt andrúmið er tilfinnanlegt. Hér er það björninn sem er miðlægur, árþúsunda tákn og aufúsugestur í goðsögum þeirra sem búa á norðurhvelinu. Ég viðurkenni að ég er nokkuð svag fyrir svona tilraunum og svona framstillingum. Þessum ævintýrabrag, dulúð og þessu „kvikmyndalega“. Þetta er nánast eins og leikrit, altækt dæmi á margan hátt. Ég, Enyu-/Clannad-aðdáandinn og dýrkandi Dead Can Dance – sem ég heyri í á milli hljóðrása – á auðvelt með að tengja. Eivör mín hefur þá verið að sigla um svipuð mið undanfarin ár, fer að vísu ekki jafn ýkt inn í þetta og Wardruna en samt (og hún og Selvik hafa t.a.m. unnið saman).
Góða skemmtun í Hörpu, þið sem ætlið að upplifa „það sem var í þátíð, það sem á að ske“.
Stikkorðaský
Abba ATP Björk Bob Dylan Bubbi Bára Gísladóttir Bítlarnir Cyber David Bowie Eurovision Evróvisjón Færeyjar Grænland HAM Harpa Hekla Hildur Guðnadóttir Ian Anderson Iceland Airwaves Jethro Tull Jóhann Jóhannsson jólatónlist Kælan Mikla Misþyrming Morgunblaðið múm Músíktilraunir Neil Young Nick Cave Nordic Music Prize Norrænu tónlistarverðlaunin Nuuk Nuuk Nordic Culture Festival post-dreifing President Bongo Reptilicus sigur rós Skotland Skúli Sverrisson Söngvakeppnin Söngvakeppni Sjónvarpsins Thick As A Brick tónleikar tónlist ... er tónlist íslenskur plötudómurUmræðan
- Alfun adam on Skýrzla: Íslensk óhljóðalist anno 2025
- kistianto Abdullah on Plötudómur: Nýdönsk – Í raunheimum
- kistianto Abdullah on Plötudómur: Björg Brjánsdóttir & Bára Gísladóttir – GROWL POWER
- kistianto Abdullah on Plötudómur: Davíðsson – Lifelines
- kistianto Abdullah on Fréttaskýring: Staða tónleikahalds í Reykjavík
- kistianto Abdullah on Plötudómur: Magnús Jóhann / Óskar Guðjónsson – Fermented Friendship
- antok on Fréttaskýring: Kendrick, Trump, Ofurskálin o.fl.
- antok on Fréttaskýring: Liam Payne og fallvaltleikinn
- Hjörtur Geirsson on Plötudómur: Bubbi – Dansaðu
- PtaXa on Plötudómur: Ingibjörg Turchi – Stropha
Safn
- June 2025
- May 2025
- April 2025
- March 2025
- February 2025
- January 2025
- December 2024
- November 2024
- October 2024
- September 2024
- August 2024
- July 2024
- June 2024
- May 2024
- April 2024
- March 2024
- February 2024
- January 2024
- December 2023
- November 2023
- October 2023
- September 2023
- August 2023
- July 2023
- June 2023
- May 2023
- April 2023
- March 2023
- February 2023
- January 2023
- December 2022
- November 2022
- October 2022
- September 2022
- August 2022
- July 2022
- June 2022
- May 2022
- April 2022
- March 2022
- February 2022
- January 2022
- December 2021
- November 2021
- October 2021
- September 2021
- August 2021
- July 2021
- June 2021
- May 2021
- April 2021
- March 2021
- February 2021
- January 2021
- December 2020
- November 2020
- October 2020
- September 2020
- August 2020
- July 2020
- June 2020
- May 2020
- April 2020
- March 2020
- February 2020
- January 2020
- December 2019
- November 2019
- October 2019
- September 2019
- August 2019
- July 2019
- June 2019
- May 2019
- April 2019
- March 2019
- February 2019
- January 2019
- December 2018
- November 2018
- October 2018
- September 2018
- August 2018
- July 2018
- June 2018
- May 2018
- April 2018
- March 2018
- February 2018
- January 2018
- December 2017
- November 2017
- October 2017
- September 2017
- August 2017
- July 2017
- June 2017
- May 2017
- April 2017
- March 2017
- January 2017
- December 2016
- November 2016
- October 2016
- September 2016
- August 2016
- July 2016
- June 2016
- May 2016
- April 2016
- March 2016
- February 2016
- January 2016
- December 2015
- November 2015
- October 2015
- September 2015
- August 2015
- July 2015
- June 2015
- May 2015
- April 2015
- March 2015
- February 2015
- January 2015
- December 2014
- November 2014
- October 2014
- September 2014
- August 2014
- July 2014
- June 2014
- May 2014
- April 2014
- March 2014
- February 2014
- January 2014
- December 2013
- November 2013
- October 2013
- September 2013
- August 2013
- July 2013
- June 2013
- May 2013
- April 2013
- March 2013
- February 2013
- January 2013
- December 2012
- November 2012
- October 2012
- September 2012
- August 2012
- July 2012
- June 2012
- May 2012