Einlæg Boðskapur Laufeyjar er „hreinn, sannur og mikilvægur“ segir rýnir eftir tónleika hennar í Kórnum. — Morgunblaðið/Ólafur Árdal.

Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, fimmtudaginn 19. mars.

„Ef ég get þetta, þá getið þið þetta …“

Þarna klikkuðum við, Jónas,“ sagði ég við kollega kæran, Jónas Sen, sem sat þarna hjá mér á stórtónleikum Laufeyjar í Kórnum síðasta laugardag. Vel fór á með okkur, gáski og grín, og þarna var ég að vísa í það að við vorum klæðlausir keisarar að heita. Um salinn liðu nefnilega prinsessur af alls kyns toga, hinir svokölluðu „Lauvers“, aðdáendur hinnar mögnuðu Laufeyjar sem átti eftir að álagabinda Kórinn svo um munaði síðar um kvöldið. Prinsessur og prinsar voru með kórónur, voru í glæsikjólum og með slaufur og klikkuðu alls ekki á múnderingunum. „Já, þetta er ljóta klúðrið hjá okkur,“ sagði Jónas með ertnislegt bros á vörum. En þó að gagnrýnendurnir hafi ekki fengið minnisblaðið var megnið af Kórnum greinilega búið að lesa það rækilega yfir.

Glæsisýning
Elín Hall sá um að hita upp og gerði það með bravúr. Hún var drottningarleg til klæða, örugg í sviðsframkomu og renndi sér fumlaust í gegnum efnisskrá sína, sem samanstóð af nýjum lögum sem gömlum, á íslensku sem ensku. Tónleikar Laufeyjar fóru svo í gang eftir ca. hálftíma hlé. Vitiði, ég var ekki alveg reiðubúinn undir þetta, hafði hreinlega ekki gert mér í hugarlund að þetta væri orðið svona stórt, svo ég orði það hóflega. Ég get a.m.k. staðfest að Laufey er orðin ofurstjarna. Þessi glæsisýning sem var sett upp í Kórnum, með aðkomu hundraða greinilega, gerði mann einfaldlega orðlausan á köflum. Sviðið varð að ævintýrasal; stigar, smákastalar og rólur og á tjaldinu voru hreyfimyndir sem undirstungu fagurfræði millistríðsáranna, svart/hvítar filmur og töfrum bundin myndskeið. Laufey sjálf, skrýdd prinsessukjól og umvafin fjórum dönsurum, sveif svo um sviðið af fádæma öryggi, í krafti þeirrar sem er bæði orðin reynslumikil og veit upp á hár hvað það er sem hún vill knýja fram.

Dásemdar djasspopp
Tónlist Laufeyjar, þetta dásemdar djasspopp sem er byggt á snarkandi 78 snúninga plötum, draumaverksmiðjustrengjum og nútímalegum dægurgljáa, tekur okkur í burtu, burtu frá amstrinu og bullinu og við elskum það. Þetta er lykillinn að velgengni Laufeyjar, þessi hámarks afþreying og sæla en um leið, og þetta er mikilvægt, er þetta valdeflandi og innihaldsríkt. Komum að því síðar.

Leikar hófust með tveimur fyrstu lögunum af nýjustu plötu hennar, Matter of Time, „Clockwork“ og „Lover Girl“. Áhorfendur voru vel með á nótunum og fyrir aftan mig voru stúlkur sem sungu alla texta kórrétt út tónleikana. Laufey ræddi við okkur á íslensku og var sýnilega hrærð yfir þessu öllu saman. Um lokatónleika á Evróputúr er að ræða, mamma og pabbi í salnum, og taugar því eðlilega þandar. Efnisskránni var kaflaskipt og í hluta tvö var lítilli djassbúllu komið fyrir fremst á sviðinu og þar söng Laufey ásamt trommara, kontrabassaleikara og píanóleikara lög eins og „Seems Like Old Times“ og „While You Were Sleeping“. Sviðsmyndaskiptingar voru hraðar og snurðulausar og fagmennskan gríðarleg en listræn hönnun tónleikanna er í höndum systur hennar, Júníu.

Einlægni og styrkur
Laufey gaf sig að áhorfendum og ræddi einlæglega um hluti eins og sjálfsmynd og sjálfsöryggi, einkanlega í kringum hið áhrifaríka „Snow White“. Hér er ég kominn að punktinum sem ég nefndi framar, tónlist Laufeyjar er nefnilega valdeflandi, talar til táningsstelpna og styrkir þær og hvetur. Einu gildir hversu mikið þessar ræður hennar eru hluti af almennri sýningarmennsku, boðskapurinn er hreinn, sannur og mikilvægur. Lokalagið var svo „Letter To My 13 Year Old Self“ og áður en lagt var í það ræddi Laufey um mikilvægi þess að trúa, að dreyma og standa með sér. „Ef ég get þetta, þá getið þið þetta …“

Tagged with:
 

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Set your Twitter account name in your settings to use the TwitterBar Section.
Follow

Get every new post on this blog delivered to your Inbox.

Join other followers: