Færeysk tónlist: Dettur á milli þilja á Norrænu tónlistarverðlaununum
[Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 24. ágúst, 2013]
Hvenær mun BYRTA til?
• Ósjálfstæði Færeyja hindrar framgang og útbreiðslu þarlendrar dægurtónlistar
• Gleggst merki þessa má sjá í hinum árlegu Nordic Music Prize
Þessi pistill átti upprunalega að vera um nýja plötu Franz Ferdinand (þeirra fjórða. Þykir hressileg. Kemur út eftir helgi. Fyrsta smáskífan, „Right Action“, er flott). Hins vegar ruddist annað mál fram fyrir, hugleiðingar um Norrænu tónlistarverðlaunin (Nordic Music Prize) sem verða afhent í fjórða sinn á næsta ári. Jónsi okkar hreppti verðlaunin þegar þau voru fyrst veitt en þeim svipar til Mercury-verðlaunanna bresku þar sem áhersla er á listrænt innihald fremur en frægð og hve markaðsvænar plöturnar eru. Norræn dómnefnd sér um að velja tólf plötur úr fimmtíu platna potti en alþjóðleg dómnefnd sker svo úr um sigurvegarann. Ég á sæti í téðri dómnefnd, sem er skipuð einum fulltrúa frá Norðurlöndunum fimm, og nú er nefndin farin að tala sig saman um markverðustu plöturnar á fyrri hluta þessa árs. Ég lét hugann reika um ýmislegt góðgæti sem hefur verið að detta inn í löndunum öllum og minntist m.a. plötu BYRTU sem er dúett Færeyinganna Guðriðar Hansdóttur og Janusar Rasmussen. En fattaði svo jafnóðum. BYRTA á ekki séns. Sama hversu stórkostleg platan nú er. Og það er reyndar sama hversu góð plata kæmi frá Færeyjum í ár, hún ætti aldrei möguleika á að keppa um Norrænu tónlistarverðlaunin, þó hún sé að sönnu norræn. Nú skal ég útskýra fyrir ykkur af hverju.
Menningarleg kúgun?
Þrátt fyrir að Færeyjar ættu að vera á ábyrgð Dana er það svo, alltént í tilfelli þessara verðlauna, að færeyskar plötur eru álitnar „færeyskar“ fremur en danskar. Þær detta því algerlega á milli þilja. Það er enginn illvilji eða meðvituð kúgun sem stýrir þessu, dómnefndaraðilinn danski, geðprýðismaður hinn mesti, útskýrði þetta fyrir mér, hálfpartinn afsakandi. Dómefndin hefur rætt aðgerðir hvað þetta varðar sín á milli, að undirlagi undirritaðs, en engin lending er í sjónmáli eins og er. Athugið að Grænlendingar eru að sjálfsögðu undanskildir líka. Þessa stöðu Færeyinga og Grænlendinga er vísast hægt að heimfæra á norræn verðlaun og viðurkenningar af öllu tagi og ég er ekki að setja Norrænu tónlistarverðlaunin sérstaklega niður. Þau virka bara eins og sambærileg verðlaun gera. Tilgangur skrifanna er hins vegar sá að beina sjónum að þessu danska/færeyska vandamáli.
Auðvitað er þetta ekki í lagi og sýnir glöggt þá hentistefnu sem fylgir því úrelta hjálendufyrirkomulagi sem Danmörk býr við. Í Færeyjum búa tæplega 50.000 manns og tónlistarlífið þar er æði blómlegt en af ofangreindum sökum á umheimurinn ekki sama færi á að kynnast því. Þetta er ekki ósvipað því að Vestfirðir væru undanskildir Íslensku tónlistarverðlaununum. Tímamótaplötur Mugison hefðu þá verið úti á gaddi gleraðri jörð. Vegna þess að?
Gjaldið sem þarf að greiða
Færeysk plata hefur vegna þessa ekki komið til álita á Norrænu tónlistarverðlaunum hingað til og mikilvirkir listamenn eins og Eivör Pálsdóttir, ORKA eða Teitur lúra á milli þilja eins og áður segir. Ef færeysk plata næði óvænt mikilli alþjóðahylli, líkt og Sigur Rós gerði t.d. með Ágætis byrjun, yrði henni þó hiklaust kippt inn sem „danskri“, því þannig virka þessir hlutir. Sem sýnir enn betur hversu fáránlegar þessar aðstæður eru. Ástæða þessa alls er þó ljós. Á meðan Færeyingar eru ekki sjálfstæð þjóð hafa þeir ekki þá átyllu sem þarf til að koma hlutunum í sanngjarnt horf. Þetta er gjaldið sem þarf m.a. að greiða fyrir ófullveldið. Ég lýk þessu með upphafssetningu að frétt um BYRTU sem birtist á vefsíðunni Scandipop í sumar en hún stærir sig af því að flytja fréttir af nýrri og spennandi tónlist frá Norðurlöndunum. Hún segir meira en mörg orð um stöðu mála (þýtt úr ensku): „Jæja, þetta er í fyrsta skipti í fimm ára sögu síðunnar sem þetta gerist. Við segjum núna frétt frá „hinu“ norræna svæðinu – Færeyjum.“
Stikkorðaský
Abba ATP Björk Bob Dylan Bryan Ferry Bubbi Bára Gísladóttir Bítlarnir Cyber David Bowie Eurovision Evróvisjón Færeyjar Færeysk tónlist Grænland Harpa Hildur Guðnadóttir Ian Anderson Iceland Airwaves Jethro Tull Jóhann Jóhannsson jólatónlist Kælan Mikla Misþyrming Morgunblaðið múm Músíktilraunir Nick Cave Nordic Music Prize Norrænu tónlistarverðlaunin Nuuk Nuuk Nordic Culture Festival post-dreifing President Bongo Reptilicus sigur rós Skotland Skrapt Skúli Sverrisson Söngvakeppnin Söngvakeppni Sjónvarpsins Thick As A Brick tónleikar tónlist ... er tónlist íslenskur plötudómurUmræðan
- Hjörtur Geirsson on Plötudómur: Bubbi – Dansaðu
- PtaXa on Plötudómur: Ingibjörg Turchi – Stropha
- Ilmu Komunikasi on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Manajemen on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Ilmu Forensik on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Biomedis on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Informatika on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- SO on Plötudómur: Bubbi – Ljós og skuggar
- Irgi Zanuar on Viðtal: Egill Ólafsson
- Sains Data on Uppgjör: Nuuk Nordic Culture Festival 2019
Safn
- December 2024
- November 2024
- October 2024
- September 2024
- August 2024
- July 2024
- June 2024
- May 2024
- April 2024
- March 2024
- February 2024
- January 2024
- December 2023
- November 2023
- October 2023
- September 2023
- August 2023
- July 2023
- June 2023
- May 2023
- April 2023
- March 2023
- February 2023
- January 2023
- December 2022
- November 2022
- October 2022
- September 2022
- August 2022
- July 2022
- June 2022
- May 2022
- April 2022
- March 2022
- February 2022
- January 2022
- December 2021
- November 2021
- October 2021
- September 2021
- August 2021
- July 2021
- June 2021
- May 2021
- April 2021
- March 2021
- February 2021
- January 2021
- December 2020
- November 2020
- October 2020
- September 2020
- August 2020
- July 2020
- June 2020
- May 2020
- April 2020
- March 2020
- February 2020
- January 2020
- December 2019
- November 2019
- October 2019
- September 2019
- August 2019
- July 2019
- June 2019
- May 2019
- April 2019
- March 2019
- February 2019
- January 2019
- December 2018
- November 2018
- October 2018
- September 2018
- August 2018
- July 2018
- June 2018
- May 2018
- April 2018
- March 2018
- February 2018
- January 2018
- December 2017
- November 2017
- October 2017
- September 2017
- August 2017
- July 2017
- June 2017
- May 2017
- April 2017
- March 2017
- January 2017
- December 2016
- November 2016
- October 2016
- September 2016
- August 2016
- July 2016
- June 2016
- May 2016
- April 2016
- March 2016
- February 2016
- January 2016
- December 2015
- November 2015
- October 2015
- September 2015
- August 2015
- July 2015
- June 2015
- May 2015
- April 2015
- March 2015
- February 2015
- January 2015
- December 2014
- November 2014
- October 2014
- September 2014
- August 2014
- July 2014
- June 2014
- May 2014
- April 2014
- March 2014
- February 2014
- January 2014
- December 2013
- November 2013
- October 2013
- September 2013
- August 2013
- July 2013
- June 2013
- May 2013
- April 2013
- March 2013
- February 2013
- January 2013
- December 2012
- November 2012
- October 2012
- September 2012
- August 2012
- July 2012
- June 2012
- May 2012