Stemning „Á völlinn var búið að planta húsum, bílum, ökrum, taco-vögnum og um miðbikið fór brúðkaup fram!“ — AFP/Patrick T. Fallon.

Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, fimmtudaginn 12. febrúar.

Hvað ertu Ameríka?

Það er ekki handónýtt að fá tækifæri til að skrifa um hreint út sagt ótrúlegt atriði tónlistarmannsins Bad Bunny á Ofurskálinni svokölluðu. Á meðan heimurinn virðist vera að fara fjandans til leggst það einu sinni sem oftar á listafólkið okkar að sjá í gegnum sýruna, halda skýrleikanum á lofti og um leið sannleikanum. Það eru poppararnir sem eru með þetta, pólitíkusarnir eru vitagagnslausir.

Hefð er nú fyrir því að í hálfleik úrslitaleiks ameríska fótboltans, NFL, komi skemmti- eður söngatriði og á undanförnum árum hafa þau verið að taka á sig æ pólitískari blæ og það eðlilega ef litið er til stöðunnar í Bandaríkjunum. Kendrick Lamar vakti þannig mikla athygli í fyrra og spennan fyrir framkomu Bad Bunny síðustu vikur hefur verið svo gott sem áþreifanleg. Og ekki klikkaði hann, ónei, og rætt er um atriðið sem það svakalegasta í áratugi.

Kærleiki og ást
Bad Bunny, eða Benito Antonio Martínez Ocasio, er frá Púertó Ríkó, rappar á spænsku og hefur verið öflugur tals- og baráttumaður fólks þaðan og spænskumælandi hluta Bandaríkjanna heilt yfir. Hann lýsti því formlega yfir að hann myndi nýta Ofurskálina til að rétta hlut síns fólks af, eitthvað sem hann gerði með tilþrifum. Auk hans komu m.a. þau Lady Gaga og Ricky Martin fram.

Ýmsum brögðum var beitt getum við sagt til að sigla skilaboðum um sameiningu, ást og kærleika í heimahöfn auk þess sem gagnrýni á núverandi ríkisstjórn fór ekki framhjá neinum (þó að skilaboðin væru í mörgum tilfellum lykluð, enda um listgjörning að ræða). „Guð blessi Ameríku“ sagði okkar maður undir lokin rétt áður en hann taldi upp öll ríki Norður-, Mið- og Suður-Ameríku.

Auk þessa stráði listamaðurinn augljósum og ekki svo augljósum vísunum um allt atriði sitt, svo nostursamlega samsett var það að gagnrýnandi Guardian, Stefanie Fernández (frá Kúbu) var nánast orðlaus í yfirreið sinni. Framleiðslustigið á þessum atriðum er í raun með ólíkindum en á völlinn var búið að planta húsum, bílum, ökrum, taco-vögnum og um miðbikið fór brúðkaup fram! Menningarheimi Rómönsku Ameríku var lyft svo um munar, með tilheyrandi litadýrð, lífi og mennsku. Já, pólitíkin og skilaboðin voru með ólíkindum öflug og í raun skringilegt að Bandaríkjastjórn hafi leyft þessu að fara í gegn. Ef þú vilt halda fólki í ótta og niðurníðslu eru svona hlutir stórhættulegir.

Þreyttur Trump
Megi svona falleg andstaða við allan ömurleika fá að þrífast sem mest, sem oftast og sem lengst. Fólk frá Mið- og Suður-Ameríku lýsir atriðinu sem ástarbréfi í athugasemdakerfum samfélagsmiðla og það er helst að sjá að Bad Bunny hafi farið fram úr þeirra villtustu draumum.

Donald Trump, sem er þannig lagað hættur að koma á óvart, fylgdi svo sínu haturshandriti í þaula eftir að atriði lauk. Eðlilega. Best er að hann lýsti því yfir að „það skilur enginn stakt orð,“ vísandi í spænskuna, en þetta segir líka talsvert um að hann, þessi nakti kóngur og hans kónar skilja í raun ekki neitt. Og mikið sem það er mikilvægt að hjartahreint listafólk stígi fram af festu og segi honum til syndanna, hvort sem það er í gegnum stórviðburði eða úti á næsta götuhorni.

Tagged with:
 

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Set your Twitter account name in your settings to use the TwitterBar Section.
Follow

Get every new post on this blog delivered to your Inbox.

Join other followers: