Fréttaskýring: Laufey á flugi

Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, fimmtudaginn 5. febrúar.
Hátt á himni skín
Ég sver það Arnar, þetta var fjölmennasti Zoom-fundur sem ég hef nokkru sinni setið,“ sagði einn af fulltrúum Laufeyjar í mín eyru er nýjasta verk hennar, A Matter Of Time, var nýútkomin, í sumarlok í fyrra. „Það voru 300 manns þarna, Mexíkó-teymið, Asíu-teymið o.s.frv. Það var svona verið að samstilla fjölmiðlaátakið.“ Þegar maður heyrir eitthvað svona fattar maður hversu langt fólk er komið á sinni leið. Laufey, Laufey „okkar“, er alþjóðastjarna af stærri gerðinni, eitthvað sem heldur betur var staðfest síðasta sunnudagskvöld er henni voru veitt hin virtu Grammy-verðlaun öðru sinni. Var það í flokknum Besta hefðbundna poppplatan („Best Traditional Pop Vocal Album“) en hún vann í sama flokki 2024 fyrir plötuna Bewitched. Aðrir sem voru tilnefndir í ár voru m.a. Elton John, Lady Gaga og Barbara Streisand!
Þar með jafnar Laufey árangur Hildar Guðnadóttur sem hefur sömuleiðis unnið tvisvar. Þess má þá geta að Björk hefur verið tilnefnd sextán sinnum en aldrei unnið (og sömuleiðis Lana Del Rey, ein magnaðasta listakona samtímans, en hún hefur hlotið ellefu tilnefningar en engin verðlaun). Fyrsti Íslendingurinn til að hljóta Grammy-verðlaun er S. Husky Höskulds (sonur Höskuldar Þráinssonar íslenskufræðings) en hann fékk verðlaunin 2002 fyrir hljóðvinnu við plötu Noruh Jones, Come Away With Me. Norah Jones og Laufey gáfu síðan út jólasjötommu saman árið 2023, svo við lokum nú hringnum.
Á öruggri siglingu
En hvað þýðir þetta allt saman? Eða öllu heldur, hvað getur þetta þýtt? Ég hef látið hafa það eftir mér að Laufey sé á slíkri siglingu að nákvæmlega ekkert muni koma mér á óvart. Hún yrði ráðin sem fjórði Bítillinn ef Paul og Ringo myndu endurreisa sveitina. Nei, í alvöru, þetta er svakalegt. Og að vinna ekki ein heldur tvenn verðlaun rennir traustum stoðum undir feril hennar. Ef þú veittir henni rétt svo athygli fyrir tveimur árum þá sleppur þú ekki undan henni núna. Um leið er þetta ákveðin viðurkenning. Verðlaunahátíðir eru oft gagnrýndar, og það réttilega, en auðvitað segir þetta eitthvað um gildi listamannsins. Hún er að vekja athygli, fólk er að kaupa og hlusta og eitthvað er hún að gera rétt í listsköpuninni. Ég hef rýnt í allar plötur hennar til þessa og get staðfest bætingu með hverju verki. Hvernig hún tekur þennan eftir- og millistríðsáradjass (nánast með 78 snúninga snarki), rennir honum í gegnum nútímalega poppsíu með Disney-ævintýrablæ á toppnum, þetta er eitthvað sem hún hefur náð að tálga glæsilega til. Með sinni mildilega djúpu röddu, ótvíræðri hljóðfærafærni og beintengingu við vélavirki markaðarins – hvar systir hennar Júnía heldur á málum – hefur henni tekist að leggja heiminn að fótum sér. Það er bara þannig.
Listirnar varðar
Laufey var firnaörugg í fasi er hún tók á móti styttunni og flutti þakkarræðu sína. Þakkaði samstarfsfólki og fjölskyldu en nýtti líka tækifærið til að kalla eftir áframhaldandi stuðningi við tónlistarnám og listir almennt. Þetta var snilldarlega gert, á sama tíma og hún náði að taka ofan fyrir þeirri menntun sem hún hlaut hérlendis var hún að tala inn í almennar væringar um leið en listir, hugvísindi o.s.frv. eru undir síauknum árásum frá baunateljurum og niðurskurðarpótintátum. Vel gert Laufey. Veröldin er þín. Og við bíðum spennt eftir næsta útspili.
Stikkorðaský
Abba ATP Benni Hemm Hemm Björk Bob Dylan Bubbi Bára Gísladóttir Bítlarnir Cyber David Bowie Eurovision Evróvisjón Færeyjar GDRN Grænland HAM Harpa Hekla Hildur Guðnadóttir Ian Anderson Iceland Airwaves Jethro Tull Jóhann Jóhannsson jólatónlist Kælan Mikla Misþyrming Morgunblaðið múm Músíktilraunir Neil Young Nick Cave Nordic Music Prize Norrænu tónlistarverðlaunin Nuuk Nuuk Nordic Culture Festival post-dreifing President Bongo sigur rós Skotland Söngvakeppnin Söngvakeppni Sjónvarpsins Thick As A Brick tónleikar tónlist ... er tónlist íslenskur plötudómurUmræðan
- Universitas Islam Sultan Agung on Plötudómur: Ambátt – Flugufen
- Universitas Islam Sultan Agung on Tónleikadómur: HAM!!!
- Universitas Islam Sultan Agung on Rýnt í: JFDR anno 2020
- Universitas Islam Sultan Agung on Rýnt í: Norræna þungarokkssýningu í Berlín
- Universitas Islam Sultan Agung on Rýnt í: Íslensk kvikmyndatónskáld
- Universitas Islam Sultan Agung on Steve Mason: Fyrirbærið frá Fife
- Universitas Islam Sultan Agung on Fréttaskýring: Brian Wilson 1942 – 2025
- Universitas Islam Sultan Agung on Iceland Airwaves 2022: Back on the Horse!
- ANNISA on Plötudómur: ROHT – Iðnsamfélagið og framtíð þess
- annisa l.a on Söngvakeppnin 2023: Fyrri undanúrslit
Safn
- March 2026
- February 2026
- January 2026
- December 2025
- November 2025
- October 2025
- September 2025
- August 2025
- July 2025
- June 2025
- May 2025
- April 2025
- March 2025
- February 2025
- January 2025
- December 2024
- November 2024
- October 2024
- September 2024
- August 2024
- July 2024
- June 2024
- May 2024
- April 2024
- March 2024
- February 2024
- January 2024
- December 2023
- November 2023
- October 2023
- September 2023
- August 2023
- July 2023
- June 2023
- May 2023
- April 2023
- March 2023
- February 2023
- January 2023
- December 2022
- November 2022
- October 2022
- September 2022
- August 2022
- July 2022
- June 2022
- May 2022
- April 2022
- March 2022
- February 2022
- January 2022
- December 2021
- November 2021
- October 2021
- September 2021
- August 2021
- July 2021
- June 2021
- May 2021
- April 2021
- March 2021
- February 2021
- January 2021
- December 2020
- November 2020
- October 2020
- September 2020
- August 2020
- July 2020
- June 2020
- May 2020
- April 2020
- March 2020
- February 2020
- January 2020
- December 2019
- November 2019
- October 2019
- September 2019
- August 2019
- July 2019
- June 2019
- May 2019
- April 2019
- March 2019
- February 2019
- January 2019
- December 2018
- November 2018
- October 2018
- September 2018
- August 2018
- July 2018
- June 2018
- May 2018
- April 2018
- March 2018
- February 2018
- January 2018
- December 2017
- November 2017
- October 2017
- September 2017
- August 2017
- July 2017
- June 2017
- May 2017
- April 2017
- March 2017
- January 2017
- December 2016
- November 2016
- October 2016
- September 2016
- August 2016
- July 2016
- June 2016
- May 2016
- April 2016
- March 2016
- February 2016
- January 2016
- December 2015
- November 2015
- October 2015
- September 2015
- August 2015
- July 2015
- June 2015
- May 2015
- April 2015
- March 2015
- February 2015
- January 2015
- December 2014
- November 2014
- October 2014
- September 2014
- August 2014
- July 2014
- June 2014
- May 2014
- April 2014
- March 2014
- February 2014
- January 2014
- December 2013
- November 2013
- October 2013
- September 2013
- August 2013
- July 2013
- June 2013
- May 2013
- April 2013
- March 2013
- February 2013
- January 2013
- December 2012
- November 2012
- October 2012
- September 2012
- August 2012
- July 2012
- June 2012
- May 2012

Follow


