Ljósmynd/Fjasbókarsíða Orgelkvartettsins Apparat.

—“Grúvað í Hörpu City”—

Mér finnst ótrúlegt að ég hafi barið Hamparat síðast augum fyrir ári síðan. Finnst eins og það hafi verið fyrir “stuttu”. Merkilegt, kjötið í manni meyrnar og það hægist á öllu finnst manni (sem er ágætt) en á meðan flýgur tíminn!?

Þetta er mín tónlist, mitt fólk. Ég þekkti rúmlega helminginn af fólkinu sem ég rakst í á leiðinni út af tónleikunum. Jafnaldrar, vinir, kunningjar, andlit sem ég man eftir og rámar í. Mannskapurinn sem myndaði rokkmenningu landsins á 9. og 10. áratugnum. Samkundan í gær var eins og ættarmót, heilandi vinafundur við risastóran varðeld þar sem við fáum “efnið” okkar. Stórkostlega rokktónlist, lóðbeint í æð, sem nærir, slakar og upphefur og tja, gefur LÍF. Það er ekki hægt að orða það öðruvísi.

Þetta er mín tónlist. Ég fer bara að gráta þegar ég hugsa um það hvaða merkingu tónlist Ham hefur fyrir mig (ég er í hlaðvarpi um tónlist ásamt tveimur öðrum og í þætti um Ham brynnti ég músum bara við það að tala um hana). Hún er mér allt. Já, ég er á réttum stað og á réttum tíma og á réttum aldri, ég FÉKK Ham beint í æð á mótunarárunum, ólíkt e-m “Arnari Eggerti” í Finnlandi. Ég er heppinn að því leytinu til. Ég veit að ég er að tala um ákveðinn ómöguleika en er annað hægt en að vorkenna þeim rokkunnendum sá fá aldrei að heyra í Ham? Eins og bestu hljómsveitir sögunnar, hún nær tengingu við eitthvað annað og meira en bara samsetta hljóma og hávaða. Lífið er betra með Ham.

En tölum nú um aðra hljómsveit. Orgelkvartettinn Apparat. Þá meistarasnillinga sem telja í sínum röðum tvo næstum jafnaldra mína og samferðavini í nefndum bransa. Ég tók eitt af allra fyrstu viðtölunum við þennan stærsta orgelkvartett heims á sínum tíma og hef unað þeim allar götur síðan, staðið stoltur á kantinum, innbyrðandi þessa einstöku meðferð þeirra á Kraftwerkskotnu grúvi, sem eins og í tilfelli Ham, verður að einhverju öðru og meira í höndunum á þessum vísindamönnum óma, hljóma, tóna. Og ekki síst hryns. Hallelúja.

Og að slá þessu tvennu saman? Hamparat. Á maður möguleika á að lifa það af? Nei, svona í alvörunni…

En já, ég lifði af, þetta er ekki ritað af gervigreind. Og þvílíkt og annað eins. Fyrst vil ég segja, þetta rúllaði á margan hátt betur en fyrir ári síðan. Þetta var betur smurt, fumlausara og eðlilegra einhvern veginn og þó það nú væri. Reynsla komin á verklagið.

Þannig runnu sveitirnar fölskvalaust saman. Ham gáfu Apparat vigt og öfugt. Myljandi orgelin lyftu rokkbrjálæði Ham á meðan slaggígjurnar renndu stoðum undir orgelkeyrsluna. Ég var ekkert að hripa niður hjá mér einstök lög en mikið var gaman að heyra “Death”, djúpt skorið lag af Buffalo Virgin, hvar heyra má gotneskar, Swans-bundnar rætur Ham. “123 Forever” var BARA fallegt, ég táraðist, og “Cargo Frakt” magnað (og þar má mögulega heyra kveikjuna að þessu samstarfi, að þetta væru eftir allt saman sjálfsagðir bólfélagar). “Partýbær” æði, nema hvað, og þær Hekla (þeramín) og Steinunn Eldflaug (söngur og sprell) settu vel þegin snúning á þá klassík. Lag sem ekki er hægt að sleppa, ekki frekar en að Jethro Tull geti sleppt “Aqualung” í sínu setti.

Ég tók eftir einu í gær, einu nýju. Upphafi Ham-laga, einkum þeirra nýrri. Eins og t.d. “Dauð Hóra” og “Sviksemi” og segjum “Einskins son”, sem var reyndar ekki leikið. Þau byrja með slíkum bylmingi, slíkum látum, að það er eins og það sé búið að stinga hausnum þínum inn í þotuhreyfil. Ég sver það, ég kastaðist aftur í sætinu þegar brast á með “Dauð hóra” og það eftir stórkostlega draugalegt og viðeigandi intró frá kvartettinum. ÞUNGINN sem kom frá sviðinu, það er ekki hægt að koma þessu í orð. Eins og skriðjökull, temmilega hraðskreiður skriðjökull þó. Það er valtað yfir þig og þú dýrkar það.

Vonandi er það lýðum ljóst. Hamparat er besta hljómsveit í heimi. Það voru engir svikamenn á ferð í Hörpu í gær…

 

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Set your Twitter account name in your settings to use the TwitterBar Section.
Follow

Get every new post on this blog delivered to your Inbox.

Join other followers: