Jethro Tull í Hallgrímskirkju: Ég hlakka svo til!
Jól með Ian Anderson – er hægt að biðja um það betra!
Hin síðustu ár hefur Ian Anderson, leiðtogi Jethro Tull, verið sem grár köttur í landi elds og ísa og er það vel! Kattarlíkingin er skemmtileg, enda Anderson annálaður kattaunnandi en einnig er það einfaldlega blessun að þessi meistari hafi tekið svona miklu ástfóstri við Ísland, enda leitun að jafn merkum hæfileikamanni á sviði dægurtónlistarinnar. Já, ég er aðdáandi fram í fingurgóma og varð einfaldlega fyrir opinberun er ég heyrði tónlist Tull á sínum tíma, þá kominn sæmilega langt yfir tvítugt. „Ian Anderson, where have you been all my life!“ eins og einhver sagði.
Birgir Daníel Birgisson og hans fólk hafa unnið þrekvirki í öllu utanumhaldi hvað þessa tónleika varðar undanfarin ár, hvort heldur sem Ian Anderson hefur verið að spila með strengjasveit, Jethro Tull, flytja Thick As A Brick í heild sinni eða hvað það hefur verið sem honum hefur dottið í hug. Hingað kemur hann semsagt reglulega og árið 2009, skömmu eftir hrun, gerði hann sér lítið fyrir og hélt hér tónleika fyrir fullu húsi, svo gott sem launalaust. Þetta gerði maðurinn að eigin frumkvæði en tilfinningar hans í garð landsins eru þvottekta, það get ég staðfest. Þetta sagði Anderson í viðtali við mig í Morgunblaðinu í maí, 2006, vegna sólótónleika sinna: „Ég hef alltaf fundið til tengsla við Ísland, líkt og ég geri hvað Færeyjar varðar, Noreg, Skotland og þessi lönd sem eiga strönd að Atlantshafinu. Við erum öll hluti af stærra sjávarsamfélagi og sögulega séð hefur þetta oft verið strögl. Þar hefur lífsbaráttan oft verið erfið og það ástand getur oft af sér mjög skapandi og orkurík samfélög.“
Hingað er hann svo kominn, enn einu sinni, og í þetta sinnið með jólatónleika. Segja má að heili minn hafi farið í yfirsnúning er ég heyrði af þessu, því að í viðbót við Tullaðdáunina er ég forfallið jólabarn. Þetta er því guðdómlegt „tveir fyrir einn“. Anderson hefur staðið að „The Jethro Tull Christmas Show“ síðan 2003 og hefur efnisskráin nú verið flutt í dómkirkjum víða um veröld. Það er eitthvað hárrétt við þetta, miðaldablærinn sem Tull hafa oft og tíðum þrætt inn í tónlist sína fellur eins og flís við rass hvað jólastemningu áhrærir og jólaplata sveitarinnar frá 2003 er einstaklega hátíðarleg og umslagið það besta sem ég hef séð í þeim geiranum. Það er nóg að horfa á það til að komast í byljandi jólaskap.
Hefð hefur verið því að fá vel valda gesti á þessa tónleika og á þessum tilteknu Íslandstónleikum mun okkar eigin KK gesta og spila Tull-lag og sjálfur Marc Almond (Soft Cell) mun og syngja. Einnig mun söngkonan og fiðluleikarinn Unnur Birna koma fram, en hún hefur starfað nokkuð náið með Anderson undanfarin ár. Kór Hljómfélagsins syngur og perlan „Aqualung“ mun njóta fulltingis stærsta orgel landsins þar sem Gunnar Gunnarsson organisti fer fimum höndum um djásnið.
Eruði spennt!? Það er þá gaman að geta sagt frá því að örfáir miðar eru nú komnir í sölu á fyrri tónleikana en um tvenna tónleika er að ræða, 7. og 8. desember. Þið getið tékkað inn á opinbert Fésbókarsetur tónleikana eða farið beint inn á tix.is.
Stikkorðaský
Abba ATP Björk Bob Dylan Bryan Ferry Bubbi Bára Gísladóttir Bítlarnir Cyber David Bowie Eurovision Evróvisjón Færeyjar Grænland Gyða Valtýsdóttir Harpa Hildur Guðnadóttir Ian Anderson Iceland Airwaves Jethro Tull Jóhann Jóhannsson jólatónlist Kælan Mikla Misþyrming Morgunblaðið múm Músíktilraunir Nick Cave Nordic Music Prize Norrænu tónlistarverðlaunin Nuuk Nuuk Nordic Culture Festival One Direction post-dreifing President Bongo Reptilicus sigur rós Skotland Skúli Sverrisson Söngvakeppnin Söngvakeppni Sjónvarpsins Thick As A Brick tónleikar tónlist ... er tónlist íslenskur plötudómurUmræðan
- Hjörtur Geirsson on Plötudómur: Bubbi – Dansaðu
- PtaXa on Plötudómur: Ingibjörg Turchi – Stropha
- Ilmu Komunikasi on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Manajemen on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Ilmu Forensik on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Biomedis on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Informatika on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- SO on Plötudómur: Bubbi – Ljós og skuggar
- Irgi Zanuar on Viðtal: Egill Ólafsson
- Sains Data on Uppgjör: Nuuk Nordic Culture Festival 2019
Safn
- December 2024
- November 2024
- October 2024
- September 2024
- August 2024
- July 2024
- June 2024
- May 2024
- April 2024
- March 2024
- February 2024
- January 2024
- December 2023
- November 2023
- October 2023
- September 2023
- August 2023
- July 2023
- June 2023
- May 2023
- April 2023
- March 2023
- February 2023
- January 2023
- December 2022
- November 2022
- October 2022
- September 2022
- August 2022
- July 2022
- June 2022
- May 2022
- April 2022
- March 2022
- February 2022
- January 2022
- December 2021
- November 2021
- October 2021
- September 2021
- August 2021
- July 2021
- June 2021
- May 2021
- April 2021
- March 2021
- February 2021
- January 2021
- December 2020
- November 2020
- October 2020
- September 2020
- August 2020
- July 2020
- June 2020
- May 2020
- April 2020
- March 2020
- February 2020
- January 2020
- December 2019
- November 2019
- October 2019
- September 2019
- August 2019
- July 2019
- June 2019
- May 2019
- April 2019
- March 2019
- February 2019
- January 2019
- December 2018
- November 2018
- October 2018
- September 2018
- August 2018
- July 2018
- June 2018
- May 2018
- April 2018
- March 2018
- February 2018
- January 2018
- December 2017
- November 2017
- October 2017
- September 2017
- August 2017
- July 2017
- June 2017
- May 2017
- April 2017
- March 2017
- January 2017
- December 2016
- November 2016
- October 2016
- September 2016
- August 2016
- July 2016
- June 2016
- May 2016
- April 2016
- March 2016
- February 2016
- January 2016
- December 2015
- November 2015
- October 2015
- September 2015
- August 2015
- July 2015
- June 2015
- May 2015
- April 2015
- March 2015
- February 2015
- January 2015
- December 2014
- November 2014
- October 2014
- September 2014
- August 2014
- July 2014
- June 2014
- May 2014
- April 2014
- March 2014
- February 2014
- January 2014
- December 2013
- November 2013
- October 2013
- September 2013
- August 2013
- July 2013
- June 2013
- May 2013
- April 2013
- March 2013
- February 2013
- January 2013
- December 2012
- November 2012
- October 2012
- September 2012
- August 2012
- July 2012
- June 2012
- May 2012