Plötudómur: Bóndi og Kerling – Úr tóngarðinum
Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 18. maí.
Tístir í mó, syngur í steini
Úr tóngarðinum er plata eftir dúettinn Bónda og Kerlingu sem gerir út frá Eyjafjarðarsveit. Er hann skipaður hjónunum Siggu og Bobba, þeim Sigríði Huldu Arnardóttur og Brynjólfi Brynjólfssyni.
Til mín berst eðlilega tónlist af alls kyns tagi árið um kring en það er skemmtileg saga á bak við þennan hljómdisk. Mér leið eins og árið væri orðið 2004 á nýjan leik og um mig fór þægilegur fortíðarfílingur. Ekki út af tónlistinni heldur því hvernig hún barst mér. Og var það eftir hinum ýmsum leiðum. Bobbi hafði fyrir það fyrsta samband í gegnum Messenger-skjóðuna góðu og spurði hvort hann mætti ekki senda mér disk. Það var auðsótt. Hann var svo póstlagður og ég sótti hann á pósthúsið nokkrum dögum síðar. Um er að ræða geisladisk og ég þurfti því að grafa upp fornfálegan ferðageislaspilara ætlaði ég á að hlýða en ég renni ca. 2, 3 diskum þar í gegn á ári. Tók meira að segja myndir af atinu og sendi Bobba. Um stofuna glumdi svo hljómlistin fín, af því eina formi sem innihélt hana á þeirri stundu (platan fór svo inn á Spotify skömmu síðar). Umslagshönnun og allt slíkt er með miklum myndarbrag, fallegt heimabrugg hvar snotur teygja heldur disknum saman. Bæklingur er prentaður á venjulegt A4-blað og umslagið á lítið eitt þykkari pappír í ljósbrúngulum lit (það var niðurstaða ábúenda míns heimilis).
Svo fylgdi með útprentuð fréttatilkynning með persónulegri kveðju, rituð með blýanti. Þar kemur ýmislegt kátlegt fram og verður það helsta reifað hér. „Það er okkar einlæg ósk að plata þessi verði tekin og gagnrýnd af fyllstu einurð af til þess bæru fólki og í þeim efnum treystum við þér best. Við viljum að engum verði hlíft. Nema öllum vinum okkar sem hjálpuðu okkur með diskinn.“ Bobbi er spéfugl mikill en hann er gítaristi í Helga og Hljóðfæraleikurunum einnig. Eitt sinn héngu margar sprenghlægilegar sögur af þeirri eðla sveit uppi á fornaldarlegri vefsíðu hennar sem nú er hvurgi að finna. En fyrir það er bætt að einhverju leyti í þessari stórkostlegu fréttatilkynningu. „Textarnir fjalla annars aðallega um okkur sjálf, við erum ekki komin lengra en það á þroskabrautinni.“
Efni plötunnar er fjölbreytt og bregður fyrir ýmsum stílum. Valsar, blúsar, gospel og sálmar svona meðal annars. Grein er gerð fyrir innihaldi laga sem er alls kyns. Plássins vegna fer ég ekki mikið út í þetta en sumt hér er drepfyndið. Um „Barnið mitt“: „Sigga segir að það hafi aldrei tekið minna en nokkra klukkutíma að svæfa einkasoninn hér áður fyrr og lagið fjallar eiginlega um þá mannraun. Allt lagið er í moll en endar í dúr til að undirstrika fögnuðinn þegar barnið sofnaði loksins. Það var yfirleitt hápunktur dagsins.“
Það er heimilislegur bragur yfir og þekkilegur eins og nærri má geta. „Alveg síðan“ opnar plötuna og er textinn um almennar áskoranir hjónakorna. Sveiflupopp hið besta og gott um að litast í téðum tóngarði. „Vetrarkvöld“ er drungalegt, allt komið til helvítis en ljóstíra þó, svo ég vísi í upplýsingatexta dúettsins. Jæja, fjölsnærð verður platan greinilega. „Vorsveifla“ ber nafn með rentu og maður finnur lyktina af olíubornu dansgólfi félagsheimilisins. Platan líður áfram í þessum gír, „Hvert liggur þín leið“ er roknagospel á meðan „Eitt lítið orð“ er ástaróður Bónda til Kerlingar en þar sem Bóndi getur ekki sungið að eigin sögn varð að snúa þessu við þannig að hún syngi til hans. Dásamlegt!
„Liðinn er dagur“ lokar verki, saknaðarsöngur til heimilishundsins sem kvaddi þessa jarðvist fyrir tiltölulega stuttu. Eða eins og Bobbi orðar það: „Hér áður fyrr hlógum við okkur máttlaus að nágrönnum sem sungu sálma yfir dauðum hamstri sem var jarðaður með viðhöfn. En nú sér maður það í öðru ljósi, hugsanlega hefur maður þroskast eitthvað, svei mér þá.“
Lítil en þó stór plata frá hjónakornum norðan úr Eyjafirði. Eins og sjá má, pistilritari er sáttur og vel það. Hann setur því punkt við þessa einörðu gagnrýni og sýnist honum að flestum hafi verið hlíft enda ekki ástæða til annars.
Stikkorðaský
Abba ATP Björk Bob Dylan Bryan Ferry Bubbi Bára Gísladóttir Bítlarnir Cyber David Bowie Eurovision Evróvisjón Færeyjar Grænland Gyða Valtýsdóttir Harpa Hildur Guðnadóttir Ian Anderson Iceland Airwaves Jethro Tull Jóhann Jóhannsson jólatónlist Kælan Mikla Misþyrming Morgunblaðið múm Músíktilraunir Nick Cave Nordic Music Prize Norrænu tónlistarverðlaunin Nuuk Nuuk Nordic Culture Festival One Direction post-dreifing President Bongo Reptilicus sigur rós Skotland Skúli Sverrisson Söngvakeppnin Söngvakeppni Sjónvarpsins Thick As A Brick tónleikar tónlist ... er tónlist íslenskur plötudómurUmræðan
- Hjörtur Geirsson on Plötudómur: Bubbi – Dansaðu
- PtaXa on Plötudómur: Ingibjörg Turchi – Stropha
- Ilmu Komunikasi on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Manajemen on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Ilmu Forensik on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Biomedis on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Informatika on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- SO on Plötudómur: Bubbi – Ljós og skuggar
- Irgi Zanuar on Viðtal: Egill Ólafsson
- Sains Data on Uppgjör: Nuuk Nordic Culture Festival 2019
Safn
- December 2024
- November 2024
- October 2024
- September 2024
- August 2024
- July 2024
- June 2024
- May 2024
- April 2024
- March 2024
- February 2024
- January 2024
- December 2023
- November 2023
- October 2023
- September 2023
- August 2023
- July 2023
- June 2023
- May 2023
- April 2023
- March 2023
- February 2023
- January 2023
- December 2022
- November 2022
- October 2022
- September 2022
- August 2022
- July 2022
- June 2022
- May 2022
- April 2022
- March 2022
- February 2022
- January 2022
- December 2021
- November 2021
- October 2021
- September 2021
- August 2021
- July 2021
- June 2021
- May 2021
- April 2021
- March 2021
- February 2021
- January 2021
- December 2020
- November 2020
- October 2020
- September 2020
- August 2020
- July 2020
- June 2020
- May 2020
- April 2020
- March 2020
- February 2020
- January 2020
- December 2019
- November 2019
- October 2019
- September 2019
- August 2019
- July 2019
- June 2019
- May 2019
- April 2019
- March 2019
- February 2019
- January 2019
- December 2018
- November 2018
- October 2018
- September 2018
- August 2018
- July 2018
- June 2018
- May 2018
- April 2018
- March 2018
- February 2018
- January 2018
- December 2017
- November 2017
- October 2017
- September 2017
- August 2017
- July 2017
- June 2017
- May 2017
- April 2017
- March 2017
- January 2017
- December 2016
- November 2016
- October 2016
- September 2016
- August 2016
- July 2016
- June 2016
- May 2016
- April 2016
- March 2016
- February 2016
- January 2016
- December 2015
- November 2015
- October 2015
- September 2015
- August 2015
- July 2015
- June 2015
- May 2015
- April 2015
- March 2015
- February 2015
- January 2015
- December 2014
- November 2014
- October 2014
- September 2014
- August 2014
- July 2014
- June 2014
- May 2014
- April 2014
- March 2014
- February 2014
- January 2014
- December 2013
- November 2013
- October 2013
- September 2013
- August 2013
- July 2013
- June 2013
- May 2013
- April 2013
- March 2013
- February 2013
- January 2013
- December 2012
- November 2012
- October 2012
- September 2012
- August 2012
- July 2012
- June 2012
- May 2012