Rýnt í: Útrás íslensks öfgarokks anno 2020
Greinin var skrifuð fyrir Morgunblaðið og birtist þar, laugardaginn 25. apríl, 2020.
Útrás öfgarokksins
Nokkrar íslenskar öfgarokkssveitir hafa verið að landa útgáfu- og dreifingarsamningum við stöndug erlend fyrirtæki að undanförnu. Hvað veldur?
Þær gleðilegu fréttir bárust í enda síðasta mánaðar að íslenska þungarokks/öfgarokkssveitin Cult of Lilith hefði gert samning við Metal Blade Records. Um stórfrétt er að ræða, enda Metal Blade með þekktari fyrirtækjum í þessum geira. Stofnað 1982 í Bandaríkjunum og á mála hjá því hafa verið stórsveitir á borð við Slayer, Cannibal Corpse, King Diamond, Amon Amarth, Behemoth, Sacred Reich og Killswitch Engage svo fátt eitt sé talið. Cult of Lilith, sem var stofnuð 2015, spilar einslags tækniskotið dauðarokk, mikil keyrsla og skiptingar og var það upptökumaðurinn Dave Otero (Cattle Decapitation t.d.) sem kom Ryan Williams, listamannatengli Metal Blade í Bandaríkjunum og „hæfileikaþefara“, á bragðið. Williams heillaðist og gerði óðar samning við piltana. Von er á fyrstu plötunni síðar á þessu ári.
Undanfarin ár hafa íslenskar sveitir af þessum toga verið að gera viðlíka strandhögg. Svo ég noti þungarokk sem regnhlífarhugtak núna, þá hafa Sólstafir, Skálmöld og Vintage Caravan t.a.m. allar gert útgáfusamninga við merki af stærri gerðinni (Vintage Caravan var á Nuclear Blast en er nú hjá Napalm Records). Þannig er hið virta Season of Mist með nokkrar íslenskar sveitir á sínum snærum og fleiri hljómsveitir en þær sem ég hef nefnt hafa komist í álnir hjá stórum og millistórum merkjum (að ekki sé talað um hvernig svartþungarokkssenan hérlendis er þræltengd í tilkomumikuð net dreifingar um Evrópu og Ameríku en úttekt á því er önnur grein þó ég nefni eitt slíkt dæmi hér í restina).
Une Misère, önnur íslensk öfgarokkssveit, sem leggur upp með bylmingsþungan og ástríðufullan síðkjarna (post-hardcore), gerði samning við Nuclear Blast í ársbyrjun 2019 og fyrir okkur sem fylgjumst temmilega með þessum geira fór það ekki á milli mála. Það munar nefnilega um það að hafa stórfyrirtæki á bak við sig – tja, ef það er með þig ofarlega í áherslubunkanum. Hörmungarsögur af því hvernig bönd týnast í svona vélavirkjum eru líka allt of tíðar.
En fleiri fréttir, og það tiltölulega nýjar af nálinni: Svartþungarokkararnir í Helfró gerðu samning við áðurnefnt Season of Mist fyrir stuttu. Og fyrsta platan, samnefnd sveitinni, kom reyndar út í gær. Það sem ég hef heyrt hingað til (þetta er skrifað er á þriðjudegi) er einfaldlega frábært (gaman líka að vita til þess að allur heimurinn mun heyra orðin „vonlaust helvíti“ ásamt fleiri kjarnyrtum íslenskum orðum á næstu vikum).
Önnur sveit sem ég held nokkuð upp á er Nexion, en hún spilar kolbrjálað keyrslurokk, sveitt og hrátt. Sá hana á Húrra einu sinni og hreifst af. Hún var að gera samning við Avantgarde music, eftir að Stephen Lockhart mælti með henni. Lockhart er Íri sem er búsettur hér og rekur Emissary-hljóðverið, stýrir Ascencion-hátíðinni og hefur tekið upp fjölda íslenskra svartþungarokkssveita (hann rekur og eigin sveit, Rebirth of Nefast). Að lokum vil ég tiltaka Nyrst í þessum æsispennandi fréttapakka, sveit sem er á mála hjá Dark Essence Records í Bergen. Plata hennar, Orsök, kom út í gær, líkt og plata Helfróar. Nóg að gerast! Pistlinum er ekki ætlað að vera tæmandi, og ef einhver lumar á fréttaskoti hvað svona starfsemi varðar, sendið mér tölvupóst endilega.
Stikkorðaský
Abba ATP Benni Hemm Hemm Björk Bob Dylan Bubbi Bára Gísladóttir Bítlarnir Cyber David Bowie Eivör Pálsdóttir Eurovision Evróvisjón Færeyjar Grænland Harpa Hildur Guðnadóttir Ian Anderson Iceland Airwaves Jethro Tull Jóhann Jóhannsson jólatónlist Kælan Mikla Misþyrming Morgunblaðið múm Músíktilraunir Nick Cave Nordic Music Prize Norrænu tónlistarverðlaunin Nuuk Nuuk Nordic Culture Festival post-dreifing President Bongo Reptilicus sigur rós Skotland Skúli Sverrisson Sóley Söngvakeppnin Söngvakeppni Sjónvarpsins Thick As A Brick tónleikar tónlist ... er tónlist íslenskur plötudómurUmræðan
- Hjörtur Geirsson on Plötudómur: Bubbi – Dansaðu
- PtaXa on Plötudómur: Ingibjörg Turchi – Stropha
- Ilmu Komunikasi on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Manajemen on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Ilmu Forensik on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Biomedis on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Informatika on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- SO on Plötudómur: Bubbi – Ljós og skuggar
- Irgi Zanuar on Viðtal: Egill Ólafsson
- Sains Data on Uppgjör: Nuuk Nordic Culture Festival 2019
Safn
- January 2025
- December 2024
- November 2024
- October 2024
- September 2024
- August 2024
- July 2024
- June 2024
- May 2024
- April 2024
- March 2024
- February 2024
- January 2024
- December 2023
- November 2023
- October 2023
- September 2023
- August 2023
- July 2023
- June 2023
- May 2023
- April 2023
- March 2023
- February 2023
- January 2023
- December 2022
- November 2022
- October 2022
- September 2022
- August 2022
- July 2022
- June 2022
- May 2022
- April 2022
- March 2022
- February 2022
- January 2022
- December 2021
- November 2021
- October 2021
- September 2021
- August 2021
- July 2021
- June 2021
- May 2021
- April 2021
- March 2021
- February 2021
- January 2021
- December 2020
- November 2020
- October 2020
- September 2020
- August 2020
- July 2020
- June 2020
- May 2020
- April 2020
- March 2020
- February 2020
- January 2020
- December 2019
- November 2019
- October 2019
- September 2019
- August 2019
- July 2019
- June 2019
- May 2019
- April 2019
- March 2019
- February 2019
- January 2019
- December 2018
- November 2018
- October 2018
- September 2018
- August 2018
- July 2018
- June 2018
- May 2018
- April 2018
- March 2018
- February 2018
- January 2018
- December 2017
- November 2017
- October 2017
- September 2017
- August 2017
- July 2017
- June 2017
- May 2017
- April 2017
- March 2017
- January 2017
- December 2016
- November 2016
- October 2016
- September 2016
- August 2016
- July 2016
- June 2016
- May 2016
- April 2016
- March 2016
- February 2016
- January 2016
- December 2015
- November 2015
- October 2015
- September 2015
- August 2015
- July 2015
- June 2015
- May 2015
- April 2015
- March 2015
- February 2015
- January 2015
- December 2014
- November 2014
- October 2014
- September 2014
- August 2014
- July 2014
- June 2014
- May 2014
- April 2014
- March 2014
- February 2014
- January 2014
- December 2013
- November 2013
- October 2013
- September 2013
- August 2013
- July 2013
- June 2013
- May 2013
- April 2013
- March 2013
- February 2013
- January 2013
- December 2012
- November 2012
- October 2012
- September 2012
- August 2012
- July 2012
- June 2012
- May 2012