Tónleikadómur: ATP Iceland 2014
Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir, sérlegur útsendari arnareggert.is, gerir upp ATP hátíðina sem fram fór um liðna helgi.
Allir heimsins morgnar
Það var fyrir fjórtán árum síðan sem ég fór fyrst á All Tomorows Parties í litlum sumardvalarstað sunnan við Brighton. Staðurinn sjálfur minnti svolítið á gömlu herstöðina nema að þarna mátti lesa hina þunglyndislegu áletrun Snappy Happy Holiday upp um alla veggi. Þarna vorum við þá kærustuparið ásamt öðrum plötubúðarstarfsmönnum úr Japis, Laugavegi 13, og það á gullöld síðrokksins. Við parið eltumst m.a. við hina og þessa hljómsveitarmeðlimi til að taka við þá viðtöl en kærastinn, nú eiginmaðurinn, var þá að skrifa í verktakavinnu fyrir Morgunblaðið. Flestir gestirnir voru litlir indíkrakkar eins og maður kallaði þá (en við kannski litlu eldri sjálf). Stelpur í rauðum sokkabuxum og gulum Doc Martens og strákar í Converse. Gestir ATP liðna helgi voru hins vegar af mun fjölbreyttara tagi þó fjöldi Docs og Converse hafi líkast til verið svipaður. Indíkrakkarnir – einhvers konar forverar krúttanna – eru orðin grá í vöngum og jafnvel krúttin orðin ráðsett. Hljómsveitarvalið þetta árið var kannski ekki jafn einhæft og þarna um árið og áhorfendaskarinn því skemmtilega blandaður, þarna áttu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Fyrsta hljómsveitin sem ég sá á fimmtudeginum var ein af mínum uppáhalds. Hjónin í Low sungu með sínum hljómfögru röddum gömul og ný lög, hjónakornin eiga langan og jafnan feril að baki, eitthvað sem var auðheyranlegt. Einfaldlega gott band og síðasta plata, The Invisible Way, virkilega sterk.
Það verður að viðurkennast að ég var bæði hissa og ánægð með hve vel tímaáætlanir stóðust og allt utanumhald um hátíðina var til fyrirmyndar. Á fimmtudeginum var kannski fæsta fólkið en auðvelt var að komast framarlega án nokkurs troðnings. Veðrið hins vegar lék ekki við hvern sinn fingur, það var íslenskt slagveður og rigningin svo mikil að ég lagði hreinlega ekki í að kíkja á HAM né Spiritualized í Andrews Theater. Útlendingarnir sem virtust vera stór hluti gesta voru margir hverjir vel búnir í útivistarfatnaði svo að þeir veigruðu sér ekki við að ganga á milli, hins vegar heyrði ég nokkra vera furðu slegnir á stílíseruðum Íslendingunum.
Eftir Low í Atlantic studios, aðaltónleikasviðinu, var tríóið Shellac, hljómsveit hins afkastamikla upptökustjóra Steve Albini og þeirra Todd Trainer og Bob Weston. Ég hafði nú séð þá félaga á fyrri ATP hátíðinni sem ég fór á sem hinir skosku Mogwai “hóstuðu”, þ.e. sáu um að velja hljómsveitir. Mikil eftirvænting var í salnum sérstaklega hjá fyrrverandi indíkrökkum. Framkoma þessara félaga var einkar hressileg, hávaðinn var ágætlega eyrnarskerandi, Steve og Bob höfðu eðlilega elst eitthvað og kynnst velmegun en trommarinn hafði ekki elst um gramm og sýndi sína gömlu góðu engisprettutakta. Í síðasta laginu, þegar Bob var meðal annars búinn að leika flugvél og öllum illum látum, fóru þeir að taka niður trommusettið undan trommaranum. Sjálfri hafði mig minnt að ég væri hrifnari af þeim en einhvern veginn virðast þessir nördalegu kallar ekkert ná sérstaklega til mín. Lengri lögin þóttu mér leiðinlegri en þessi melódísku.
Næstur á svið var Kurt Vile og the Violators. Þar hitti ég norska kunningjakonu sem vonaði að þeir yrðu nú aðeins hressilegri en Spiritualized. Í bæklingnum stóð að Kurt þessi væri einn besti gítarleikari og söngvasmiður síðari ára og væri fæddur 1980. Ég get ekki sagt að þessir loðnu og síðhærðu menn hafi sannfært mig um þá staðhæfingu, lögin flutu um fullkomlega óáhugaverð án þess ég tæki eftir hvernig þau enduðu eða byrjuðu. Gárungarnir, eða Doktor Gunni í þessu tilfelli, vildi meina að þetta væri óttalegt væl og verð ég að vera sammála Doktornum þar.
Á föstudeginum höfðu Converseskórnir fengið að víkja fyrir svörtum vaðstígvélum en slagviðrinu hafði þó engu að síður slotað. Fyrstu tónarnir sem ég heyrði voru síðustu tónar Ástralans Ben Frost. Geðveikislegir og þungir og fólk bar honum vel söguna. Strax á eftir hófu Mammútgyðjurnar raust sína, tónlist þeirra hefur þyngst töluvert sem mér finnst vera vel, söngur Katrínu Mogensen er sérstakur en ber einnig einhvern keim af stórstjörnu okkar Björk. Þótti mér þau vera skemmtilegasta íslenska bandið yfir það heila. Á milli þeirra náði ég plötusnúðinum Einari Erni úr Ghostigital sem spilaði og dansaði pönk. Á eftir Mammút kíkti ég á aðra sveit sem einnig er skipuð ungum konum að mestu en það voru systurnar í Pascal Pinon. Kynjahlutfallið þetta kvöld á ATP var því mjög gott og hrósvert.
Ég hef fylgst nokkuð vel með Jófríði og Ásthildi frá því þær byrjuðu í Pascal Pinon og ég er ánægð með framþróunina hjá þeim. Jófríður er með einstaklega skemmtilega og góða rödd, og samsöngur systranna sérlega góður. Síðasta lagið þeirra var glænýtt og líst mér bara harla vel á það sem koma skal hjá Pascal. Hin stórfenglega Sóley spilaði á sama tíma í Atlantic Studios en Pascal og þægileg sæti héldu mér frá henni í þetta skiptið.
Næsta sveit á aðalsviði var Liars sem þekkti ég ekki mikið en kunningjakona benti mér á að þarna mætti heyra Sisters of Mercy takta og söngvarinn með áþekka rödd og söngvari Bauhaus. Sjálfri þóttu mér þeir mistækir mjög og á milli Sisters taktsins fannst mér vera tilgerðarlegur Scooter á ferð.
Ég færði mig nær sviðinu og hlakkaði til næstu stórsveitar sem var hin margfræga skóglápssveit Slowdive. Neil Halstead og Rachel Goswell spiluðu þétt saman, líkt og árið væri 1991 fremur en 2014. Rachel brosti hlýlega til áhorfenda en virtist stundum ekki vera nægilega með á nótunum, þessi fyrrum indídrottning var eins og brosmildur handavinnukennari að norðan og Neil orðinn ansi grár; minnti á smíðakennara með gítaráráttu. Þó settið væri ansi þétt fannst mér hljóðið ekki nægilega gott, sér í lagi hvað hljóðnema Rachel varðaði.
Þegar ofvaxna P-ið birtist á skjánum fór ég að finna fyrir troðningi fremst við sviðið og var nánast farin að slást við unga konu til þess að halda stæðinu mínu í annarri röð. Portishead var mætt í allri sinni dýrð og Beth Gibbons opnaði með lögunum „Silence“ og upphafslagi Dummy, „Mysterons“. Röddin hennar viðkvæm og undurblíð en djúp og sterk í senn. Undursamleg. Billie Holiday okkar tíma. Toppi ATP var náð þessa helgina, hver slagarinn af hinni klassísku Dummy kom á fætur öðrum; „Glory Box“, „Wandering Star“ en líka af seinni plötum þeirra tveim. Áhorfendaskarinn stóð sem dáleiddur af þessari ofursvölu söngkonu og í þónokkrum lögum söng salurinn allur með. Í baksýn voru svo svart-hvítar myndir af Beth og félögum og jók það enn frekar á upplifunina. Eftir að hafa staðið þarna fremst við sviðið alla tónleikana fór ég í síðasta uppklappslaginu sem ég hefði auðvitað ekki átt að gera því Beth gerði sér lítið fyrir og steig niður og tók í höndina á þeim sem fremst stóðu. Þetta kvöldið hefði ég ekki getað innbyrgt meira þó ég vildi, svo stórkostlegir voru tónleikarnir.
Laugardaginn verð ég hins vegar að láta öðrum í té að dæma þetta árið. Hátíðin búin að taka sinn toll af undirritaðri og ég var auk þess boðin í partý til einhvers milljónamærings (hóst).
Það er augljóst að eftirspurnin eftir svona hátíð er til staðar og Tómas Young og félagar hafa séð um framboðið með miklum myndarbrag. Ég vona innilega að ATP haldi áfram á Íslandi því það er alveg ljóst að hátíðin á vel heima hér.
Stikkorðaský
Abba ATP Björk Bob Dylan Bryan Ferry Bubbi Bára Gísladóttir Bítlarnir Cyber David Bowie Eurovision Evróvisjón Færeyjar Grænland Harpa Hildur Guðnadóttir Ian Anderson Iceland Airwaves Jethro Tull Jóhann Jóhannsson jólatónlist Kraftwerk Kælan Mikla Misþyrming Morgunblaðið múm Músíktilraunir Nick Cave Nordic Music Prize Norrænu tónlistarverðlaunin Nuuk Nuuk Nordic Culture Festival post-dreifing President Bongo Reptilicus sigur rós Skotland Skrapt Skúli Sverrisson Söngvakeppnin Söngvakeppni Sjónvarpsins Thick As A Brick tónleikar tónlist ... er tónlist íslenskur plötudómurUmræðan
- PtaXa on Plötudómur: Ingibjörg Turchi – Stropha
- Ilmu Komunikasi on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Manajemen on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Ilmu Forensik on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Biomedis on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- Informatika on A Faroese Music Diary – Skrapt Festival 2023: #3
- SO on Plötudómur: Bubbi – Ljós og skuggar
- Irgi Zanuar on Viðtal: Egill Ólafsson
- Sains Data on Uppgjör: Nuuk Nordic Culture Festival 2019
- RPLA on Rýnt í: Kynjahalla í dægurtónlist
Safn
- November 2024
- October 2024
- September 2024
- August 2024
- July 2024
- June 2024
- May 2024
- April 2024
- March 2024
- February 2024
- January 2024
- December 2023
- November 2023
- October 2023
- September 2023
- August 2023
- July 2023
- June 2023
- May 2023
- April 2023
- March 2023
- February 2023
- January 2023
- December 2022
- November 2022
- October 2022
- September 2022
- August 2022
- July 2022
- June 2022
- May 2022
- April 2022
- March 2022
- February 2022
- January 2022
- December 2021
- November 2021
- October 2021
- September 2021
- August 2021
- July 2021
- June 2021
- May 2021
- April 2021
- March 2021
- February 2021
- January 2021
- December 2020
- November 2020
- October 2020
- September 2020
- August 2020
- July 2020
- June 2020
- May 2020
- April 2020
- March 2020
- February 2020
- January 2020
- December 2019
- November 2019
- October 2019
- September 2019
- August 2019
- July 2019
- June 2019
- May 2019
- April 2019
- March 2019
- February 2019
- January 2019
- December 2018
- November 2018
- October 2018
- September 2018
- August 2018
- July 2018
- June 2018
- May 2018
- April 2018
- March 2018
- February 2018
- January 2018
- December 2017
- November 2017
- October 2017
- September 2017
- August 2017
- July 2017
- June 2017
- May 2017
- April 2017
- March 2017
- January 2017
- December 2016
- November 2016
- October 2016
- September 2016
- August 2016
- July 2016
- June 2016
- May 2016
- April 2016
- March 2016
- February 2016
- January 2016
- December 2015
- November 2015
- October 2015
- September 2015
- August 2015
- July 2015
- June 2015
- May 2015
- April 2015
- March 2015
- February 2015
- January 2015
- December 2014
- November 2014
- October 2014
- September 2014
- August 2014
- July 2014
- June 2014
- May 2014
- April 2014
- March 2014
- February 2014
- January 2014
- December 2013
- November 2013
- October 2013
- September 2013
- August 2013
- July 2013
- June 2013
- May 2013
- April 2013
- March 2013
- February 2013
- January 2013
- December 2012
- November 2012
- October 2012
- September 2012
- August 2012
- July 2012
- June 2012
- May 2012