Í haust kemur út bókin „Tónlist er tónlist“: Greinar 1999 – 2012 sem inniheldur úrval greina eftir mig frá þrettán ára Morgunblaðsferli. Ég skrifa athugasemdir þegar við á, en sumar greinarnar eiga sér allsérstæða sögu. Það er búið að vera mjög skemmtilegt að rifja þetta upp. Hér er smá tíser eða „kitla“. Gylfi Ægisson í aðalhutverki:

Eitthvað sem átti að vera stutt símaspjall við Gylfa Ægisson út af nýrri safnplötu átti eftir að snúast upp í meiriháttar ævintýri. Ákveðið var að gera eitthvað aðeins meira úr meistaranum og hann kíkti í heimsókn til mín upp í Hádegismóa, með gítarinn og allt. Í kjölfarið var ákveðið að gera myndskeið og keyrðum ég og Sighvatur, síðar samstarfsmaður minn í Tónlistarstundinni, niður í Fjörukrá til að mynda Gylfa og spjalla við hann. Ég reyndi að fá Gylfa til að spila „Minning um mann“ bara með kassagítarinn, til að undirstrika hversu glæsilega harmrænt þetta lag er en ó nei, skemmtarinn var hækkaður upp í ellefu og þannig blastaði hann laginu þarna í Fjörukránni.

Við fengum Gylfa svo til að vinna fyrir okkur mynd sem við tókum af honum en hann sér sjálfur um alla hönnun fyrir plötur sínar sem skilar sér í hinum ævintýralegustu umslögum. Gylfi klikkaði ekki og sendi þessa stórkostlegu mynd sem gaf okkur um leið fyrirsögnina. En það er rúsína í þessum sagnfræðilega pylsuenda. Þegar vinnudegi var lokið fór ég fram á háborð (umbrotsborðið) til að tékka á gangi máli, eiginlega fyrir hálfgerða rælni. Þá var búið að klippa („edga“) Gylfa út úr myndinni og verkið þar með ónýtt. Ég útskýrði fyrir mönnum að myndin væri í raun sérpantað listaverk frá Gylfa og því mætti ekkert hrófla við henni. En djö… stóð þetta tæpt í þetta sinnið. Stórslysin hafa nú orðið en ég hefði hrokkið sérstaklega glæsilega af hjörunum ef þetta hefði orðið að veruleika.

Ég hugsaði í kjölfarið, „Af hverju er ekki búið að skrifa bók um þennan mann?“. Ári síðar varð hún svo að veruleika.

4 Responses to „Tónlist er tónlist“ — Bókin: Kitla #1 GYLFI ÆGISSON

  1. Heyrðu, átti ég ekki hugmyndina að því að hann gerði fyrir okkur listaverk?

  2. Nei, nei. Ómægod. Þetta átti ekki að koma svona út. Ég var bara að hugsa upphátt.

    • já, ég var ekki viss hvort var. en það verður nú minnst á þig á einhverjum tímapunkti get ég lofað þér :o) en já, þetta var alveg ótrúlegt dæmi með Gylfa og ég man að ég hringdi í þig í sjokki í tengslum við myndafokkið. Good times!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Set your Twitter account name in your settings to use the TwitterBar Section.
Follow

Get every new post on this blog delivered to your Inbox.

Join other followers: